Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Qupperneq 22

Frjáls verslun - 01.07.2011, Qupperneq 22
22 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 að stæður,“ segir Jakob. „Við þekkt­ um ekkert á heilbrigðiskerfið en var ráð lagt að kaupa tryggingu til að fá fæð ingarþjónustu – en þú tryggir ekki eftir á! Barnið var að koma í heiminn en þetta bjargaðist allt.“ Þriðja barnið fæddist síðan í Þýskalandi. ferill í viðskiptum Námið var strangt og eiginlega heppni að enginn möguleiki var á að æfa hand­ bolta þarna vestra. Að tveimur árum liðnum, vorið 1995, var MBA-prófið í höfn og Jakob fór aftur í málninguna; fyrst stutta sumarferð til Singapúr milli ára í námi að vinna fyrir danska fyrirtækið Hempel en svo til bandaríska efnarisans Rohm and Haas, sem nú er hluti af Dow Chemical. Fáir hafa heyrt þessa fyrirtækis getið en það er þó meðal stærstu fram leiðenda heims á vatnsborn­ um efnum til dæmis í málningu. Eftir þetta tóku við níu ár í þjón-ustu Rohm and Haas. Fyrst í Þýskalandi sem markaðsstjóri fyrir Evrópu, svo á heimsvísu og loks framkvæmdastjóri efnaverksmiðja fyrir tækisins í Evrópu og Afríku. Þá í höfuðstöðvunum í Fíladelfíu árin 1999 til 2002 sem framkvæmda­ stjóri vöruþróunar. Síðan aftur til Þýska lands 2002 sem markaðsstjóri og framkvæmda stjóri verksmiðja Rohm and Haas í Evrópu, Mið­ Austur lönd um og Afríku. líkar ekki að tapa Í Þýskalandi bjó fjölskyldan í Fran- kfurt. Þar var þá einnig Jón Karl Ólafs son, stöðvarstjóri hjá Flugleiðum og nú forstjóri hjá PrimeraAir. Þeir kynntust fljótt en höfðu ekki hist áður. „Við hittumst fyrir tilviljun á ein - hverjum Íslendingadegi og höfum verið vinir síðan,“ segir Jón Karl. „Ég er mjög upp með mér af að hafa unnið Jakob, þennan mikla íþrótta­ mann, í fyrsta leik okkar í skvassi. Hann hafði ekki leikið skvass áður!“ „Við förum enn reglulega í skvass og Jakob dregur mig með í ræktina,“ segir Jón Karl. „Hann segist vera einkaþjálfari minn.“ „Jakob er mikill fjölskyldumaður og vinur vina sinna en ekki mikið fyrir að trana sér fram,“ segir Jón Karl. „Hann er mikill keppnismaður og það hefur stundum bitnað á honum sjálfum og skvassspöðunum en ekki á öðrum. En honum líkar ekki að tapa.“ yfirvegun best Jón Karl lýsir Jakobi sem réttsýnum stjórnanda sem taki ákvaðanir út frá því sem hann telji rétt. „Hann er yfirvegaður stjórnandi, stendur mjög sterkt faglega og hefur að auki mikla reynslu í alþjóðaviðskiptum. Því er ég viss um að hann er réttur maður á rétt­ um stað hjá Promens,“ segir Jón Karl. En hvernig lýsir Jakob sjálfur sér sem stjórnanda? Annar Valsmaður, Albert Guðmundsson, sagði að reynsla sín úr fremstu línu í íþróttum hefði kennt sér að taka ákvaðanir á „splittsekúndu“. Hefur íþróttaferillinn áhrif á Jakob sem stjórnanda? Jakob hlær. „Ég held að stjórnandi verði að forðast að taka ákvarðanir á splittsekúndu,“ segir hann. „En stjórnandi má ekki heldur hika. Ef skotið kemur aldrei verður heldur aldrei mark.“ Hann telur þó að öll reynsla á lífs leiðinni nýtist stjórnanda þótt það sé ekki endilega með beinum hætti. „Menn byggja alltaf á öllu því sem þeir hafa reynt. Það er góð reynsla að hafa verið í liði og náð árangri,“ segir Jakob. framleiðsluferli En hann hefur mesta trú á að kanna aðstæður ítarlega, rannskaka ferlin og taka svo ákvörðun á grundvelli þess. Breytingar á framleiðsluferlum voru einmitt vinna Jakobs hjá Rohm and Haas. Hann vann við að endurskip­ uleggja og samræma ferlin allt frá frumframleiðslu til sölu – allt með það að markmiði að hámarka þjón- ustu og afköst en lágmarka kostnað og fjárbindingu. Jakob segir að mikið af starfinu fra­ mundan hjá Promens fjalli um þetta sama. Fyrirtækið er með umfangs­ mikla framleiðslu á margháttaðri vöru víða um heim. Það óx mjög hratt á velgengnisárunum fyrir hrun; ný fyrirtæki voru keypt og nú liggur fyrir að samræma reksturinn enn betur. En Jakob segir að það standi ekki til að kaupa nýtt eða selja gamalt nema þess sé þörf út frá núverandi stefnu og rekstri. Handboltinn er eitt, efnafræðin annað. Þarf efnafræðing til að reka efnafyrirtæki eins og Promens? „Nei, það þarf ekki kunnáttu í efna ­ fræði til að reka Promes,“ svarar Jakob ákveðið. „Mín reynsla hjá Rohm and Haas var þó sú að það kom sér oft vel að tala sama tungumál og efnafræðing­ arnir hjá fyrirtækinu. Efnafræðin og þekking á þessari framleiðslukeðju spill ir því síst fyrir.