Frjáls verslun - 01.07.2011, Qupperneq 69
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 69
Fyrirtækið Nikita var stofnað árið 2000 og er áhersla lögð á flíkur og fylgihluti fyrir stúlkur sem stunda
snjóbrettaíþróttina, bæði hvað varðar íþróttaiðkunina sjálfa sem og daglega lífið. vörur Nikita eru seld-
ar í um 1.500 verslunum í 30 löndum og rúmlega 40 netverslunum.
A
ðalheiður Birgis
dóttir, eða Heiða
eins og hún er
kölluð, fór á 10.
áratugnum að
hanna og sauma föt sem voru
seld í tískuverslunum þar sem
hún vann. Hún hóf árið 1995
störf í versluninni Týnda hlekkn-
um, þar sem m.a. voru seld
snjóbretti, en Rúnar Ómarsson
og Valdimar Kr. Hannesson
voru á meðal eigenda. Heiða
festi kaup á hlut í versluninni í
staðinn fyrir að fara í hönnunar-
nám í Bretlandi eins og hún
hafði stefnt að.
Þar sem frekar lítið úrval fékkst
í versluninni af fötum fyrir stelpur
í brettaíþróttinni fór Heiða m.a.
að hanna og sauma renndar,
aðsniðnar flíspeysur með hettu
sem var farið að selja í versl
uninni árið 1997. „Þarna liggja
í rauninni ræturnar að merkinu,“
segir Heiða um línuna en flíkurn-
ar, sem hún hannaði og saum
aði, voru undir nafninu Nikita.
Fimmtíu stykki voru seld árið
1997 og rúmlega eitt þúsund
stykki tveimur árum síðar.
Misjöfn viðbrögð
„Við fluttum inn fullt af merkjum
fyrir stelpur, aðallega frá Banda-
ríkjunum, en enginn bauð upp
á það sem við vorum að leita
eftir. Sífellt fleiri stelpur stund-
uðu þessa íþrótt og við veltum
fyrir okkur hvort þarna væri
gat í markaðnum. Við fórum
á vörusýningar í útlöndum og
bárum þessa hugmynd upp við
fólk. Viðbrögðin voru misjöfn;
sumum fannst þetta algjört
bull þar sem það væri ekki
nógu stór markaður eingöngu
fyrir föt á stelpur. Við trúðum
hins vegar nógu mikið á þetta,
seldum verslunina árið 2000
og stofnuðum fyrirtækið Nikita.
Aðalsérstaða okkar er að við
leggjum áherslu á hönnun og
framleiðslu á fötum fyrir stelpur
í snjóbrettaíþróttinni. Þeim finnst
æðislegt að það sé einhver
virkilega að einbeita sér að þeim
því segja má að þær séu enn
minnihlutahópur í íþrótt inni. Þá
hefur Nikita lengst af verið eina
íslenska fyrirtækið í þessum
bransa en nýlega var stofnað
nýtt snjóbrettamerki hér á landi.“
Nafnið Nikita segir Heiða að-
allega komið úr kvikmyndinni
La femme Nikita. „Við vildum
finna nafn sem væri kvenlegt en
samt kúl. Svo pældum við í að
það myndi virka á alþjóðlegum
markaði af því að meiningin var
alltaf að byggja upp alþjóðlegt
vörumerki. Nafnið mátti heldur
ekki vera of langt, það þurfti
að vera þægilegt fyrir alla að
segja það auk þess að líta vel
út í lógói.“
um 1.500 verslanir
Pöntuð voru rúmlega 1.500
stykki á vörusýningu í útlöndum
og þegar heim kom var leitað til
Nýsköpunarsjóðs og Uppsprettu,
sem fjárfestu í fyrirtækinu.
Niðurstaðan var að Nikita væri
hundrað milljón króna virði og
eignuðust Nýsköpunarsjóður og
Uppspretta 40% í fyrirtækinu.
Heiða segir að tveir aðrir eig
endur að Týnda hlekknum hafi
ósjálfrátt eignast lítinn hlut í
fyrir tækinu.
„Við Rúnar unnum til að byrja
með ein í fyrirtækinu. Valdimar
var þá fluttur til Hamborgar í
Þýskalandi og við réðum fljót-
lega stelpu sem hjálpaði mér við
sníðagerð. Við réðum síðan fleiri
starfsmenn smátt og smátt.“
Heiða segir að viðtökur hafi
verið góðar eftir að vörur Nikita
voru kynntar á vörusýningunni
ISPO sem hún segir að sé
stærsta vetrarsportsýningin í
Evrópu. Nokkrir dreifingaraðilar
í Evrópu bættust þá í hóp þeirra
sem höfðu pantað flíkurnar
1.500 á sínum tíma.
Fyrirtækisreksturinn fór ágæt-
lega af stað. Árið 2005 var farið
að selja vörur Nikita í flestum
þeim löndum þar sem þær eru
seldar í dag eða um 30. Salan
er þó breytileg eftir tímabilum
en almennt eru vörur fyrirtækis-
ins seldar í um 1.500 verslun-
um. Þá hafa vörurnar fengist í
rúmlega 40 netverslunum og
svo er búið að stofna netverslun
á heimasíðu fyrirtækisns, nikita
clothing.com. Um 1.500 flíkur
frá Nikita seljast daglega.
„Við höfum verið sterkust á
þeim svæðum þar sem íþróttin
er stunduð eins og í kringum
Alpana; mjög sterk lönd hafa
verið Austurríki, Sviss, Þýska
land, Ítalía, Spánn og Kanada.
Þetta fer þó eftir efnahagnum.
Við höfum einnig selt vel í Nor-
egi og Svíþjóð.“
um 30 starfsmenn
Nikita er með skrifstofur á Ís
landi og í Hamborg í Þýskalandi
þar sem Valdimar býr enn og
eru starfsmenn fyrirtækisins um
30. „Ég stjórna ennþá hönnun
inni en við erum níu sem vinn
um við hönnun og framleiðslu
þótt meirihluti þessa hóps sé á
framleiðsluhliðinni. Þetta er ferli
sem byrjar á hugmyndavinnu
sem ég vinn yfirleitt frá grunni
Þarf endalausa trú
Nafnið Nikita
segir Heiða að
al lega komið úr
kvikmyndinni
La femme
Nikita. „Við
vildum finna
nafn sem væri
kvenlegt en samt
kúl.“
Aðalheiður Birgisdóttir. „Ég hef endalausa trú á því sem ég er að
gera og ef maður efast einhvern tímann um það heldur maður
ekkert áfram í svona leik.“
TexTi: Svava jónSdóTTir myndir geir ólafSSon
Heiða í Nikita