Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 12

Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 12
12 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 í kjölfar uppsagna Ingrid Kuhlman segir að í kjölfar uppsagna ríki oft spenna í sam­bandi atvinnurekenda, stjórnenda og þeirra starfsmanna sem áfram vinna hjá fyrirtækinu sem valdi óöryggi og streitu. Hún bendir á að starfsumhverfi starfsmanna sé gjörbreytt og að þeir séu yfirleitt undir meira álagi vegna þess að þeir þurfa að setja sig inn í önnur verkefni og axla jafnvel meiri ábyrgð en áður. Ingrid bendir á fimm góð ráð til að hvetja starfsmennina áfram. „Þeim líður oft illa og í fyrsta lagi þurfa þeir að fá tíma til að átta sig. Hluti af þessu er að viðurkenna tilfinningar eins og reiði, pirring, sorg og óöryggi.“ Í öðru lagi skiptir máli að tryggja gott upplýsingaflæði. Ingrid nefn- ir að gott sé fyrir stjórnendur að útskýra hvers vegna uppsagnirnar séu nauðsynlegar og hvernig hafi verið staðið að valinu á þeim sem var sagt upp. „Svo þarf líka að veita upplýsingar um atriði eins og stöðu fyrirtækisins, framtíðaráform og framtíðarsýn til að koma í veg fyrir að fólk upplifi tilgangsleysi.“ Ingrid segir að í þriðja lagi sé mikilvægt að þjálfa stjórnendur og á hún þá sérstaklega við millistjórnendur því þeir séu oft í mestum tengslum við starfsmennina og traust á þeim sé mikilvægt fyrir holl­ ustu starfsmanna á umbrotatímum. Í fjórða lagi er mikilvægt að hvetja til þátttöku vegna þess að þá finnst fólki það hafa meiri stjórn á aðstæðum og það getur dregið úr óöryggi. Í fimmta lagi má ekki gleyma að fjárfesta í starfsmönnunum. Það er gott að bjóða þeim upp á endurmenntun og markþjálfun, sér­ stak lega ef þeir eru að setja sig inn í ný hlutverk. HOLLRÁÐ Í STJÓRNUN Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar: nú er tími góðs samningafólks Samkeppni um góða viðskiptavini er hörð og þeir sem eru að kaupa rekstrarvörur, hvers kyns þjónustu og aðföng til rekstr arins eru almennt í góðri samningsstöðu í dag. Því skiptir máli að fara vel undirbúinn til samninga við birgja og að starfsmenn hafi góða þekkingu á samningatækni. Þegar gengið er til samninga nær sá aðili almennt meiri árangri sem er betur undir búinn, þekkir grunnatriði í samningatækni og þekkir hags­ muni gagnaðilans betur. Markmið allra samninga er að sjálfsögðu það að ná niðurstöðum sem báðir aðilar eru sáttir við. Meðal ann- ars þess vegna vekur það furðu mína að samningahús ríkissátta­ semjara skuli kallað Karphúsið. Þar á að ná sáttum, ekki karpa.“ Thomas segir að mestur hagnaður á stystum tíma verði til við samningaborðið. Líka mesta tapið. „Sá sem hefur meiri þekkingu á samningatækni og hefur undirbúið sig fyrir samningafundi er sá sem hagnast mest. Við samningaborðið gilda nokkur grunnatriði eins og það að festa verðbil í upphafi samninga („anchoring“), þekkja sitt „BATNA“ og hafa alltaf valkosti í stöðunni. Lykilspurning- ar áður en lagt er af stað í samningaviðræður eru: Hverju vil ég ná fram, hverjir eru valkostir mínir og hvers virði eru þeir?“ Hann segir að samningar snúist um að ná hámarksávinningi fyrir báða aðila. „Góður samningamaður samþykkir aldrei fyrsta boð. Hann tekur sér tíma og finnur sameiginleg markmið. Hann biður alltaf um meira en hann býst við að fá og býðst ekki til að mætast á miðri leið. Ef beðið er um tilslökun biður góður samningamaður alltaf um eitthvað í staðinn. Hann er alltaf tilbúinn að ganga frá samningaborðinu og hefur aðra kosti í stöðunni.“ STJÓRNUN Thomas Möller, framkvæmdastjóri Rýmis: þau hafa orðið valdið liggur hjá stjórninni FASTEIGNAMARKAÐURINN Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala: Ingibjörg Þórðardóttir segir að í hefðbundnu árferði róist fast-eigna markaðurinn yfir sumarleyfistímann en þetta sumar hafi verið með óvenjulegum hætti þar sem meira hefur verið að gera en endranær. „Mér finnst vera mikið líf á fasteignamarkaðnum og hreyfing á öllum gerðum húsnæðis. Unga fólkið er í auknum mæli að koma út á markaðinn og koma foreldrar því iðulega til aðstoðar við fyrstu fasteignakaup.“ Ingibjörg segir að eins og tölur Þjóðskrár Íslands sýni hafi vísi- tala íbúðaverðs hækkað jafnt og þétt. „Vísitalan seig þó um 0,4 stig á milli júní og júlí; hún fór lægst í 302,1 en er nú 320,8 og að öðru leyti hefur verið hækkun fasteignaverðs allt þetta ár. Ég tel að stjórnvöld eigi að styðja við sjálfseignarstefnuna og sköpuð verði tækifæri fyrir fólk að festa kaup á eigin húsnæði enda má líta á það sem sparnað til lengri tíma litið þegar fólk býr í eigin húsnæði og greiðir smám saman niður áhvílandi lán. Brýnt er að horfa til þess hvernig lánafyrirkomulagi er háttað á húsnæðismark aði í nágrannalöndum okkar. Í þeirri stöðu sem er uppi nú í þjóð félaginu, þegar bæði ríki og sveitarfélög hafa neyðst til að selja arðbærar eignir, finnst manni sérkennilegt að talað sé um að nú eigi þessir sömu aðilar að fara að standa í umfangsmiklum fasteigna rekstri með útleigu íbúðarhúsnæðis. Þá spyr ég hverjir eru það í raun sem eiga að verða leigusalar. Miklu farsælla er að mínum dómi að þeir sem kaupa sína fyrstu íbúð fái vexti niðurgreidda eða aðrar leiðir verði skoðaðar, hugsanlega í gegnum skattakerfið.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.