“ saltfiskur og gen Milli Rohm and Haas og Promens eru sex ár á ferli Jakobs og þá tókst hann á hendur verkefni á öðrum sviðum. Sumarið 2004 var SÍF – gamli salt- fisk risinn Sölusamband ís lenskra fiskframleiðenda – komið í hendur nýrra eigenda sem vildu endurskipu­ leggja reksturinn og breyta áherslum. Hugmyndin var að snúa sér að meiri fullvinnslu utanlands. Á sama tíma voru breyttar aðstæður hjá fjölskyldu Jakobs heima á Íslandi og hann ákvað að hætta hjá Rohm and Haas og taka við SÍF. Þetta var tveggja ára vinna sem leiddi til mikilla breyt­ inga og bættrar afkomu af starf seminni og fyrirtækið fékk nafnið Alfesca. Þá réðst Jakob enn í vistaskipti og fór til deCODE þar sem hann var næstu fjögur árin. Erfið ár því deCODE lenti í hremmingum, bæði vegna þess að banki Lehman­ bræðra féll sumarið 2008, en bankinn hafði keypt og haft umsjón með skul­ dabréfum í eigu deCODE, rekstrarfé fyrirtækisins. Þessi bréf voru í skilum en lítill eftirmark aður með þau á þessum árum og bankinn hafði raunar lofað að borga bréfin út helgina sem hann féll. Annað er að prófanir á nýjum hjarta- og æðalyfjum eru almennt dýrar og taka langan tíma. Það var einmitt á því sviði sem deCODE leitaði samstarfs­ samninga við stærri lyfjafyrirtæki, en mörg þeirra drógu sig út af þessu sviði í kjölfar áfalla á seinni stigum þróunar á árunum 2006­2008. Á þessum tíma var hafin uppbygg ing á sölu- og markaðsstarfi á erfða prófum og þjónustu frá Íslandi, sem skilaði um­ talsverðum og vaxandi tekj um, en því varð að hætta í þessum hremmingum. En þrátt fyrir allt þetta hefur Jakob mikla trú á framtíð deCODE. „Fyrirtækið var langt á undan sinni samtíð,“ segir hann. „Tæknin sem það byggir á er núna fyrst að verða fullþróuð, fyrirtækið er í dag að gera sínar stærstu uppgötvanir og getur vonandi farið að byggja upp sölu- og markaðstarf aftur áður en langt um líður.“ kapp með forsjá Jafnframt því að vera þróunarstjóri hjá deCODE hefur Jakob verið í stjórn Promens frá árinu 2007 og því nákunn­ ugur rekstri félagsins þegar hann tók við forstjórastarfinu nú í sumar. Bernhard Petersen segir að kapp með forsjá hafi einkennt Jakob sem íþróttamann. „Eiginleikar úr íþrótt­ um geta nýst í starfi,“ segir Bernhard. „Jakob lagði alltaf upp með það að markmiði að sigra en hann var alltaf skynsamur og agaður á vellinum, þekkti takmörk sín og reyndi ekki að fara fram úr sjálfum sér. Leiðir okkar hafa ekki legið saman faglega en ég gæti trúað að þessir eiginleikar fylgdu honum úr íþróttunum.“ „Ég held að stjórnandi verði að forðast að taka ákvarðanir á splittsekúndu.“ nærmynd Landsbankinn 410 4000landsbankinn.is J ó n s s o n & L e ’m a c k s • jl .i s • s Ía Nýsköpunarþjónusta Landsbankinn kynnir þjónustu sem er sérsniðin að þörfum nýsköpunar- og sprotafyrirtækja. Þessi nýja þjónustuleið endur- speglar þá stefnu Landsbankans að vera hreyfiafl í atvinnulífinu. Lykilþættir þjónustunnar eru greiður aðgangur að þekk- ingu, faglegri ráðgjöf og almennri fjármálaþjónustu. Þeir sem eru með góða við- skiptahugmynd geta sótt um lán hjá Landsbankanum, sem eru á hagstæðari vaxtakjörum en hefðbundin yfirdráttarlán. Þá mun Landsbankinn árlega veita ný sköpunar styrki úr samfélagssjóði bankans. Frumkvöðlar geta leitað til sérstaks ráðgjafa með leiðsögn við stofnun fyrirtækis. Þjálfunarhelgar fyrir frum- kvöðla verða haldnar vítt og breitt um landið í samstarfi við Innovit. Að auki má nálgast efni á landsbankinn.is um hvernig finna megi hug- myndum farveg og taka fyrstu skrefin í fyrirtækjarekstri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.