Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 78
78 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
teven Spielberg er einn
áhrifamesti kvik mynda
gerðarmaður sam tímans
og öllu sem hann tekur sér
fyrir hendur er í kjölfarið
gefi nn mikill gaumur af
heimspressunni og koll
egum hans. Ekki hefur
hann samt leikstýrt kvik
mynd í þrjú ár eða frá
því að Indiana Jones and the Kingdom of
the Crystal Skull var sýnd. En Spielberg
hefur ekki setið auðum höndum síðustu
misseri þótt hann hafi ekki verið að leik
stýra kvikmyndum, hann er af kastamikill
fram leiðandi kvikmynda og sjón varpsefnis
í gegnum fyrirtæki sín og meðal kvikmynda
sem hann hefur framleitt og verið með
framleiðandi að á síðustu árum eru Trans
formersmyndirnar þrjár, The Lovely Bones,
Hereafter, True Grit, Super 8 og nú síðast
Cowboys and Aliens.
Nú verður breyting á þar sem tvær ólíkar
kvikmyndir sem Spielberg leikstýrir verða
teknar til sýningar í október og desember.
Sú sem fyrst verður frumsýnd er The Ad
ventures Of Tintin: The Secret Of The Uni
corn og verður hún frumsýnd í Evrópu í
október, þar á meðal á Íslandi, en ekki sýnd
fyrr en á Þorláksmessu í Bandaríkjunum,
aðeins rúmri viku áður en síðari myndin,
War Horse, verður frumsýnd.
Tinni í þrívídd
Steven Spielberg er ekki einn um að koma
Tinna á hvíta tjaldið. Með honum í fram
kvæmdinni er Peter Jackson, leikstjóri
Hringa dróttinssöguþríleiksins. Sex ár eru
síðan þeir félagar hófu undirbúninginn að
gerð kvikmyndar um ævintýri Tinna. Í fyrstu
voru þeir ekki vissir um hvor þeirra myndi
leikstýra myndinni en eftir því sem Jackson
festist æ meira í Hobbitmyndunum tveimur
sem hann er að gera um þessar mundir
tók Spielberg að sér verkið þótt hann væri
kominn á kaf í War Horseverkefnið og að
TexTi: Hilmar KarlSSon
Tvær nýjar og ólíkar kvikmyndir í leikstjórn Stevens Spielbergs frumsýndar síðar á árinu.
Ævintýri Tinna og Stríðshestur
S
Í Ævintýrum Tinna eru Tinni (Jamie Bell) og Haddock skipstjóri (Andy Serkis)
sem fyrr á hælunum á glæpamönnum.
Peter Jackson og Steven Spielberg mættu saman
á Comic Con-teiknimyndaráðstefnuna í San Diego
í júlí sl. og skýrðu fyrir áhugasömum gestum
hvernig þeir höfðu gert Ævintýri Tinna.