Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 53

Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 53
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 53 vaxa á þeim grunni sem hún lagði. Það er einn stærsti framleiðandi og seljandi snyrtivara í heiminum með söluskrif stofur í 37 löndum og á fastan sess meðal 100 stærstu fyrirtækja í Bandaríkjunum. Þá hefur Mary Kay um árabil verið í einu af efstu sætunum í kjöri Forbes­tímaritsins á „besta fyrirtæki að vinna í“. reis upp gegn óréttlæti En hver er sagan: Mary Kathleen Wagner fæddist í Hot Wells í Texas 12. maí 1918. (Hún taldi reyndar mikilvægt að konur leyndu aldri sínum og rétt fæðingarár varð ekki lýðum ljóst fyrr en eftir andlátið.) Fjölskyldan var fátæk og hafði ekki ráð á að kosta Mary til framhaldsnáms þrátt fyrir mikla námshæfileika. Hún giftist því ung, aðeins 17 ára, árið 1935, og eignaðist þrjú börn með fyrri manni sínum, Ben Rogers. Síðar giftist hún Melville J. Ash. Ben Rogers var hermaður og ekki mikill auður í búi þeirra hjóna. Mary Kay vann því úti og sýndi fljótt ótrúlega hæfileika við sölu ­ mennsku. Síðari heimsstyrjöldin fór illa með eiginmanninn og hjónabandið, þau skildu, en Mary Kay vann sig upp í að verða fastráðin við söludeildir hjá Stanley Home Products í Houston og svo hjá World Gift Company í Dallas. Þar þjálfaði hún m.a. unga pilta í sölumennsku og svo voru lærisveinarnir teknir fram yfir hana þegar kom að stöðu­ og launahækkunum. Það var þessi óréttur sem varð til þess að Mary Kay ákvað að sýna fyrri vinnuveitendum hvernig ætti að reka fyrirtæki. Og það gerði hún eftir 25 ár í þjónustu annarra. Hún stofnaði eigið snyrtivörufyrirtæki með einni sölubúð í Dallas árið 1963 og ákvað að bæta þar úr öllum göllunum, sem hún hafði áður kynnst í fyrirtækjarekstri. Bleikur Mustang Misrétti kynjanna var einn gallinn; skortur á viðurkenningu og umbun annar. Það tók hana tvö ár að verða milljónamæringur á að umbuna starfsfólki sínu fyrir vel unnin störf! Mary Kay varð fræg fyrir að gefa besta sölufólkinu bleikan Must­ ang og hún taldi að viðskiptavinirnir ættu líka að fá sína umbun fyrir að koma og kaupa vöruna. Þeir fengu gjafir – gjarnan bleikar. Núna er gildi umbunar almennt viðurkennt við stjórnun fyrirtækja. Og konur búa við sömu kjör og karlar hjá Mary Kay. Mary Kay lagði þannig áherslu á árangur í starfi; eftirsókn eftir veraldlegum auði og hvatti konur sérstaklega til að leita frama á vinnumarkaði. Um leið hélt hún fram gömlum amerískum fjöl­ skyldu gildum. Hún sagði: Þjónið fyrst Guði, sinnið svo fjölskyld­ unni og gætið vinnunnar eftir það! Það þarf sannan Ameríkana til að koma þessu öllu heim og saman. Steve Jobs, fyrrverandi forstjóri Apple: vIRðIR eKKI ReGLURNaR Steve Jobs er hættur hjá Apple öðru sinni. Áður var hann rekinn árið 1985 en kall aður til starfa á ný 12 árum síðar þegar fyrir tækið var komið að gjaldþroti eftir röð af mis heppn­ uðum nýjungum. Það er eins og ekkert nýtt heppnist hjá Apple nema Jobs detti það í hug. Steve Jobs hættir á toppnum. Fáum dylst að hann er í röð fremstu frumkvöðla í sögunni og snjall stjórnandi. Apple hefur vaxið mest vegna ákvarðana sem ekki standast skoðun í stjórnunarfræðunum. Til dæmis að setja nýja vöru á markað án þess að hafa rannsakað markaðinn fyrst. Jobs hefur haft endaskipti á hlutunum: Selt vöru sem engin mælanleg eftirspurn var eftir. Hann hefur sjálfur haft einfalda skýringu á af hverju þetta heppn­ ast: Fólk veit ekki hvað það vill fyrr en það hefur það í höndunum! Engin eftirspurn var eftir iPhone þegar hann kom á markað. Keppi­ nautarnir hlógu. Finnarnir snjöllu hjá Nokia hölluðu sér aftur í stóln um og brostu góðlátlega. Snjallsími – haha! En nýi síminn bjó til eftirspurnina. Þetta þarf ekki að koma á óvart. Ef fólk er spurt hvers það óskar óskar það sér yfirleitt ein­ hvers sem það þekkir. Frumkvöðlar verða að koma auga á nýjar og áður óþekktar óskir. Þannig koma nýjungar fram. Búddamunkur En af hverju er Steve Jobs svo sérstakur og umtalaður meðal frum ­ kvöðla og stjórnenda? Hefur hann meiri og betri menntun en aðir. Nei, bara miðlungsmenntun og einhverja reynslu af að búa til leikjatölvur. En það er margt annað merkilegt á ævi hans. Steve Jobs er hippi. Hann fæddist árið 1955 og var á tánings­ og fram á fullorðinsár reikull og leitandi. Vissi sjaldan hvað hann vildi ef frá er talið tímabil þegar hann var búddamúnkur. Foreldrar hans voru ógiftir stúdentar í Kaliforníu. Faðirinn sýrlenskur, Abdul­ fattah Jandali að nafni, en móðirin, Joanne Simpson, bandarísk. Þau gáfu strákinn hjónunum Paul og Cöru Jobs. Pilturinn komst í gegnum menntaskóla en datt út úr námi á fyrsta ári í háskóla. Hann sótti lausavinnu, einkum hjá fyrirtækjum sem tengdust rafeindaiðnaði og tölvum. Var sumarmaður hjá Hewlett­Packard og vann að tölvuleikjagerð hjá Atari. Tilgangur­ inn með vinnunni var að afla ferðafjár til Indlands til að fullnuma sig í búddisma. sló í gegn með Mac En á þessum lausamennskuárum komst hann í kynni við aðra unga og rótlausna menn, sem síðar urðu lykilstarfsmenn hjá Apple. Fyrsti sigur fyrirtækisins kom árið 1984 með Macintosh – litlu borðtölv­ unni með notendavæna umhverfinu. Eftir þetta hefur ferill Steves Jobs einkennst af bæði sigrum og ósigrum. Hann var rekinn frá fyrirtæki sínu, fór út í kvikmynda­ bransann með fyrirtækið Pixar og auðgaðist verulega á samstarfi við Disney. Og svo gerði hann Apple að stórveldi öðru sinni – iPhone, iPad, iPod og iTunes eru nýjungarnar sem hafa orðið til á seinni valdatíma Jobs hjá fyrirtækinu. Steve Jobs hefur lánast flest það sem hann hefur tekið sér fyrir hendur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.