Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 64

Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 64
64 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 Verslanir Ey­ m unds son eru elsta rekstrar­einingin innan fyrirtækis ins sem rekur sögu starfsemi sinnar aftur til ársins 1872 og er því jafnframt elsta bóksala landsins. Baldvin P. Dungal stofnaði ritfangaverslunina Pennann árið 1932. „Upp haf­ lega var fyrsta ritfangaverslun Pennans í Hafnarstrætinu í Reykjavík en frá þessum tíma hef ur starfsemin verið útvíkk­ uð og upp úr 1980 bættist húsgagnahlutinn við,“ segir Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins. „Við sjáum að saga fyrirtækis­ ins nær langt aftur í tímann og það er mjög góð tilfinning að vinna með svona rótgróin og sterk vörumerki sem hafa skapað sér fastan sess í lífi landsmanna. Það má með sanni segja að vörumerkin hafi þó elst vel því við leitumst sífellt við að gera ítarlegar þarfagreiningar til að geta boðið lausnir sem eru sérsniðnar að þörfum og óskum viðskiptavina hverju sinni.“ Í dag samanstendur Penninn af fjórum vörumerkjum: Penninn, Eymundsson, Griffill og Is­ landia. Reknar eru 18 verslanir víða um land og eru starfs­ menn um 350. Ingibjörg Ásta segir að þótt fyrirtækið haldi úti nokkrum vörumerkjum og starfsstöðvar séu dreifðar sé samræmt vinnulag, mark­ mið og gildi höfð að leiðar­ ljósi í daglegum störfum. Hjá fyrirtækinu er reynt starfsfólk sem er fljótt að lesa í breyttar þarfir markaðarins. „Fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum og þjónustu en umfram allt höfum við leitast við að hlusta á þarfir markaðarins í gegnum árin og þróa vöruframboðið í samræmi við það.“ fjölbreytt þjónusta „Fyrirtækjasvið Pennans býður fyrirtækjum upp á heildarlausn­ ir á sviði skrifstofuhúsgagna, ritfanga og rekstrarvara. Penninn þjónar breiðum hópi fyrirtækja með það að leiðarljósi að við­ skiptavinir geti ætíð gengið að fyrirhafnarlausri, þægilegri og fjölbreyttri þjón ustu.‘‘ Í dag eru tvær verslanir starfandi undir vörumerkjum Pennans; önnur með áherslu á ritföng og rekstrarvörur en hin býður upp á fjölbreytt úrval skrifstofuhúsgagna. „Á næst­ unni eru síðan fyrirhugaðir flutningar á fyrirtækjasviði og skrifstofu Pennans. Jafnframt mun húsgagnaverslun Pennans, sem heyrir undir fyrirtækja­ sviðið, flytja úr Hallar múla 4 yfir í nýja húsnæðið á Grensás­ vegi 11. Að sama skapi mun ritfangaverslun Pennans, sem hefur verið í Hallarmúla 2, færast yfir í fyrra húsnæði húsgagnaverslunar Pennans, Hallarmúla 4. Nýja húsnæðið á Grensásvegi 11 er glæsilegt og þessi breyting verður án efa mikil lyftistöng fyrir fyrirtækið í heild og mun stytta boðleiðir enn frekar á milli starfseininga. Verslanir Eymundsson eru á landsvísu og bjóða þær upp á margvíslegt úrval bóka, tímarita, gjafavöru, tónlistar, DVD, myndlistarvara, föndur­ vara og margt fleira. Á meðal nýjunga hjá Eymundsson eru rafbækur en í dag er boðið upp á rúmlega 100.000 erlenda rafbókartitla á eymundsson.is. Ingibjörg Ásta segir að að sama skapi hafi vefsíða Eymunds­ son, eymundsson.is, nú þegar verið endurbætt. „Vefurinn var endurhannaður frá grunni með það leiðarljósi að gera vefversl­ unina mun notendavænni. Eymundsson starfrækir einnig marga fjölbreytta bókaklúbba þar sem allir geta fundið eitt­ hvað við sitt hæfi.“ Penninn samanstendur af fjórum vörumerkjum sem eru Penninn, eymundsson, Griffill og islandia og eru reknar 18 verslanir víða um land. elsta bóksala landsins Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri Pennans. „Penninn þjónar breiðum hópi fyrirtækja með það að leiðarljósi að viðskiptavinir geti ætíð gengið að fyrirhafnarlausri, þægilegri og fjöl­ breyttri þjónustu.‘‘ viðskiptahugmyndin
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.