Frjáls verslun - 01.07.2011, Page 58
58 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Í kjölfarið var Applicon á Íslandi stofnað og starfsmenn hugbúnaðardeildar Nýherja fluttust til Applicon. Árið 2007
var svo Applicon í Svíþjóð sett
á laggirnar. Hjá Applicon starfa
nú um 180 starfsmenn, þar af
um 60 starfsmenn á Íslandi.
Ingimar Guðjón Bjarnason,
framkvæmdastjóri Applicon,
segir að starfsemin byggi að
miklu leyti á nýsköpun; þróun
og hönnun eigin lausna. „Við
erum með sérstakt fyrirtæki
í Danmörku, sem var stofn að
utan um þróun einnar vöru hjá
okkur sem seld er á alþjóðleg um
markaði til stórra og þek
ktra viðskiptavina á borð við
Merc ed es Benz og GE. Þessi
ákveðna vara tengist öryg
gismálum en sá geiri er ört
vaxandi um allan heim. Sama
er uppi á teningn um í Svíþjóð
en þar erum við einnig með
vöru á sviði öryggis mála sem
við höfum þróað og selt m.a. til
Nordea og SEB til regluvörslu
á verðbréfaeign starfsmanna.
Á Norðurlöndum hafa menn
tekið þessari regluvörslu mjög
alvarlega sem ber þess vitni
hversu þroskaður bankageir
inn þarna er.“
Þróun nýrra lausna skapar
tækifæri til sóknar á erlenda
markaði.
Mesta þróunin og nýsköp un
in hjá Applicon fer fram hér
á Íslandi. „Við erum mikið í
að smíða okkar eigin lausnir
og erum með ákveðið ferli fyrir
nýsköpun sem byggir á nokk
urra skrefa ferli og virkum hug
myndabanka. Það fer ákveðinn
tími í að greina hugmyndirnar.
Þegar vörur eða hugmyndir komast yfir fyrsta stig
eyð um við meiri tíma í þær og
á því stigi er jafnvel prótótýpa
smíð uð – og við mátum vöruna
betur við markaðinn. Ef við
finn um fyrir áhuga hjá við
skipta fél ögum förum við yfir á
næsta stig og smíðum vöruna.
Þegar hún hefur verið hjá
við skiptavini í nokkurn tíma
för um við með hana í markaðs
setningu og dreifingu.
Vörurnar sem við höfum
þróað hérna er tæplega 20 %
af veltunni. Um tíu starfsmenn
sérhæfa sig í að búa til og
mark aðssetja nýjar vörur auk
þess sem þeir halda áfram að
þróa og þroska þær vörur sem
Applicon er með fyrir.
Þess má einnig geta að
okkur er að berast spenn
andi tækifæri bæði innan og
utan Evrópusvæðisins. Þessi
tæki færi eru einkum að berast
okkur vegna getu okkar til að
sinna nýsköpun.“
Applicon á Íslandi sérhæfir sig í ráðgjöf, þjónustu og þróun lausna fyrir SAP, Vigor- og Microsoft hugbúnað. Applicon, sem er dóttur-
fyrirtæki Nýherja hf., á rætur sínar að rekja til ráðgjafafyrirtækis í Danmörku sem stofnað var árið 1998 og Nýherji keypti árið 2005.
– mesta þróun og nýsköpun fyrirtækisins er á Íslandi
Við erum með sér-
fyrirtæki í Danmörku
sem var stofnað utan
um þróun einnar vöru
hjá okkur og hún er
seld á alþjóðamarkaði
til stórra og þekktra
viðskiptavina á borð
við Merzedez Benz
og GE.
Ingimar Guðjón Bjarnason er framkvæmdastjóri Applicon á Íslandi.
viðskiptahugmyndin
Applicon