Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 89
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 89
Íslenskur iðnaður
kristín Pétursdóttir, forstjóri auðar Capital
nýsköpun er lykilatriði
Á Iðnþinginu lagði Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital,
áherslu á það í máli sínu að fjölbreytt atvinnulíf væri mikilvægt
framlag til aukins stöðugleika í efnahagslífinu. Mjög mikla áherslu
þurfi að leggja á nýsköpun og fjölbreytni í atvinnulífinu en þar sé
verk að vinna:
„Jarðvegurinn er frjór en það verður að sá fræjum til að upp-
skera. Þessi fræ eru fyrst og fremst fjármagn og sem stendur eru
mjög miklar takmarkanir á aðgengi að fjármagni. Úr því verður að
bæta. Við eigum alla möguleika á því þar sem þetta fé er til en liggur
dautt í kerfinu og nýtist ekki til fjárfestinga og nýsköpunar,“ sagði
Kristín. Í máli hennar kom fram sú skoðun að í framtíðinni verði
að beina sjónum að því að skapa áþreifanleg verðmæti fremur en
pappírshagnað og mikilvægt sé að byggja upp á grundvelli góðs við-
skiptasiðferðis og stjórnunarhátta:
„Nú er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að styðja við vaxandi
fyrirtæki og breikka skattstofnana okkar.“
Kristín sagði í ræðu sinni að Ísland hefði alla möguleika til
þess að byggja upp hagvöxt á nýjan leik. Þjóðin sé rík af náttúru-
auðlindum og ekki síður mannauð en fjármögnun til nýsköpunar sé
hins vegar af mjög skornum skammti.
Kristín minnti á að Íslendingar hafi verið með nánast öll eggin
í sömu körfunni þegar þeir byggðu upp gríðarlega öflugan fjár-
málageira og veðjuðu öllu á hann. Síðan hrundi geirinn enda höfðu
drifkraftar síðustu ára einkennst af mikilli skammtímahugsun,
einhæfni og því að veðja öll á eina lausn. Áherslan var á skjótfeng-
inn gróða, fjárfestar voru mjög óþolinmóðir og höfðu ofurtrú á
mátt stærðarinnar: „Mér er til efs að þetta hafi skilað verðmætum
eða öðru en skeytingarleysi við samfélag og umhverfi. Við verðum
að hugsa dæmið upp á nýtt. Marka okkur skýra framtíðarsýn með
langtímahugsun og fjölbreytni að leiðarljósi. Áhersluna skyldi leggja
á siðferðið og góða stjórnarhætti.“
Kristín segir nýsköpun nauðsynlega til þess að bæta lífskjör á
Íslandi. Það þurfi að styðja fyrirtæki sem eiga möguleika á að vaxa.
Við eigum jú mjög mikinn og góðan mannauð, tæknistig er hátt
og við höfum náð miklum árangri í vísindum. Aftur á móti eru
veikleikarnir miklir og snúa fyrst og fremst að aðgengi fjármagns.
Það er vandasamt verk að velja og veðja á réttu hestana. Mikið af
áhugaverðum hugmyndum og sprotum í gangi en það sem skiptir
mestu máli er að veðja á þá sem eru ekki bara með eldmóðinn
heldur einnig langtímahugsun; til að komast alla leið í mark. Þjóðin
á fullt af frumkvöðlum með áratuga reynslu og Kristín telur gríð-
arlega mikilvægt að nýta þá reynslu þegar farið er í fjárfestingar.
Einnig leggur hún mikla áherslu á að fjárfestar komi með meira
en bara fjármagn að borðinu; þeir ættu að miðla reynslu og jafnvel
aðgengi að erlendum fjárfestum. Aðstoða og vinna með frumkvöðl-
inum á löngum tíma svo fyrirtækið komist á legg og verði arðsöm
fjárfesting. Að lokum sagði Kristín: „Frumkvöðlar taka áhættu og
fara á eftir tækifærum sem aðrir sjá ekki, tækifæri sem aðrir sjá sem
vandamál eða jafnvel ógn. Nýsköpun er nátengd þekkingu, skapandi
hugsun og sveigjanleika. Fjárfesting í nýsköpun er lykilatriði til að
auka samkeppnishæfni fyrirtækja, atvinnugreina og þjóða.“
Kristín Pétursdóttir,
forstjóri Auðar Capital.