Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 51
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 51
tölvupósturinn gmail.com njóta mikilla vinsælda. Google er í röð
bestu viðskiptahugmynda í sögunni. Upphaflega fjármögnuðu
ríkir fjárfestar vinnuna en núna eru nær allar tekjur fengnar með
aug lýsingum.
frumkvöðlar úr barnaskóla
En af hverju tókst þessum tveimur mönnum að unga út hugmynd
sem bæði gerði þá ríka og umbylti þekkingarleit á netinu? Þeir
hafa sjálfir verið spurðir þessarar spurningar oft og svarið er alltaf
það sama: Barnaskólinn ræður úrslitum. Þegar nöfn þeirra eru
gúgluð kemur síða um barnaskólann fyrst upp. Þeir voru sendir í
Montessoriskóla og lærðu að hugsa sjálfstætt og leita þekkingar í
stað ítroðslu.
Að vísu hefur menntun foreldra ekki þótt spilla fyrir áhuga barn
anna. Þeir félagar eru af prófessorum í stærðfræði og tölvutækni
komnir. Þeir eru jafnaldrar, fæddir árið 1973. Sergey er Rússi en
kom til Bandaríkjanna sex ára með foreldrum sínum. Höfundar
Google hittust fyrst í háskóla, urðu herbergisfélagar í Stanford og
hafa unnið saman síðan.
lánsama kynslóðin
Þeir eru líka dæmigerðir fyrir tölvukynslóð frumkvöðla. Sú kyn
slóð er ólík fyrri kynslóðum fólks sem náð hefur langt í viðskipt
um. Munurinn er að uppfinningamenn af tölvukynslóð hafa alist
upp við góð kjör og aðgang að tölvum frá blautu barnsbeini. Þeir
hafa oftast alist upp í háskólaumhverfi og gjarnarn gengið á sér
skóla þar sem mest fer fyrir börnum annarra menntamanna.
Hvetjandi umhverfi skiptir þarna miklu máli. Frumkvöðlar af
fyrri kynslóð ólust aftur á móti oft upp við kröpp kjör og urðu að
bjarga sér sjálfir – og lánaðist það stundum.
Oprah Winfrey, ein ríkasta og frægasta
kona Bandaríkjanna:
BReyTTI SJÓN-
vaRPINU
Í aldarfjórðung hefur Oprah Winfrey verið stofn
un í Bandaríkjunum. Milljónir manna þar – og
raunar víða um heim – líta á hana sem náinn
vin. Hún er bæði trúnaðarvinur og söluvara.
Það eru tvær hliðar á hverjum peningi. Trúnaðarvinurinn heitir Oprah en viðskiptin eru rekin undir nafninu Harpo; það er nafn sjónvarpsdrottningarinnar aftur á bak. Bakhliðin á þessum peningi er spegilmynd af framhliðinni.
Í mörgum löndum Evrópu er fólk, sem blandar á þennan hátt
saman viðskiptum og eigin persónu, litið hornauga. En ekki í
Ameríku. Þar geta frumkvöðlar gert út á eigin persónu, hagnast
vel á því og öðlast frægð og virðingu. Viðskipti Harpo færa Oprah
um milljarð Bandaríkjadala í tekjur á ári.
Sjónvarpsþátturinn The Oprah Winfrey Show er undirstaða
frægðar og auðs konunnar. Hann hóf göngu sína vestra árið 1986
og fyrr á þessu ári var nýjum upptökum hætt. 25 ár voru nóg.
Hætta ber leik þá hæst hann fer. The Oprah Winfrey Show er sá
þáttur sem náð hefur mestu áhorfi á skjái vestanhafs og oft hefur
Oprah verið efst á listum yfir áhrifamestu konur heims; tekið sæti
ofan við konur í stjórnmálum og viðskiptum. Fyrirtækið Harpo
heldur áfam að græða þótt sjónvarpsþátturinn hafi runnið sitt
skeið á enda. Harpo er nú alhliða fjölmiðlafyrirtæki.
upphafið ekki glæsilegt
Margir frumkvöðlar eiga það sameiginlegt að upphafið var ekki
glæsilegt. Oprah fæddist í fátækt, elsta dóttir ógiftrar þjónustu
stúlku, sem síðar eignaðist þrjú önnur börn í lausaleik. Hún fór að
heiman 14 ára gömul og varð ófrísk sjálf en missti barnið.
En hún hafði góða rödd og sterka nálægð í útvarpi. Það leiddi til
þess að hún varð þegar á táningsaldri fréttalesari í staðarútvarpi í
Milwaukee. Úr fréttum fór hún í að stjórna samtalsþáttum í útvarpi
og loks í staðarsjónvarpi. Vinsældir þáttanna jukust alltaf með
komu hennar. Hún hafði einstæðan hæfileika til að ná til fólks.
Við upphaf árs árið 1984 tók hún við stjórn á óvinsælum morgun
sjónvarpsþætti hjá smástöð í Chicago og sló þar í gegn. Haustið
1986 hófust útsendingar á þætti hennar um allt land og hún sló
öllum öðrum þáttastjórnendum vestra við. Áhorfið varð tvöfalt
á við þátt Phils Donahues, sem áður hafði verið vinsælastur. Þar
með var Oprah orðin stórveldi í bandarísku sjónvarpi.
játningar í sjónvarpi
Lengi framan af ferlinum var Oprah gagnrýnd fyrir að gera út á
tilfinningasemi og sögur af frægu fólki. Hún varð sérfræðingur
í játningaviðtölum og táraflóði. En þáttur hennar þróaðist. Hún
byrjaði að fjalla um þjóðfélagsmál og tók upp málefni sem enginn
annar sjónvarpsmaður þorði að nefna.
Oprah sagði frá eigin reynslu af kynferðislegri misnotkun og hún
opnaði þátt sinn fyrir samkynhneigðum. Hún varð líka ráðgjafi
margra. Lagði áherslu á sjálfsbjörg og hvatti fólk til að koma sér
áfram í lífinu eins og hún hafði sjálf gert.
Höfundar Google, Sergey Brin og Larry Page.
Oprah Winfrey nýtur nú viðurkenningar sem frumkvöðull í amerísku sjónvarpi