Frjáls verslun - 01.07.2011, Page 60
60 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
Forráðamenn bandaríska tölvufyrirtækisins HewlettPackard ákváðu að opna skrifstofu á Íslandi
árið 1984 og var Frosti Bergsson
ráðinn framkvæmdastjóri. Árið
1990 dró HP úr rekstrinum hér
á landi sem leiddi til formlegrar
stofnunar félagsins í núverandi
mynd. „Ég og fleiri starfsmenn,
sem höfðum trú á félaginu,
keypt um reksturinn árið 1991 og
gerðumst hluthafar,“ segir Frosti.
Opin kerfi voru skráð í Ís
l ensku kauphöllina árið 1997 og
urðu að norrænni fyrir tækja
samsteypu á upplýsingatækni
sviði með starfsemi í Dan
mörku, Noregi og Svíþjóð auk
Íslands. Heildarfjöldi starfs
manna var þá um 700.
Frosti seldi sinn hlut árið 2004
en keypti aftur þremur árum
síðar Opin kerfi ehf. sem er
upp haflega einingin án starf
semi erlendis. Í dag er starf s
mannafjöldi um 110.
„Við sem keyptum félagið
1991 sköpuðum nokkurs konar
sprotafyrirtæki sem byggðist á
ákveðinni reynslu frá Hewlett
Packard en bættum við ýmsum
nýjum þáttum þannig að fyrir
tækið breyttist úr því að vera
útibú frá Hewlett Packard með
áherslu eingöngu á HPvörur í
það að vera alhliða upplýsinga
tækjafyrirtæki.“
fjölbreytt þjónusta
Opin kerfi þjóna í dag mörgum
stærstu fyrirtækjum landsins,
bæði hvað varðar hugbúnað
og vélbúnað. Fyrirtækið býður
upp á ráðgjöf og þjónustu við
rekstur upplýsingakerfa og
fyrir tæki og stofnanir geta tryggt
sér þjónustu Opinna kerfa sem
rekstraraðila tölvudeilda að
hluta eða öllu leyti.
Auk HP er Opin kerfi sölu og
þjónustuaðili við víðnetslausnir
frá Cisco og hefur sá þáttur
farið vaxandi í starfsemi félags
ins. Sömleiðis hafa margvísleg
ar hugbúnaðarlausnir byggðar
á Microsoft og Open Source
farið ört vaxandi. Meirihluti
starfs manna er sérfræðingar
með margvíslega þekkingu á
sviði tölvu og upplýsinga tækni.
„Við þjónum endursöluneti
um land allt sem selur búnað
frá heildsölu okkar. Einnig
erum við með eigin verslun
og ört vaxandi netverslun
þannig að við þjónum bæði
ein staklingum og fyrirtækjum.
Sérstaða okkar á markaðnum
er þó fólgin í þjónustu við
stærri fyrirtæki með flóknari
tölvubúnað.“
Frosti segir mikilvægt að hugað sé að stöðugri end ur
nýjun innan fyrirtækja. „Fyrir
tæki breytast mikið milli ára og
það koma sífellt ný tækifæri sem
þarf að skoða. Fyrirtæki mega
ekki staðna og stöðug nýsköpun
þarf að vera í gangi ef þau eiga að
geta lifað af harða samkeppni á
sínu sviði.“
„Fyrirtæki mega ekki staðna og stöðug nýsköpun þarf að vera í gangi ef þau eiga að geta lifað af harða samkeppni á sínu sviði,“
segir Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa. Fyrirtækið hefur þróast mikið frá því byrjað var að flytja inn vörur frá
Hewlett-Packard árið 1984.
stöðug nýsköpun nauðsynleg
„Við sem keypt um
félagið 1991 sköp
uð um nokkurs konar
sprotafyrirtæki sem
byggðist á ákveðinni
reynslu frá Hewlett
Packard en bættum
við ýmsum nýjum
þáttum þannig að
fyrirtækið breyttist
úr því að vera útibú
frá Hewlett Packard
með áherslu ein
göngu á HPvörur í
það að vera alhliða
upplýsingatækja
fyrirtæki.“
Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa.