Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 49
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 49
n æ r m y n d a F G u ð B j Ö r G u m a t t H í a s d ó t t u r
Hún er Reykvíkingur að uppruna þótt Eyjamenn vilji eigna
sér hana.
sjálfstæðiskonan
Guðbjörg hefur á vissan hátt yfirbragð kvenfélagskonunnar
sem stendur á bak við kaffiborðið og afgreiðir – og er hús-
móðir á sínu heimili. Um leið blandast engum hugur um að
hún er miðpunkturinn í rekstri eins af stærstu fyrirtækjum
landsins og trúlega ríkasta kona á landinu.
Hún er virkur þáttakandi í félagsstarfi í Eyjum, er ritari
í safnaðarstjórn Landakirkju auk þess að eiga og reka aðal-
fyrirtækið á staðnum og stendur í fjárfest-
ingum á fastalandinu.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson var í
vinahópi Sigurðar heitins Einarssonar og er
nú helsti ráðgjafi Guðbjargar. Upphaflega
eru þessi kynni rakin til þess að Gunnlaugur
varð framkvæmdastjóri Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjunnar í Reykjavík – síðar
Faxamjöls. Meðal eigenda þar var Hrað-
frystistöðin í Reykjavík.
mikilvirkur gerandi
Guðbjörg tók við eignunum í Eyjum á erfiðum tíma í
sjávarútvegi. Allir landsbyggðamenn vita að „kreppan“
var erfiðust úti á landi árin eftir aldamótin 2000. Þá
bjuggu fyrirtækin við hækkandi gengi krónunnar og það
sem menn kölluðu þá ruðningsáhrif vegna stórvirkjana
og aukinna umsvifa fjármálafyrirtækja. Nú hefur þetta
snúist við.
„Ég er viss um að það var mikið lán fyrir Vestmanna-
eyjar að Guðbjörg seldi ekki heldur ákvað að byggja fyrir-
tækið upp og halda því í Eyjum,“ segir Ómar. Og þessi
uppbygging heldur áfram meðal annars með smíði tveggja
nýrra nótaskipa í Chile. Guðbjörg er því ekki bara að
ávaxta arf, hún hefur líka byggt fyrirtækið upp og stækkað
það.
tap á fjölmiðlum
En ekki hefur allt orðið að gulli sem Guðbjörg kemur nærri.
Hún hefur tapað fé á fjölmiðlum. Hún lagði hlutafé í DV
þegar það var selt árið 2001 og tapaði
því þegar útgáfan varð gjaldþrota tveimur
árum síðar. Rekstur Morgunblaðsins – sem
og annarra fjölmiðla á Íslandi – gengur illa
um þessar mundir og ekki er útlit fyrir að
hlutur Guðbjargar í blaðinu eigi eftir að
gefa af sér mikinn arð.
Flestir fjárfestar halda að sér höndum og
vilja heldur eiga peningana á bankareikn-
ingum en í ótryggum hlutabréfum. En
athafnakonan í Eyjum, Guðbjörg Matt-
híasdóttir, lætur hins vegar að sér kveða
með fjárfestingum í atvinnulífinu; með tvö nótaskip í upp-
byggingu í Chile, orðuð við kaupa á minnihlutanum í Skelj-
ungi, yfirtók Lýsi og stendur að útgáfu Morgunblaðsins í
félagi við aðra.
Hún stendur sterk eftir bankahrunið og á sína peninga
sjálf. Hún tekur þátt í endurreisn atvinnulífsins og fjárfestir.
Nú er líka lag.
„Guðbjörg er
sjálfstæðiskona,
mikil sjálfstæðiskona,
en hún heldur ekki
ræður á stórum
fundum og boðar
engum stefnuna.“
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson lögmaður
er helsti fjámálaráðgjafi
Guðbjargar. Hann og
Sigurður heitinn Einarsson,
eiginmaður Guðbjargar,
voru nánir vinir.
Flestir fjárfestar halda að sér höndum og vilja heldur eiga
peningana á bankareikningum en í ótryggum hlutabréfum.
En athafnakonan í Eyjum, Guðbjörg Matthíasdóttir, lætur
hins vegar að sér kveða með fjárfestingum í atvinnulífinu