Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 59

Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 59
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 59 S t J ó r n u n Framkvæmd og eftirfylgni.• Mikilvægt er að ofangreindum aðgerðum sé fylgt vel eftir með virkri þátttöku í rekstrar- stjórnun fyrirtækisins. Framleiðni og mikill dugnaður en lÍtil aFköSt Þrátt fyrir að Ísland hafi státað sig af einni hæstu þjóðarframleiðslu á mann í heiminum, þá er framleiðni á unna klukkustund hér á landi lægri en í löndunum í kringum okkur. Þessar upplýsingar má meðal annars finna á vef Samtaka iðnaðarins. Þar sést einnig að atvinnuþátttaka hjá okkur er um 86% en meðaltalið í OECD-ríkjunum er um 72%. Ísland er 27. í röðinni af 37 ríkjum OECD þegar litið er á framleiðni á unna klukku- stund. Mörgum finnst við vera óþægilega nálægt Mexíkó sem er í neðsta sætinu. Staðalímynd Mexíkóa teng- ist ekki vinnusemi. Staðalímynd okkar Íslendinga er vinnusamur maður sem vinnur mikla yfirvinnu, skiptir oft um starf og þarf því oft að læra ný vinnubrögð. En það er ekki það sama að vera önnum kafinn og skilvirkur. Ef hægt er að alhæfa út frá skýrslum OECD má halda því fram að við Íslendingar séum vinnusamt fólk en ekki endilega góð í und- irbúningi, aga og skipulagningu verka. „Honum féll aldrei verk úr hendi“ eru algeng eftirmæli um Íslendinga. Flutningar og upplýSingatÆkni Þarfir flutningskaupenda eru í raun mjög einfaldar: að fá vöruna flutta hagkvæmt, á réttum tíma, í réttu ástandi og með réttum upp- lýsingum, þar með talið réttum reikningum. Íslensku skipafélögin nota öll nýjustu flutninga- og upplýs- ingatækni og má fullyrða að ekkert þeirra geti náð raunhæfu samkeppnisforskoti nema í samskiptum við viðskiptavini. Tíðni ferða er fullnægjandi og áreiðanleiki almennt í lagi. Hins vegar mættu þessi fyrirtæki tileinka sér rekstrarstjórnun og ferlastýringu til að bæta öryggi og gæði í flutningum. Of mörg mistök virðast vera gerð á frágangi á vörum í gámum, við flutning frystivöru, bæði milli landa og innanlands. Kælikeðjan slitnar of oft að mati sérfræðinga á þessu sviði. Einnig mætti örugglega efla fræðslu og kenna starfsfólki réttari vinnubrögð. Varðandi gjaldtöku skipafélaganna þá vekur athygli að grunn- verð sjóflutningstaxtanna virðast almennt vera samkeppnishæf en hins vegar hafa skipafélögin mikið hugmyndaflug þegar kemur að ýmsum aukagjöldum. Ljóst er að gríðarlegar hækkanir á for- flutningum og ýmsum aukagjöldum skapa mikla ókyrrð meðal kaupenda á flutningum. Það skiptir því miklu máli að standa vel að skipulagningu flutninga þar sem horft er til heildarkostnaðar í fyrirtækjunum. Hvað flugið varðar þá hentar það aðallega vörum með háa framlegð sem úreldast hratt, eða hraðsendingum með póst, skjöl og vöru- prufur. Almennt er talið að birgðir af tölvuvörum úreldist um 1% á viku þannig að sjóflutningur sem tekur 4 vikur “door to door” getur reynst dýr þegar heildarkostnaðurinn er skoðaður. Flugflutningar eru leið til að minnka birgðaþörf, lækka öryggisbirgðir og þar með auka veltuhraða. Taxtar fyrir flutninga með flugi eru margfalt hærri en fyrir flutninga á sjó og þann kostnaðarmun þarf að réttlæta með sparnaði annars staðar til að vega þar upp á móti. Fyrir hverjar 100 milljónir sem birgðirnar minnka sparast um 30 milljónir króna í kostnaði. Hvað er rekstrarstjórnun? Rekstrarstjórnun eykur samkeppnishæfni fyrirtækja þar sem meðal annars er tekið á lækkun kostnaðar, endurhönnun vinnuferla, aukningu á þjónustustigi, bættu upplýsingaflæði, birgðamálum, stjórnun ferla og framleiðslu, vöruflæði og þjón- ustu, aðfanga- og vörudreifingu. Áhersla er lögð á lækkun kostnaðar, aukinn viðbragðsflýti, meiri aðlögunarhæfni, betri nýtingu mannafla sem og fjárfestinga og minnkun fjárbind- ingar. Samkeppni fyrirtækja snýst víða um að hafa samstillt- ari aðfangakeðju (synchronized supply chain) sem skilar hámarksþjónustu með lágmarkskostnaði. mikilvægi vörustjórnunar að mati stjórnenda Nauðsynleg Mjög mikilvæg Mikilvæg Lítillega eða ekki mikilvæg
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.