Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 18
18 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
áherslan eingöngu lögð á þetta svið lögfræðinnar.
Þar munum við því alfarið veita sérhæfða þjónustu
í tengslum við fjármögnun fyrirtækja, kaup og sölu
þeirra og verðbréfamark-
aðinn, svo dæmi séu
tekin. Aðferðafræði í fyr-
irtækjalögfræði hér á landi
hefur breyst á síðustu árum
og má segja að hún sé í
auknum mæli farin að taka
mið af vinnubrögðum á
þessu sviði erlendis. Gæða-
kröfur hafa aukist til muna
og meira er unnið á ensku
en áður tíðkaðist. Í þeirri útrás sem átti sér stað
fyrir bankahrun gafst okkur kostur á að bera okkur
saman við erlenda ráðgjafa og kynnast þróaðri
vinnubrögðum en við áttum að venjast. Sú reynsla
mun skila sér í betri og faglegri vinnubrögðum lög-
fræðinga hér á landi, sem mun auka traust fjárfesta
á fjármálamarkaðnum hérlendis og flýta með því
fyrir endurreisn hans.“
Guðmundur bætir við að viðskiptavinir lög-
fræðistofunnar, það er að segja fyrirtækin, þurfi
orðið mun meira á sérhæfðri þjónustu að halda.
„ADVEL fyrirtækja- og fjármálalögfræði með Sig-
urð í fararbroddi er liður í að gera þjónustu okkar
virkari og öflugri.“
Sigurður hefur ellefu ára reynslu af lögfræði-
störfum á fjármálamarkaði og hefur starfað bæði
á Íslandi og erlendis, meðal annars í Lúxemborg.
Hann hefur meðal annars veitt ráðgjöf í tengslum
við kaup og sölu á fjölda fyrirtækja, unnið að gerð
áreiðanleikakannana á félögum í ýmsum atvinnu-
greinum, komið að fjölda fjármögnunarverkefna og
unnið við lögfræðiráðgjöf á fjármálamarkaði hér á
landi og erlendis.
Starfsfólk með mikla reynslu
Hjá Advel lögfræðiþjónustu starfa nú 17 manns, en
þar af eru tveir hæstaréttarlögmenn og tíu lögmenn
með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi:
„Þarfir viðskiptavina okkar krefjast þess að við séum
með öflugan og sérhæfðan mannskap, sem tekist
getur á við umfangsmikil verkefni á alþjóðavett-
vangi. Hjá okkur starfar einvalalið fólks, sem hefur
reynslu af því að vinna á erlendum tungumálum
og hefur aflað sér umfangsmikillar starfsreynslu og
menntunar hér heima og erlendis. Við erum nægi-
lega stór lögmannsstofa til að veita umsvifamiklum
aðilum öfluga þjónustu, en á sama tíma höfum
við vilja og getu til að þjóna öllum viðskiptavinum
okkar persónulega og af snerpu.
Við viljum umfram allt vera til taks fyrir okkar
viðskiptavini, hvort heldur sem eru fyrirtæki, opin-
berir aðilar eða einstaklingar, þannig að þeir fái sem
best notið þeirrar sérþekkingar sem við höfum upp
á að bjóða.“
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
Sími: 520 2050
Fax: 552 2020
www.advel.is
Við erum nægilega
stór lögmannsstofa
til að veita umsvifa-
miklum aðilum
öfluga þjónustu,
en á sama tíma
höfum við vilja og
getu til að þjóna
öllum viðskipta-
vinum okkar persónu-
lega og af snerpu.
Guðmundur Siemsen: „Við búum svo vel að hafa á
að skipa sérhæfðu starfsfólki á nær öllum sviðum
lögfræðinnar.“
Sigurður Valgeir Guðjónsson: „Aðferðafræði í fyrir-
tækjalögfræði hér á landi hefur breyst á síðustu
árum og má segja að hún sé í auknum mæli farin
að taka mið af vinnubrögðum á þessu sviði erlendis.“
ADVEL fyrirtækja- og fjármálalögfræði
eykur enn frekar þjónustu við við-
skiptavini stofunnar með sérhæfðari
þjónustu á fjármálasviði í tengslum
við fjármögnun fyrirtækja, kaup og
sölu þeirra og verðbréfamarkaðinn.
xxxg
Þeir sem hafa dálæti á dökku súkkulaði eiga
góðar stundir í vændum um páskana. Síríus
Konsum páskaeggin eru úr dökku úrvals
súkkulaði, bragðmikil og falla vel að smekk
fullorðinna. Svo eru þau full af góðgæti sem
gleðja þroskaðar sálir. Prófaðu páskaegg úr
dökku Konsum súkkulaði og njóttu þess til fulls.
N J Ó T T U Þ E S S T I L F U L L S
F
í
t
o
n
/
S
Í
A