Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 40
40 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Upphaflega átti Boot Camp að vera sjónvarpsþáttur. Upptökur áttu að hefjast árið 2002. Þátturinn var aldrei gerður en „handritið“ hefur
verið leikið daglega síðustu sjö árin. Boot
Camp fellur undir sérstakt afbrigði af líkams
rækt þar sem byggt er á fjölbreytt ri þjálfun og
markmiðið er að engir tveir tímar séu eins.
Fjölbreytileikinn skiptir miklu máli, hvort
sem er fyrir þjálfara eða iðkendur.
„Hugmyndin er að bjóða upp á agaða en
fjölbreytta og skemmtilega líkamsrækt,“
segir Arnaldur Birgir Konráðsson, annar
frumkvöðlanna að baki Boot Camp. Með
honum er Róbert Traustason. Á þeirri reynslu
byggjast æfingarnar – aga og átökum.
„Aginn er mjög mikilvægur. Þegar á
reyn ir getur fólk meira en það heldur en
það gerist ekki án aga og aðhalds,“ segir
Arnaldur Birgir. Þetta var reynsla hans
sjálfs eftir lífvarðaskólann og er grunnurinn
að hugmyndinni með Boot Camp.
Útgjöld í lágmarki
Þetta afbrigði líkamsrækar nýtur vaxandi
vinsælda um allan heim. Svokallaðar jaðar
íþróttir eru í sókn meðal almennings. Þar
á meðal er fjölhreysti – crossfit – en Annie
Mist Þórisdóttir, heimsmeistari í greininni,
æfir og starfar hjá Boot Camp.
Þegar fyrsta námskeiðið var haldið árið
2004 komu tuttugu manns. Æfingarnar
vöktu þó mikla athygli vegna aðfaranna,
komust í fréttirnar og Arnaldur Birgir
seg ir að það hafi verið mikilvæg kynning.
Raunar eina kynningin. Núna æfa um 1.000
manns reglulega hjá Boot Camp og æfingar
eftir kerfi þeirra Birgis og Róberts hefjast í
Danmörku í haust.
„Möguleikar fyrirtækisins á vexti liggja
bæði í að auka umsvifin hjá því sjálfu og í
nafnleigu,“ segir Birgir. Nafnleigan hentar
starfsemi af þessu tagi vel. Rétturinn til að
nota æfingakerfið er leigður ásamt nafninu
en útbúnaður er lítill.
„Það var nánast enginn stofnkostnaður
í upphafi. Þetta er líkamsrækt án tækja og
tóla og án sérstakrar aðstöðu. Það er bara
að byrja úti eða inni, sama í hvaða hús næði;
bílakjallara eða lagerlofti,“ segir Birgir.
Byggt upp á eigin fé
Núna eru tíu þjálfarar í vinnu hjá Boot
camp og fólk getur bæði sótt tíma þar og
eins er boðið upp á þjálfun í fyrirtækjum.
Marel hefur til dæmis verið viðskiptavinur
í fimm ár. Áhöldin eru heimagerðir sand
pokar, kassar til að stíga upp á og gömul
bíldekk. Aðalatriðið er að taka á.
„Við Róbert unnum báðir aðra vinnu
með í upphafi. Við byrjuðum smátt og án
tilkostnaðar og skulda. Þannig varð til eigið
fé, sem við höfum svo notað til að bæta
aðstöðuna. Næsta skref er að auka umsvif
in,“ segir Birgir. Hann segir að æfingarnar
séu með minni hermennskubrag hjá þeim
en er oft erlendis við þjálfun af þessu tagi.
Það er lögð áhersla á styrk, þrek og þol.
Sérstakir „grænjaxla tímar“ eru í boði fyrir
þá sem ekki treysta sér í almenna tíma.
Allir nýliðar byrja á kynningarvikum þar
sem þeir geta aðlagast dagskránni sem í
vændum er. Þá er og boðið upp á barna og
unglinganámskeið.
„Æfingarnar eru krefjandi en um leið
lögð áhersla á hinn félagslega þátt. Þetta
eru hópæfingar þar sem félagsskapurinn
skiptir líka máli,“ segir Birgir.
Byrja smátt og skulda ekkert
Arnaldur Birgir Konráðsson hjá Boot Camp: „Þegar á reynir getur fólk meira en það heldur …“
Boot Camp
viðTöl: gíSli KriSTjánSSon
myndir geir ólafSSon
Boot Camp er dæmi um sprotafyriræki stofnað kringum eina einfalda hug-
mynd sem ekki kostaði neitt að koma í framkvæmd. Það var bara að byrja
og sjá hvort ekki fyndust einhverjir viðskiptavinir.
sprotar og frumkvöðlar