Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 38
38 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Þ
egar íslenskir frumkvöðlar voru
spurðir um hvað einkennir góð
an frumkvöðul á fésbókarsíðu
höfundar voru svörin ólík en
áhugaverð. Einn svarenda talaði
um þrjóskuna: „Staðfesta langt út fyrir það
sem venjulegt fólk myndi nenna! Trú á verk-
efnið löngu eftir að aðrir hafa afskrifað það.“
Annar frumkvöðull talaði um svipaða þrjósku
og sérhæfingu: „Sérþekking á vissu sviði og
mikill pirringur yfir því að eitthvað sé ekki eins
og hann vill að það sé.“ Enn annar talaði um
ákvörðunartöku: „fókus á (fram kvæmd) frekar
en að liggja of lengi yfir hlut unum.“
Svo var það einn sem benti á mikilvægi
þess að hafa og geta miðlað framtíðarsýn og
búa til teymi: „Færni til að miðla sýninni og
setja saman vel valinn hóp fólks sem vinnur
þétt saman (til) að láta drauminn rætast.“
Einnig var talað um mikilvægi tengsla netsins:
„Hann hefur yfirleitt gott tengslanet, kann að
nýta sér það, viðhalda og uppbyggja.“ Svo var
það einn frumkvöðull sem benti á mikilvægi
þess að vera margklofinn en staðfastur:
„Ástríða, trú, klikkun, ADHD, sæla, kvíði,
(elskar) rússíbana, grá hár, kennari, nemandi
og hefur fulla trú á hugmyndinni sinni.“
Heimspekingurinn í hópnum vildi hins veg
ar einfalda það sem einkennir frumkvöð ul inn
með einu orði: „Geðveiki...“
Hver er góður frumkvöðull?
Það er flest ef ekki allt sem má heimfæra
af því sem íslenskir frumkvöðlar nefndu á
rannsóknir á einkennum frumkvöðla. Ein-
kenni á frumkvöðlum sem hafa komið fram í
rann sóknum eru eins og: Ásókn í áskoranir,
áhættuþol og vilji til að læra af mistökum,
skapa sína eigin gæfu, sjálfstæði, ákveðni,
frumkvæði, frumleiki, trú á sjálfan sig,
ábyrgðar tilfinning, tæki færis þráhyggja, þörf
fyrir endurgjöf, fram tíðar sýn, óvissuþol, ofur -
bjartsýni, stefnufesta og leiðtogahæfni.
Vandamálið við rannsóknir á persónuleg -
um eiginleikum frumkvöðla er hins vegar að
það hefur gengið erfiðlega að eyrnamerkja
frumkvöðla með einhverjum ákveðnum
einkennum þar sem þessi einkenni þurfa
ekki að einskorðast við frumkvöðla og frum -
kvöðlar hafa ekki endilega öll þessi einkenni.
Þeir sem vinna mikið með frumkvöðlum hafa
oft á orði að það sé erfitt ef ekki ómögulegt
að meta hver verður góður frumkvöðull, það
sé svo mikið háð að stæðum og fleiri þáttum.
Hins vegar eru fræðimenn sammála um að
það sé þörf fyrir fleiri frumkvöðla sem geta
skapað verðmæti fyrir samfélagið, búið til
fyrirtæki, þróað nýjungar og skapað störf.
HveR eR eKKI FRUMKvöðULL?
Sænski prófessorinn Björn Bjerke
benti á fyrir nokkrum árum að það væri
senni lega auðveldara að segja hver væri
ekki frum kvöðull en að reyna að meta
hver væri frumkvöðull. Þegar hann var
beð inn um að meta frumkvöðla fyrir
áhættu fjár festing arsjóð sagðist hann
hafa fljótlega komist að því að hann ætti
að forðast eftirfarandi týpur:
Áætlunargerðaraðdáandinn: Sá sem
kom með ítarlegar áætlanir til margra ára
en skorti bæði raunsæi og sveigjanleika.
