Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 42
42 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Hugmyndin að baki Cooori er orðin átta ára gömul. Þá fór verkfræðistúdentinn Arnar Jensson að velta fyrir sér möguleikum á
nýj um aðferðum við tungumálakennslu.
Hann var þá nýfarinn til Japans að læra
tölvuverkfræði tengda tungumálum.
Ýmislegt hefur gerst í tölvuheiminum á
þessum átta árum. Rannsóknir í gervi greind
hafa gert tölvurnar gáfaðri, vinnslugetan
hefur aukist og tölvur eru notendavænni en
áður. Allt þetta er mikilvægt fyrir Cooori.
Hugmyndin um tölvuvætt tungumála nám
hefur ekki látið Arnar í friði þessi ár og nú er
fyrirtæki með alls 12 manns í vinnu á Íslandi,
í Japan og Belgíu komið á laggirnar. Á haust
mánuðum er verið að afla einkaleyfis fyrir
hugmyndina sem Cooori byggist á.
tölVan Virk í náminu
Aðferðin er því enn leyndarmál en gengur
að sögn Arnars út á að nýta afkastagetu
tölvunnar og gervigreind til að laga tungu
málanám að getu og námshraða hvers
nemanda. Tölvan lærir á nemandann um
leið og nemandinn lærir málið.
Arnar segir að stóraukin þekking á starf
semi heilans á síðustu áratugum opni flóð
gátt nýrra tækifæra til þess að auka skil virkni
í námi. Í Tókýó hefur hann þar að auki verið
í fremstu víglínu þróunar tal greiningar í
heiminum. Þetta tvennt, ásamt þekkingu á
málvísindum og tungumálanámi, myndar
grundvöllinn að nýrri og byltingarkenndri
aðferð við að læra ný tungumál. Markmið
ið er að notendur festi hraðar og betur í
minni allt það sem þarf til þess að nýtt tungu
mál verði þeim tamt.
„Nemandinn nálgast allt efnið á netinu
og hugbúnaðurinn metur getu hans eftir
því sem náminu vindur fram,“ segir Arnar.
Einstaklingar eiga að geta stundað sjálfs
nám með þessari aðferð og hana er líka hægt
að nota við hefðbundna bekkjarkennslu.
Arnar lýsir aðferðinni sem byltingarkennd ri
en nánari útlistun á henni er viðskipta
leyndar mál. Mörg fyrirtæki vinna einmitt
að nýjum lausnum við nám gegnum netið
en Arnar segir að enginn sem hann veit um
vinni að sömu lausn.
Arnar lagði hugmynd sína fram í keppn
ina um Gulleggið 2010 og vakti athygli.
Árið áður hafði hann lokið doktorsprófi
með þessa hugmynd sem viðfangsefni.
Björn Kristinsson, hugbúnaðarfjölfræðing
ur í Belgíu, hefur starfað með Arnari frá því
hugmyndin fór að taka á sig mynd. Og nú
einnig Eyþór Eyjólfsson, doktor í japönsk
um málvísindum, og Þorsteinn Gunnars
son. Þorsteinn er stjórnarformaður Cooori.
Félagið hefur fengið verkefnastyrk hjá
Rannís og styrk úr Átaki til atvinnusköp
unar. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
fjárfesti í Cooori á árinu ásamt hópi fagfjár
festa.
komið að næsta skrefi
Arnar segir að á lokamánuðum þessa árs
verði skrefið væntanlega stigið frá hug
mynd að fyrstu kynningu á seljanlegri
vöru. Þróunarvinnan er komin langt á veg
en þá bætast markaðs og sölumál við.
Í fyrstu er miðað við japönskunám fólks
sem kann ensku. Vegna þess hve tungumál
heimsins eru ólík þarf að aðlaga aðferðina
frá einu tungumáli til annars. Þegar hug
búnaðurinn og tæknin eru tilbúin er Cooori
ekkert að vanbúnaði að fjölga tungu mála
pörum.
Arnar segir að við þróunarvinnu af þessu
tagi skipti miklu að fara ekki fram úr sjálf
um sér. Þetta tekur tíma.
„Allir góðir hlutir gerast hægt,“ segir
Arnar. „Það er mikilvægt að vanda til þró
unarvinnunnar og hafa skýra hugmynd
um hvert skuli stefna.“
tölvan lærir á nemendur
Cooori er leikur að japanska orðinu ísmoli, skrifað með latínuletri. Cooori er
líka heitið á nýju íslensk-japönsku sprotafyrirtæki, sem framleiðir hugbúnað
sem hjálpar fólki að læra tungumál miklu hraðar en áður.
Þorsteinn Gunnarsson, Arnar Jensson og Jón Gísli Egilsson hjá Cooori..
Cooori
sprotar og frumkvöðlar