Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 39
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 39
Einkenni á frumkvöðlum sem hafa
komið fram í rann sóknum eru eins og:
Ásókn í áskoranir, áhættu þol og vilji
til að læra af mistök um, skapa sína
eigin gæfu, sjálfstæði, ákveðni, frum
kvæði, frumleiki, trú á sjálf an sig,
ábyrgðartilfinn ing, tækifærisþrá hyggja,
þörf fyrir endurgjöf, framtíðar sýn,
óvissu þol, ofurbjartsýni, stefnufesta og
leiðtoga hæfni.
ar mynd. Hins vegar hefur teoretísk umræða um frumkvöðla
skipst í tvo flokka sem byggja á talsvert ólíkum forsendum.
Annars vegar ákveðnu raunsæi og vísindalegri hegðun þar
sem hlutverk frumkvöðulsins er að greina tækifæri og meta
fýsileika þeirra áður en hann hefur aðgerðir. Áhersla á við skipta -
áætlanir er dæmi um þetta raunsæ is mat sem frumkvöð ullinn þarf
að hafa sam kvæmt þessari hugmyndafræði.
Hins vegar hefur umræðan snúist um skap andi hugsun og
aðgerðir það sem hug myndir eru skapaðar og mótaðar með
hug myndaflugi, þróun og prófun. Hann hefur frum kvæði til þess
að gera hlutina. Það sem snýr að rann sóknum og greiningum
kallast greining ar hæfni en það sem snýr að frumleika og
til raunum sköpunarhæfni. Því meira sem fólk vinnur með frum
kvöðlum, hvort sem ráðgjafar, samstarfsmenn eða fjárfestar,
því betur áttar fólk sig á hvað það er mikilvægt að frumkvöðl ar
hafi hæfni til þess að eiga og vilja eiga samskipti. Tengslanet,
hvernig frumkvöðlar „selja“ viðskiptahugmynd ina, framboðið og
fyrirtækið og hvernig frum kvöðl ar skapa teymi og hvetja það eru
þættir sem geta skipt höfuðmáli.
Þriðja hæfnin sem frumkvöðlar ættu að hafa er þar af leið-
andi samskiptahæfni. Full ljóst er að það er erfitt og næstum
ómög ulegt fyrir einn einstakling að vera með sterka greining ar-
hæfni, sköpunarhæfni og samskiptahæfni og þess vegna er
yfirleitt reynt að skapa þessa hæfni í frumkvöðla teym inu frekar
en hjá einum frumkvöðli og um leið skapa trúverðugleikann að
teymið muni gera viðskiptahugmyndina að veruleika.
Geðveikin
Á Vísindavefnum segir: „Þegar talað er um geðveiki er oftast
átt við geðklofa og geð hvarfasýki. Einkenni geðveiki eru
alvarlegar andlegar truflanir, svo sem ranghugmyndir eða
of skynjanir og skert raunveruleikaskyn.“
Einhver myndi segja að ranghugmyndir og ofskynjanir
og skert raunveruleikaskyn og einhverskonar geðklofi lýstu
einkenn um frum kvöðla býsna vel. Það er þó meira í gamni en
alvöru. Hins vegar leynir sér ekki að þegar eiginleikar frum
kvöðla eru skoðaðir að þá er til ansi mikils ætlast af einum
manni og óraunhæft að hann geti verið slíkur súp ermaður.
Hagfræðingurinn Schumpeter, sem skrif aði einna fyrstur
um frumkvöðla í efna hags legu samhengi, talaði reyndar um
eins konar súpermann þegar hann talaði um frumkvöðul-
inn. Geðveikin snýst þess vegna kannski frekar um að
ætla frumkvöðl inum um of frekar en að byggja upp teymi
sem hefur t.d. þá þríþættu hæfni sem áhersla er lögð á í
Viðskiptasmiðj unni til þess að skapa trúverðugleika. Ef slík
hæfni er geðveiki þá væri óskandi að öll þjóðin væri geðveik
og sæi ávinninginn í að vinna saman og rækta greiningar,
sköpun ar- og samskiptahæfni til þess að skapa trúverðuga
verðmætasköpun til framtíðar.
fjallað um Björk guðmundsdóttur í nordic innovation:
Eiginlega er Björk frum-kvöðull í tvennum skilningi. Hún hefur á liðnum þremur áratugum átt
stóran þátt í að kynna íslenska
tónlist í útlöndum og opna
öðrum tónlistarmönnum leið inn
á erlendan markað.
Sjálf hefur hún verið í röðum
hinna stórtækustu útflytjenda á
tónlist og stutt aðra. Í þessum
skilningi má líta á hljómsveitir
sem sprotafyrirtæki. Hugmynd-
ir verða til, þær eru gerðar að
seljanlegri vöru – og seldar.
Hins vegar hefur Björk lagt
sitt af mörkum við nýsköpun á
Íslandi í gegnum verkefni sem
hún kallar Neista. Neisti gat af
sér Klak, þar sem ungu fólki
gefst færi á að klekja út nýjum
hugmyndum.
Frumleg
Um þessa þætti í starfi Bjarkar
er fjallað í Nordick Innovation.
Þar er bent á að Björk hafi sent
frá sér ekki færri en sjö hljóm
plötur, sem allar hafi náð langt
á alþjóðlegum tónlistarmarkaði.
Og eins og margir aðrir frum -
kvöðlar fer hún sínar eigin leiðir.
Hún hermir ekki eftir öðrum.
Þetta hefur aflað henni virðing-
ar og varð m.a. til þess að
sænska tónlistarakademían
veitti henni í fyrra „The Polar
Music Prize“ sem líkt er við
Nóbelsverðlaun – bara í tónlist.
Í viðtali í Nordic Innovation
kemur frumkvöðulshugsun
Bjarkar einmitt fram. Hún mæl ir
gegn sérkennalausri fjölda -
fram leiðslu á tónlist og segir:
„Allt sem er gott gerist hægt.
Ný sköpunin er lykillinn að
velgengni.“
Hvert stefnir?
Hún talar einnig um nauðsyn
einlægni. Það borgi sig ekki að
berast á og þykjast vera mikill;
raunveruleg og einlæg sköpun
verði að búa að baki. Hún talar
líka um að enginn sem reynir
að gera eitthvað nýtt sjái fram
úr því sem fyrir höndum er.
„Ég sé oft ekki skóginn fyrir
trjánum,“ segir hún en reynir
samt að átta sig og skapa eitt
hvað nýtt. Þetta er sami vandi
og aðrir frumkvöðlar lenda í.
Meðan hugmynd er að þróast
vita menn oft ekki hvert stefnir.
Því skiptir miklu að reyna að
átta sig á hvað menn vilja
og fylgja svo því óháð öllum
tískubylgjum.
„Stöðnun er hinn valkosturinn
ef ekkert nýtt er skapað,“ segir
Björk. „Tækni er verkfæri sem
við notum við að skapa en það
eru hugmyndirnar sem eru
skapandi.“
Og í Nordic Innovation er álykt-
að sem svo að „andi ný sköp -
un ar“ geri Björk sérstaka og að
mikilvægum listamanni.
fruMkvöðullinn Björk
Björk Guðmundsdóttir er skærasta tónlistarstjarna
Íslands. Hún er það íslenska nafn sem flestir útlending-
ar þekkja. En Björk er ekki bara tónlistarkona, hún er
einnig frumkvöðull. Það vill oft gleymast.