Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Qupperneq 51

Frjáls verslun - 01.07.2011, Qupperneq 51
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 51 tölvupósturinn gmail.com njóta mikilla vinsælda. Google er í röð bestu viðskiptahugmynda í sögunni. Upphaflega fjármögnuðu ríkir fjárfestar vinnuna en núna eru nær allar tekjur fengnar með aug lýsingum. frumkvöðlar úr barnaskóla En af hverju tókst þessum tveimur mönnum að unga út hugmynd sem bæði gerði þá ríka og umbylti þekkingarleit á netinu? Þeir hafa sjálfir verið spurðir þessarar spurningar oft og svarið er alltaf það sama: Barnaskólinn ræður úrslitum. Þegar nöfn þeirra eru gúgluð kemur síða um barnaskólann fyrst upp. Þeir voru sendir í Montessori­skóla og lærðu að hugsa sjálfstætt og leita þekkingar í stað ítroðslu. Að vísu hefur menntun foreldra ekki þótt spilla fyrir áhuga barn­ anna. Þeir félagar eru af prófessorum í stærðfræði og tölvutækni komnir. Þeir eru jafnaldrar, fæddir árið 1973. Sergey er Rússi en kom til Bandaríkjanna sex ára með foreldrum sínum. Höfundar Google hittust fyrst í háskóla, urðu herbergisfélagar í Stanford og hafa unnið saman síðan. lánsama kynslóðin Þeir eru líka dæmigerðir fyrir tölvukynslóð frumkvöðla. Sú kyn­ slóð er ólík fyrri kynslóðum fólks sem náð hefur langt í viðskipt­ um. Munurinn er að uppfinningamenn af tölvukynslóð hafa alist upp við góð kjör og aðgang að tölvum frá blautu barnsbeini. Þeir hafa oftast alist upp í háskólaumhverfi og gjarnarn gengið á sér­ skóla þar sem mest fer fyrir börnum annarra menntamanna. Hvetjandi umhverfi skiptir þarna miklu máli. Frumkvöðlar af fyrri kynslóð ólust aftur á móti oft upp við kröpp kjör og urðu að bjarga sér sjálfir – og lánaðist það stundum. Oprah Winfrey, ein ríkasta og frægasta kona Bandaríkjanna: BReyTTI SJÓN- vaRPINU Í aldarfjórðung hefur Oprah Winfrey verið stofn ­ un í Bandaríkjunum. Milljónir manna þar – og raunar víða um heim – líta á hana sem náinn vin. Hún er bæði trúnaðarvinur og söluvara. Það eru tvær hliðar á hverjum peningi. Trúnaðarvinur­inn heitir Oprah en viðskiptin eru rekin undir nafninu Harpo; það er nafn sjónvarpsdrottningarinnar aftur á bak. Bakhliðin á þessum peningi er spegilmynd af framhliðinni. Í mörgum löndum Evrópu er fólk, sem blandar á þennan hátt saman viðskiptum og eigin persónu, litið hornauga. En ekki í Ameríku. Þar geta frumkvöðlar gert út á eigin persónu, hagnast vel á því og öðlast frægð og virðingu. Viðskipti Harpo færa Oprah um milljarð Bandaríkjadala í tekjur á ári. Sjónvarpsþátturinn The Oprah Winfrey Show er undirstaða frægðar og auðs konunnar. Hann hóf göngu sína vestra árið 1986 og fyrr á þessu ári var nýjum upptökum hætt. 25 ár voru nóg. Hætta ber leik þá hæst hann fer. The Oprah Winfrey Show er sá þáttur sem náð hefur mestu áhorfi á skjái vestanhafs og oft hefur Oprah verið efst á listum yfir áhrifamestu konur heims; tekið sæti ofan við konur í stjórnmálum og viðskiptum. Fyrirtækið Harpo heldur áfam að græða þótt sjónvarpsþátturinn hafi runnið sitt skeið á enda. Harpo er nú alhliða fjölmiðlafyrirtæki. upphafið ekki glæsilegt Margir frumkvöðlar eiga það sameiginlegt að upphafið var ekki glæsilegt. Oprah fæddist í fátækt, elsta dóttir ógiftrar þjónustu­ stúlku, sem síðar eignaðist þrjú önnur börn í lausaleik. Hún fór að heiman 14 ára gömul og varð ófrísk sjálf en missti barnið. En hún hafði góða rödd og sterka nálægð í útvarpi. Það leiddi til þess að hún varð þegar á táningsaldri fréttalesari í staðarútvarpi í Milwaukee. Úr fréttum fór hún í að stjórna samtalsþáttum í útvarpi og loks í staðarsjónvarpi. Vinsældir þáttanna jukust alltaf með komu hennar. Hún hafði einstæðan hæfileika til að ná til fólks. Við upphaf árs árið 1984 tók hún við stjórn á óvinsælum morgun­ sjónvarpsþætti hjá smástöð í Chicago og sló þar í gegn. Haustið 1986 hófust útsendingar á þætti hennar um allt land og hún sló öllum öðrum þáttastjórnendum vestra við. Áhorfið varð tvöfalt á við þátt Phils Donahues, sem áður hafði verið vinsælastur. Þar með var Oprah orðin stórveldi í bandarísku sjónvarpi. játningar í sjónvarpi Lengi framan af ferlinum var Oprah gagnrýnd fyrir að gera út á tilfinningasemi og sögur af frægu fólki. Hún varð sérfræðingur í játningaviðtölum og táraflóði. En þáttur hennar þróaðist. Hún byrjaði að fjalla um þjóðfélagsmál og tók upp málefni sem enginn annar sjónvarpsmaður þorði að nefna. Oprah sagði frá eigin reynslu af kynferðislegri misnotkun og hún opnaði þátt sinn fyrir samkynhneigðum. Hún varð líka ráðgjafi margra. Lagði áherslu á sjálfsbjörg og hvatti fólk til að koma sér áfram í lífinu eins og hún hafði sjálf gert. Höfundar Google, Sergey Brin og Larry Page. Oprah Winfrey nýtur nú viðurkenningar sem frumkvöðull í amerísku sjónvarpi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.