Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 72
72 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
bækur
Handbók stjórnarmanna
Hér kemur bók sem ætti að vera til í öllum stjórnarherbergjum; Handbók stjórnarmanna.
Í bókinni eru ýmsir gátlistar og spurningar sem auðvelda stjórnarmönnum að rækja hlut-
verk sitt af kostgæfni og fagmennsku.
Í takt við auknar kröfur:
N
ýlega kom út á
vegum KPMG
Handbók stjórn
ar manna sem
veitir greinargóðar
upplýsingar um hlutverk, ábyrgð
og skyldur stjórnarmanna
fyrir tækja. Handbókin er unnin
í samvinnu við Landssamtök
líf eyrissjóða, Samtök atvinnulífs-
ins, Samtök fjármálafyrirtækja
og Viðskiptaráð Íslands.
Bókin er ítarlegur og vandaður
leiðar vísir um hið mikilvæga
en oft misskilda hlutverk
stjórnarmanns ins.
Undanfarin misseri hafa hlut
verk og skyldur stjórnarmanna
verið meira í umræðunni en oft
áður. Það vinnulag sem virðist
hafa viðgengist meðal sumra
stjórna á árunum fyrir hrun
hef ur harðlega verið gagnrýnt
í samfélaginu og kallað á að
stjórnarmenn axli ábyrgð á
gerðum sínum. Margir hafa
haldið því fram að ef skipaðar
stjórnir fyrirtækja hefðu rækt
lögbundið hlutverk sitt hefði
margt farið öðruvísi í aðdrag-
anda hrunsins 2008. Það er því
afar mikilvægt að þeir sem taka
sæti í stjórnum fyrirtækja séu
meðvitaðir um þá ábyrgð og
þær skyldur sem því sæti fylgja.
Handbók stjórnarmanna er
ítarlegur og yfirgripsmikill leiðar-
vísir sem tekur af öll tvímæli
um hvað felst í því mikilvæga
hlutverki að sitja í stjórn.
Ábyrgðin liggur hjá stjórn
armönnum
Samkvæmt lögum liggur end-
anleg ábyrgð á starfsemi fél ags
hjá stjórnarmönnum þess. Það er
því mikilvægt að stjórnarmenn
þekki til hlítar það hlutverk sem
þeir gegna. Grunnþekking á
þeim lögum og reglum sem
gilda um fyrirtækjarekstur og
starfsemi félagsins er nauðsyn
leg svo og þekking á almennum
starfsreglum stjórna. Síðast en
ekki síst er mikilvægt að þeir
hafi yfirgripsmikla þekkingu á
starfsemi viðkomandi félags og
séu fljótir að öðlast yfirsýn yfir
reksturinn.
Í Handbók stjórnarmanna eru
ýmsir gátlistar og spurningar
sem auðvelda stjórnarmönn-
um að rækja hlutverk sitt af
kost gæfni og fagmennsku. Með
bókinni fylgir möguleiki á að
skrá sig á póstlista hjá KPMG
þar sem sendar verða upplý s
ingar um breytingar á lögum og
reglum þeim sem handbókin
tekur til. Með því móti þarf ekki
Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Handbók stjórnarmanna
í kaflanum ertu að taka sæti í stjórn sem hugsaður er fyrir nýja
stjórnarmenn er vitnað í bók Þorkels Sigurlaugssonar ný framtíðarsýn
og tíu spurningar sem ram Charan og Julie Schlosser segja mikilvægt
að stjórnarmenn spyrji sig á stjórnarfundum til að átta sig á stöðu
fyrirtækisins, möguleikum þess og hugsanlegum hættumerkjum:
1. Hver er uppspretta hagnaðar og fjármagns hjá félaginu?
2. Hver er aldur útistandandi krafna?
3. Hvað gæti gert út af við reksturinn?
4. Hver er árangur okkar í samanburði við keppinautana?
5. Hvað gerist ef framkvæmdastjórinn fellur frá á morgun?
6. Hvernig ætlum við að vaxa?
7. Hver eru launakjör lykilstjórnenda?
8. Hvernig fáum við vondar fréttir?
9. eru stjórnarhættir stjórnarinnar í lagi?
19. Störfum við í sátt við umhverfi okkar, viðskiptavini, hluthafa og
þjóðfélagið í heild?
í inngangi handbókarinnar segir: „í 8. bindi skýrslu rannsóknarnefndar
alþingis, um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og
tengda atburði, kemur fram að mikilvægt sé að hafa í huga að lög og
starfsreglur eru ekki settar til að leggja stein í götu athafnamanna, heldur
til að tryggja heilbrigða starfshætti og koma í veg fyrir að stjórnendur
falli í þá freistni sem óábyrg stjórnun, þar með talið áhættusækni, getur
leitt þá í. Jafnframt þarf að athuga að almenn lög eru takmörkunum
háð. Þau eru fyrst og fremst lágmarksreglur og þegar þeim sleppir
tekur siðferðileg dómgreind við. Fyrirmæli laga eru oft háð mati og
túlkun eins og þegar reynir á hvað felst í „eðlilegum og heilbrigðum
viðskiptaháttum“. Stjórn félagsins gegnir lykilhlutverki í því að tryggja
heilbrigða viðskiptahætti.“
ertu að taka sæti í stjórn?
Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna
Hlutverk stjórnar
almenn atriði um störf stjórna
Árangursríkir stjórnarfundir
Hluthafafundir
Framkvæmdastjóri
undirnefndir stjórnar
innra eftirlit og áhættustýring
Stefnumótun
Ársreikningur og
samstæðureikningur
viðskiptasiðferði
auk þess eru sérkaflar sem taka
til sérreglna um fjármálafyrirtæki,
lífeyrissjóði og félög með skráð
hlutabréf eða skuldabréf. í viðauka
er jafnframt kafli um starfsáætlun
stjórnar og notadrjúgur gátlisti við
ákvarðanatöku.
Bókinni er haganlega skipt upp
í fjóra hluta með flipum, sem
auðveldar uppslátt og eykur
skýrleika.
UPPByGGinG hAndBóKArinnAr
Nauðsynlegt er að stjórnarmenn hafi þekkingu á starfsemi fyrirtækisins
og tekur uppbygging handbókarinnar mið af því. Kaflaheiti bókarinnar
eru eftirfarandi:
LyKiLhLUtverK í Að
tryGGJA heiLBriGðA viðSKiPtAhætti
tíU SPUrninGAr StJórnArMAnnA
Handbók stjórnar
manna er ítarlegur
og yfirgripsmikill
leiðarvísir sem
tekur af öll tvímæli
um hvað felst í því
mikilvæga hlutverki
að sitja í stjórn.
Vissir þú að um 1.900 fyrirtæki um allan heim í meira en 120
löndum nota hugbúnað frá íslenska fyrirtækinu LS Retail í alls
35.000 verslunum og á 77.000 afgreiðslukössum?
Stærst á íslenskum markaði
LS Retail er rótgróið hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur sérhæft sig í þróun og sölu
á lausnum fyrir verslunar- og veitingarekstur á alþjóðamarkaði.
Meðal viðskiptavina LS Retail á Íslandi eru Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ÁTVR, Nova,
Apple á Íslandi, Laugar, Íslandspóstur, IKEA, Debenhams, NTC og margir fleiri.
Söluaðilar og samstarfsfyrirtæki LS Retail á Íslandi eru:
Eitt best geymda
leyndarmál Íslands
Allar nánari upplýsingar er að finna
á vefsíðu okkar www.LSRetail.com