Einkaleyfissnillingurinn: Sá sem kom
með flotta einkaleyfið sem hafði ekki enn
orðið að vöru af því að það voru svo fáir
sem skyldu snilldina og vildu fjárfesta.
Gamblerinn: Sá sem kom og bað um
ákveðna upphæð sem hann ætlaði að
nota til þess að grípa frábært tækifæri.
Sér hæfði snillingurinn: Sá sem bjó yfir
mjög sérhæfðri þekkingu en átti erfitt
með að sjá stærra samhengi.
Öryggisvörðurinn: Sá sem hafði mikla
þörf fyrir að tryggja árangurinn og sjálfan
sig áður en nokkuð átti að gerast.
Eiginhagsmunaseggurinn: Sá sem vildi
að fyrirtækið snérist um hann sjálfan en
ekki verðmætasköpunina.
Hvort að þetta sé endilega réttmæt grein
ing skal ósagt látið. Hins vegar er rétt að
hafa í huga að fólk þarf að þroskast sem
frumkvöðlar og eru ófá dæmi um frumkvöð
la sem hafa breyst þegar þeir hafa rekið sig
á eða skilið hvað þeir skilja ekki. Þekkingar-
og reynsluöflun frumkvöðla er mikilvæg
vegna þess að mýtan um hinn fædda
frumkvöðul og frumkvöðlagenið hefur fyrir
löngu verið hrakin. Þó er ekki þar með sagt
að allir geti eða eigi að verða frumkvöðlar.
Frumkvöðullinn verður annars vegar að trúa
á sjálfan sig og rækta sjálfan sig og hins
vegar að fá aðra til að trúa á það sem hann
er að skapa og þróa.
Trúverðugleikinn
Í Viðskiptasmiðju Klaks þar sem hugmyndin
er að aðstoða frumkvöðla til þess að rækta
sjálfa sig og fyrirtæki kom þessi spurning um
eiginleika frumkvöðla upp. Þetta var spurn
ing um hvort hægt væri að meta frum kvöðla
inn í Viðskiptasmiðjuna út frá persónulegum
eiginleikum. Út frá þekkingu og reynslu
þeirra sem skipulögðu Viðskiptasmiðjuna
var slík aðferðafræði álitin vera dæmd til
þess að vera mislukkuð. Hins vegar var
ákveðið að nálgast spurninguna um einkenni
og hæfni út frá öðrum forsendum. Út frá
kenningum annars vegar og praktískum
forsendum hins vegar. Kjarnahugtakið var
skilgreint sem trúverðugleiki. Ef gengið er
út frá klassískri skilgreiningu á frumkvöðli
þá er frumkvöðull sá sem breytir hugmynd
í viðskiptahugmynd og gerir hana að veru
leika. Ef frumkvöðull er sá sem umbreytir
viðskiptahugmynd í fyrirtæki þarf hann að
hafa trúverðugleika sem slíkur.
Trúverðugleikinn getur einnig falist í frum -
kvöðlateymi frekar en einstaklingnum. Það er
hæfni, leikni og þekking frumkvöðla teym isins
sem gerir það trúverðugt og lík legt til þess
að hanna, þróa og gera við skiptahugmynd
að veruleika. Það er þessi trú verðugleiki
sem einstaklinum er hjálpað við að skapa í
Viðskiptasmiðjunni.
Sköpun, greining og samskipti
Eins og áður segir er erfitt að sjóða niður
hvaða hæfni, leikni og þekkingu frumkvöðl ar
þurfa að hafa til þess að það gefi góða heild-
Hvað eINKeNNIR GÓða
FRUMKvöðLa?
ÁSTRÍða, TRú, KLIKKUN, SæLa, KvÍðI, eLSKaR RúSSÍBaNa
Hvað einkennir góða frumkvöðla? Hver er góður frumkvöðull?
Svörin eru margvísleg. T.d. staðfesta langt út fyrir það sem venju-
legt fólk myndi nenna og trú á verkefnið löngu eftir að aðrir hafa
afskrifað það.
TexTi: eyþór ívar jónSSon
sprotar og frumkvöðlar