Frjáls verslun - 01.07.2011, Page 52
52 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Pierre Omidyar bjó til uppboðsvefinn eBay á
einni helgi í sumarfríinu:
FæDDUR TIL að
NÁ ÁRaNGRI
Pierre Omidyar er ekki fátæki pilturinn sem
fyrir slembilukku datt niður á góða hug mynd
og varð að lokum ríkur eftir langa bar áttu. Nei,
hann hafði bæði menntunina og reynsluna og
bjó við aðstæður sem einmitt voru líklegar til
að skila góðri viðskipta hug mynd.
Enginn veit hve margir menn eru réttir menn á réttum stað en ná samt ekki árangri og verða ekki frumkvöðlar þrátt fyrir bestu aðstæður. Þetta geta menn aldrei vitað. Því er ekki hægt að telja það sjálfgefið að Pierre Omidyar yrði moldríkur á að nýta ný tækifæri sem
netið skapaði. Þar þurfti líka frumkvæði og áræði til. Hann á hug
myndina að netuppboðsfyrirtækinu eBay. Hagnaðurinn er núna
talinn tæpir tveir milljarðar Bandaríkjadala á ári og frumkvöðull
inn, sem er rétt rúmlega fertugur, einbeitir sér að góðgerðarstarf
semi eins og ríkum mönnum sæmir í Bandaríkjunum.
Á eBay er hægt að kaupa nánast hvað sem er. Ísland hefur ver
ið boðið til sölu þar. Fólk sem vill losna við óþarfan sófa setur
garminn á eBay og bíður þess að einhver bjóði í. Dæmin eru ótelj
andi. Þetta er uppboðsvefur fyrir allt mögulegt og kostar bara smá
peninga að vera með. En þegar margir nota vefinn verða margir
smápeningar að milljörðum dala.
eBay er líka skilgetið afkvæmi „netbólunnar“ svokölluðu. Þeirrar
sem sprakk árið 2000. Bólan sú varð til þegar fjárfestar fengu trölla
trú á nýjum netlausnum, sem síðan reyndust óraðbærar og bólan
sprakk. eBay er þar undantekning. Hugmyndin er góð.
dund í sumarfríinu
Pierre Omidyar bjó eBay til sumarið 1995. Það tók hann heila helgi
í sumarfríinu að setja upp vefinn, sem enn er í aðalatriðum óbreytt
ur að því frátöldu að hann átti í upphafi að heita echobay. Lénið
var frátekið svo eBay varð að duga. Það er meðal verðmætustu
vörumerkja í dag.
Pierre Omidyar var á þessum tíma í vinnu hjá einu af dótturfyrir
tækjum Apple. Hann fékkst þar við netlausnir, sérstaklega aðferðir
til að þróa viðskipti á netinu. Því var engin tilviljun að hann bjó til
eBay á einni helgi.
Pierre Omidyar fæddist í París árið 1967, sonur innflytjenda frá
Íran. Foreldrar hans voru af auðugu fólki komin og send til Parísar að
nema við háskóla þar. Móðirin í málfræði, hún er doktor í greininni
frá Sorbonne og virtur vísindamaður, og faðirinn er skurðlæknir.
Bestu aðstæður
Fjölskyldan flutti til Washington þegar Pierre var sex ára. Hann
gekk þar í bestu skóla yfirstéttarfólks, afburðanemandi sjálfur, og
var orðinn tölvuverkfræðingur aðeins 21 árs gamall. Í grunnskóla
gekk Pierre til dæmis í einkaskóla sem lagði áherslu á þroska og
frumkvæði einstaklingsins. Þar voru aðeins 12 börn í bekk og ekki
spurt um kostnað við skólahaldið.
Pierre Omidyar er þannig frumkvöðull sem byggir árangur sinn
á góðri menntun allt frá barnæsku, starfsreynslu á sínu sviði og
miklu hugmyndaflugi. Núna er talið að Pierre Omidyar eigi fjóra
til fimm milljarða Bandaríkjadala. Hann er númer 145 á síðasta
lista Forbes yfir ríkustu menn heims.
Hann á enn drjúgan skerf af hlutafé eBay en vinnur einkum við
fjárfestingasjóð sinn, Omidyar Network, sem er ætlað að styðja við
bakið á efnilegu fólki svo það nái árangri í viðskiptum. Og hann
og kona hans, Pam, gefa mikið fé til góðra mála.
Mary Kay Ash, stofnandi eins stærsta
snyrtivörufyrirtækis heims:
GJaFIR
BORGa SIG
Mary Kay er eitt þekktasta vörumerkið á
snyrti vörumarkaði í heiminum. Vörurnar bera
nafn konu sem í dag er talin í hópi fremstu
frum kvöðla í bandarískum viðskiptum.
Mary Kay Ash var amerísk, mjög amerísk, og saga hennar er dæmigerð fyrir „ameríska drauminn“. Hún var konan sem vann sig upp frá fátækt til ríkidæmis og frægðar. Þegar aðrir krakkar voru úti að leika sér sat hún heima og
sinnti berklasjúkum föður sínum en móðirin vann á veitingastað til
að afla hemilinu tekna. Og móðirin varð oft að segja við barnunga
dóttur sína: Þú getur það! Þau orð urðu síðan að kjörorðum hins
dæmigerða ameríska frumkvöðuls: Mary Kay bjó til alþjóðlegt
stórfyrirtæki úr nær því engu. En það tók tíma. Núna eru 10 ár liðin
frá því Mary Kay lést. Fyrirtækið Mary Kay Inc. hefur haldið áfram að
Pierre Omidyar, hlaut bestu fáanlegu menntun og varð moldríkur.
Mary Kay Ash
er einn frægasti
frumkvöðullinn
í bandarískum
viðskiptum.