Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 16
16 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Í stuttu máli
Hrun á hrun ofan erlendis
Mikið verðfall hefur einkennt hlutabréfamarkaði vestanhafs og í Evrópu undanfarna tvo
mánuði og enginn veit hvenær botninum verður náð í þeim efnum. Ofsahræðsla greip
um sig þegar Standard & Poor’s lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna í byrjun ágúst sem
í raun þýddi auknar efasemdir um að Bandaríkin gætu greitt skuldir sínar. Almennum
fjárfestum finnst sem batinn í efnahagslífi Bandaríkjanna og Evrópu láti standa á
sér, skuldavandi fyrirtækja og einstakra ríkja sé enn of mikill, atvinnuleysi minnkar
ekki, spár um hagvöxt eru dekkri en áður og fjárhagsvandi Miðjarðarhafsríkjanna á
evrusvæðinu er meiri og erfiðari en flestir trúðu. Þýskir bankar eru sömuleiðis skuldugri
en margur heldur og þekktustu og stærstu bankar Bretlands, sem fengu aðstoð ríkisins
haustið 2008 og forðað var frá falli, hafa tapað öllu því fé sem skattgreiðendur lögðu í þá.
En hvenær verður botninum náð? Það er nú það!
Dow Jones-vísitalan
Verðfall á hlutabréfum í kjölfar þess að Standard & Poor’s lækkaði
lánshæfismat Bandaríkjanna sýnir sig best í lækkun Dow Jones-
hlutabréfavísitölunnar. Hún er samnefnarinn.
Gullæði grípur um sig
Hrun hlutabréfa hefur leitt til gullæðis. Ekki er grafið eftir gulli líkt og í
gullæðinu í Bandaríkjunum á nítjándu öld heldur fjárfest í gulli.
Dollarinn hefur heldur styrkt sig gagnvart evru síðustu mánuðina eftir
að hafa gefið mjög eftir allan síðasta vetur.
Dans dollara gagnvart evru
Miklar umræður hafa verið
í við skiptalífinu um hagnað
bankanna og hvaðan hann
komi þegar flestir eru sam-
mála um að lítið sé að gerast
í viðskipta lífinu. Bankarnir
þrír högnuðust um 70 millj
arða á síðasta ári eftir skatta
og tölur þessa árs benda til
að hagn aðurinn verði ívið
meiri á þessu ári; sumir spá
80 millj örðum króna.
Hvaðan
kemur
hagnaður
bankanna?
Arion banki tilkynnti nýlega að hagn
aður fyrstu sex mánuði ársins hefði
numið 10,2 milljörðum króna eftir
skatta samanborið við 7,9 milljarða
króna á sama tímabili í fyrra. Bankinn
segir að afkoman umfram áætlanir
skýrist einkum af endurmati á útlána
safni bankans á fyrirtækjasviði.
Innan viðskiptalífsins finnst mörgum
þessi hagnaður mikill í ljósi þess að
landsframleiðslan stendur nánast
í stað á botninum, atvinnuleysi er
mikið, fjárfestingar litlar og fyrirtæki
eiga erfitt með að fá lánað hjá bönk
unum.
En hvaðan er þá þessi hagnaður
kominn? Þau eignasöfn sem bank
arnir tóku yfir með afslætti frá gömlu
bönkunum gefa augljóslega vel af sér
og hagnaður bankanna liggur fyrst
og fremst í endurmati á yfirdregnum
útlánasöfnum með stórkostlegum
afslætti frekar en að reksturinn sjálfur
mali gull.
Fram kom í svari Árna Páls Árna
sonar efnahags og viðskiptaráðherra
til Einars Guðfinnssonar að nýju
bankarnir hefðu afskrifað 503 mill j
arða á árunun 2009 og 2010. Þar af
hefðu fyrirtæki fengið afskrifaðan 481
milljarð. Þrátt fyrir að bankarnir þrír
hafi afskrifað 503 milljarða á þessum
tveimur árum högnuðust viðskipta
bankarnir þrír um 70 milljarða eftir
skatta á síðasta ári.
Bankarnir
afskrifa
503
milljarða?