Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 14
14 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
V
ið sjáum þarna tækifæri til vaxt-
ar yfir vetrarmánuðina og erum
að bregð ast við sterkari eftir
spurn en við gerð um ráð fyrir,“
segir Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmda stjóri Icelandair.
Það ætti engum að koma á óvart að Wash
ington DC skuli hafa slegið í gegn sem ferða-
mannaborg hjá Íslendingum. Borgin hefur allt
til að bera og er sú borg í Bandaríkjunum
þar sem saga, menning og pólitík blandast
hvað sterkast, auk þess sem hún er ein
falleg asta borg Bandaríkjanna. Í Washington
blómstrar mannlífið og mikið er um að vera,
verslanir eru margar og stórar og veitinga
staðir glæsilegir og fjölbreyttir, þannig að
í raun ætti engum að leiðast þegar þessi
merkilega borg er heimsótt og skoðuð.
Sterk tilfinning fyrir sögunni
Jafnvel þótt Washington sé engin smáborg
er hún heldur ekki New York og þar liggur
einn af höfuðkostum hennar. Flesta skoð un-
arverða staði, söfn, minnismerki og veit inga-
staði má finna á tiltölulega litlu svæði. Mælt
er með að hefja skoðunarferð á National
Mall. Á vegi ferðalangsins verða m.a.
Washington-minnismerkið, Hvíta húsið,
þing húsið, mögnuð stytta af Abraham Lin
coln og Thomas Jefferson og Víetnamvegg-
urinn, sem lætur engan ósnortinn. Í þess ari
ferð fær maður sterka tilfinningu fyrir
sögunni, bæði fortíð og nútíð. Eins er gaman
að ganga um söguslóðir í Georgetown og
njóta lífsins á börum og veitingahús um á
árbakkanum. Washington DC býður einnig
upp á einstakt úrval safna í heimsklassa,
frægar stofnanir eins og National Museum
of Natural History og National Gallery of Art,
sem allar eru í göngufæri hver frá annarri.
Vel tekið á móti ferðamönnum
Fyrir utan valdastofnanir og söfn í borginni
er margt annað áhugavert að sjá og skoða.
Fólkið í borginni er upp til hópa mjög vinsam-
legt og tekur vel á móti ferðamönnum
enda vant því að þangað komi nýir íbúar
regl ulega. Sem dæmi eru tugir erlendra
sendiráða í borginni og fólk sem starfar þar
kemur og fer á nokkurra ára fresti. Þetta
gerir það m.a. að verkum að í borginni
er skemmtileg flóra góðra veitingastaða.
Hreinlæti er mikið í Washington og borgin
björt með breiðstrætum og torgum og ekki
tekur nema um 50 mínútur að ganga þvert
yfir miðborgarkjarnann frá Kínahverfinu
að Georgetown. Þá má geta þess að í
Washington DC er ekki aðeins tækifæri til
að upplifa eina af merkustu borgum heims,
heldur er aðgangur greiður að allri austur
strönd Bandaríkjanna í bíl.
Frægar byggingar og einstök söfn
Eins og áður segir er í Washington mikill
fjöldi merkra og sögufrægra bygginga og
einstakra safna, sem eru að hluta eða öllu
leyti opin almenningi.
Capitol er setur neðri deildar þingsins
með 435 þingmenn og öldungadeildar
með 100 þingmenn. Forhlið hússins snýr í
austur, þar sem álitið var að borgin myndi
stækka í þá átt, en þar sem svo fór ekki snýr
Capitol bakhliðinni að öðrum aðalbygg ing-
um í borginni og miðborginni sjálfri. Embætt-
istaka forseta Bandaríkjanna fer fram á
breiðum þrepum aðalinngangsins.
Hæstiréttur (Supreme Court) er opinn til
skoðunar mánudaga til föstudaga kl. 09:00-
16:30. Húsið var byggt á árunum 1929-35
úr Vermont-marmara af Cass Gilbert. Það
líkist stóru hofi með einum stórum sal,
þar sem níu dómarar sitja og kveða upp
úrskurði sína undir kjörorðunum „Jafnrétti
fyrir lögum“.
Þingbókasafnið er bæði þing- og lands-
bókasafn og hið stærsta í Bandaríkjunum.
Það var reist 1888-97 úr graníti með Par-
ís ar óperuna sem fyrirmynd. Innanhúss-
skreytingar eru eftir fimmtíu bandaríska
lista menn, málverk, höggmyndir, litskrúðugur
marmari og gyllingar.
Ameríska listasafnið er hið eina sinnar teg
undar í Bandaríkjunum. Það var nefnt eftir
kynblendings-þrælnum Frederick Douglass
(1817-95), sem var ráðgjafi forsetanna
Lincolns og Grants.
Flug- og geimferðasafnið (National Air- and
Space Museum) var opnað 1976. Þróun
flugs og geimferða er skýrð í 23 sölum.
Hirshhorn-safnið er fögur hringlaga marm-
arabygging, sem Smithsonianstofnunin
opnaði árið 1974 fyrir stærsta einkasafn
í heimi. Í safninu eru m.a. 48 verk eftir
Picasso og 47 eftir Matisse Einnig er fjöldi
höggmynda í styttugarðinum við safnið.
Smithsonianstofnunin er úr rauðum sand
steini í síðnormönskum stíl. Stofnunin hýsir
mörg mismunandi söfn. Safnmunir voru
orðnir meira en 50 milljónir þegar gripið var
til þess ráðs að skipta þeim á milli ýmissa
annarra safna í grenndinni.
Þjóðlistasafnið (National Gallery of Art) Eitt
athyglisverðasta listasafn heims (35.000
verk) með listaverkum hvaðanæva og frá
öllum tímum. Hvíta húsið. Embættisbústaður
forseta Bandaríkjanna. Tveggja hæða,
hvítmálað hús, 52 metra langt og 26 metra
breitt með jónísku anddyri. Skoðunarferðir
daglega þriðjudaga til föstudaga. Oft langar
biðraðir á sumrin.
Óþrjótandi möguleikar
Þegar á heildina er litið á Washington DC
ekki að valda neinum vonbrigðum, mann
lífið er fjölskrúðugt og hvort sem farið er í
skoðunarferðir á sögufrægar slóðir eða rölt í
iðandi mannlífinu í Georgetown er Wash
ington borg sem býður upp á óþrjótandi
möguleika fyrir ferðalanginn. Flestir sem
þangað koma sem ferðamenn í stutta
heim sókn sækja þangað aftur enda býður
borg in upp á ótrúlega margt spennandi að
skoða og býr yfir mikilli sögu, auk þess að
vera höfuðborg Bandaríkjana.
Fjölbreytt mannlíf í bland við sögu
frægar byggingar og söfn
Washington DC er ein átta borga sem Icelandair flýgur áætlunarflug til í Norður-Ameríku. Áætlun ar-
fl ug hófst til borgarinnar í maí og átti upphaflega að standa fram í september en í ágúst var ákveðið
að framlengja fyrirkomulagið til 8. janúar 2012 og fljúga fjórum sinnum í viku og að áætlunarflugið
hefjist síðan aftur af fullum krafti 27. mars.
Með Icelandair til Washington DC
Hausttilboð icElandair
til WasHington dc
Þegar flogið er til Washington DC með ice land-
air er lent á Dulles international-flug vellinum
sem er í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá
borginni. Á haust mán uðum er icelandair með
mjög góð helgar tilboð til Washington DC.
nánar um tilboðin á www.icelandair.is.
TexTi: Hilmar KarlSSon
fErðalög