Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 34
34 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Frjáls verslun fjallar í fjórða skiptið á jafn mörg um árum um ís lenska sprota. Tilgang urinn er að vekja athygli á nýj -
um fyrir tækjum og mikilvægi þess að fóstra
þau og næra til vaxtar. Það var mikilvægt að
vekja athygli á sprotafyrirtækjum vegna fá
fræði og fálætis gagnvart nýsköpun og nýj um
fyrirtækjum.
Fyrsta sprotablaðið var gefið út korter í banka -
kreppu. Hugmyndin var að það gæti markað
nýja tíma þar sem þjóðin gæti þá ekki lengur
stólað á að þverrandi auðlindir og að kaupog
sölusamningar gætu skapað hagsæld til lengri
tíma. Það átti eða mátti flestum vera ljóst að í
framtíðinni þyrfti þjóðin meiri verð mætasköpun
sem væri byggð á þekkingu og nýsköpun.
Kjaftshögg kreppunnar virtist eitt augnablik
hafa vakið þjóðina af værum blundi. Þrátt fyrir
að pappírsauðurinn hefði þurrkast út á skömm-
um tíma var von, jafnvel vor, í loftinu. Svigrúm
var fyrir nýja hugsun og aðferðafræði. Frá
þungbúnum skýjum virtist koma hugmynda
regn. Slagorðið var að saman skyldi þjóðin
vinna sig úr kreppunni. Þremur árum síðar
hefur þjóðin sjaldan verið sundraðri. Það er
engin sameiginleg uppbygging í gangi, það
er hver höndin upp á móti annarri hvort sem
varðar fólk, fyrirtæki eða stofnanir. Óvissan er
enn mikil og fáir taka áhættu.
að hlúa að fræjum framtíðar
Tilgangurinn með því að vekja athygli á sprota-
fyrirtækjum var að styrkja vonina og ýta undir
raunverulega verðmætasköpun. Ef hægt
væri að sameinast um eitthvað væri það að
hlúa að fræjum framtíðarinnar. Þremur árum
síðar er ljóst að sú samvinna varð aldrei.
Pen ingar ríkisins til nýsköpunar fóru í
sama rann og áður og engin hugmyn
dafræðileg breyt ing átti sér stað innan
þess opinbera. Einkageirinn tók lít inn þátt í
að breyta leiknum þó að öllum megi vera ljóst
að það verður að vera atvinnulífið sem leiðir
nýsköpun á Íslandi en ekki ríkið.
Háskólarnir hafa eytt tímanum í að stíga á
tærnar hver á öðrum. Það er táknræn mynd
að húsið í Kringlunni 1, þar sem fyrir þremur
árum var framtíðarsýnin að sameina krafta
einkageirans, háskólanna og ríkisins í að
byggja upp útungunarstöð sprota, umbreyttra
fyrirtækja og nýsköpunar, hefur nú verið tekið
yfir af Vinnumálastofnun og Umboðsmanni
skuldara.
Í ljósi þess hve sorglegt er hvað hefði verið
hægt að gera, og er enn hægt að gera, er
aðdáunarvert að enn sé gróska í fyrirtækja
sköpun á Íslandi. Enn er hægt að finna 100
flott sprotafyrirtæki sem vekja von um framtíð
Íslands. Það er aðdáunarvert vegna þess að
í umhverfi þar sem erfitt er að reka fyrirtæki
sem eiga sér sögu og rekstur þá er öllu erfi ðara
að búa til ný fyrirtæki og koma þeim á legg.
Fámennur hópur sem kallar sig frumkvöðla býður ósamstöðu, vonleysi og ákvörð un ar-
fælni birginn. Þetta eru hetjurnar sem einka -
geir inn, háskólarnir og ríkið þurfa að sam einast
um og taka til fyrirmyndar. Þörf er fyrir meiri ný -
sköpun, frumkvöðla og ný og um breytt fyrir tæki.
Langmestar líkur eru á að það verði til sem
græðlingar úr fyrirtækjum, háskólum og ekki
síst stofnunum ríkisins. Þar eru auðlindir,
þekk ing og hæfni, jafnvel vörur og þjónusta
sem má skapa miklu meiri verðmæti úr en
gert er í dag. Með samstarfi gæti orðið stökk
breyting. Það er þá fyrst sem vonin um þjóð
sem byggir verðmætasköpun á þekkingu og
nýsköpun getur orðið að veruleika.
Enn er hægt að finna 100 flott sprotafyrirtæki sem vekja von um
framtíð Íslands. Það er aðdáunarvert vegna þess að í umhverfi þar
sem erfitt er að reka fyrirtæki sem eiga sér sögu og rekstur þá er öllu
erfiðara að búa til ný fyrirtæki og koma þeim á legg.
ByGGJUM UPP
ÞeKKINGaR-
OG NýSKöPUNaRHaGKeRFI
100 áhuga verð sprotafyrirtæki:
TexTi: eyþór ívar jónSSon
Dr. Eyþór Ívar Jónsson er framkvæmdastjóri Klaks Ný sköpunar miðstöðvar atvinnu lífs ins.
sprotar og frumkvöðlar
fjölpósti, blöðum,
tímaritum, bréfum
og vörum.
Okkar
hlutverk
er að
dreifa
Póstdreifing - Suðurhraun 1 - 210 Garðabær - Sími 585 8300 - www.postdreifing.is
Heyrðu í okkur næst þegar þú þarft á öruggri og
hagstæðri dreifingarþjónustu að halda.