Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 83
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 83
Íslenskur iðnaður
að sögn Jóns Steindórs Valdimars- sonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, er brýnasta verkefni
okkar að skapa um 35.000 störf á næstu 10
árum: „Gegnir iðnaðurinn þar lykilhlut-
verki. Það er kjarninn í starfsemi SI að iðn-
aðinum verði búin vaxtarskilyrði til þess að
þar spretti úr grasi fyrirtæki sem skapa vinnu
og afla þjóðarbúinu tekna.“
Setjum markið hátt
„Þetta er stærsta verkefni okkar en augaleið
gefur að það er margslungið og draga þarf
saman marga þræði til þess að það takist.
Markmið okkar er að skapa kraftmikinn
iðnað sem veitir fjölbreytt störf, en um leið
verðum við að setja markið hátt og stefna
að iðnaði sem krefst mikils hug- og verkvits,
sem leiðir þá aftur til þess að virðisauki
framleiðslunnar er mikill. Þá er afar mik-
ilvægt að byggja upp starfsemi sem getur
selt vörur og þjónustu úr landi til að afla
þjóðarbúinu tekna og fyrirtækin geti þjónað
stærri markaði en Íslandi einu.“
Stöðugur gjaldmiðill
og viðunandi vaxtastig
„Þræðirnir sem ég minntist á eru t.d. stöð-
ugur gjaldmiðill og viðunandi vaxtastig.
Það er grundvallarforsenda sem verður ekki
tryggð án aðildar að ESB og upptöku evru.
Þá þarf að beita menntakerfinu markvisst
til að geta tekist á við verkefni fyrirtækjanna
sem við verðum að byggja upp. Efla þarf
greinar þar sem iðn, verk- og tækninám í
víðum skilningi eru uppistaðan. Nauðsyn-
legt er að nám sé fjölþætt og búi fólk undir
flókin og síbreytileg viðfangsefni. Sveigj-
anleiki og fjölhæfni eiga að vera í fyrirrúmi.
Verkefni líðandi stundar er að verja
fyrirtækin sem við eigum og gera þeim
mögulegt að vaxa og dafna. Samtímis er
mikilvægt að efla markvisst nýsköpun með
endurnýjun innan frá í hefðbundnum
greinum og starfandi fyrirtækjum um leið
og markvisst er unnið að því að byggja upp
ný sprotafyrirtæki sem byggja á nýjungum
og hafa mikla vaxtar- og tekjumöguleika.
Stefnumótun, fyrirhyggja og raunsæi í
bland við kraft og áræði í réttum hlut-
föllum er það sem við þurfum að styðjast
við í ríkari mæli en hingað til. Að móta
eigin framtíð er nokkuð sem við eigum að
gera en ekki láta skeika að sköpuðu. Takist
okkur það er engu að kvíða fyrir íslenskan
iðnað.“
að móta sína eigin framtíð
Samtök iðnaðarinS
„að móta eigin framtíð
er nokkuð sem við eigum
að gera en ekki láta skeika
að sköpuðu.“
Jón Steindór Valdimarsson,
framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins.
Stella Marta Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs.