Frjáls verslun - 01.02.2010, Qupperneq 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0
Íslenskur iðnaður
Jón sigurðsson, forstjóri Össurar
Hættum
fortíðarhyggju
– aðild að ESB
bætir stöðu
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sagði í ræðu sinni að íslenska
efnahagsumgjörðin hafi fram til þessa einkennst af því að hér
tíðkist mikill sveigjanleiki, boðleiðir séu stuttar og eftirlitsstofn-
anir fremur lítt íþyngjandi. Hann sagði einnig: „Þetta umhverfi
stuðlaði að alvarlegri fjármála- og efnahagskreppu.“ Jón fór
orðum um hversu stórskuldugur ríkissjóður sé og hversu mikinn
hnekki orðspor landsins hafi beðið, atvinnuleysið sé ógnvænlegt
og nauðsynlegt að skapa skilyrði til að draga úr því: „En því
miður hefur okkar háttur verið sá að redda okkur út úr vanda-
málum frekar en að sveigja framhjá þeim. Nú þarf nauðsynlega
að breyta um farveg. Hagkerfið er nánast lokað og ég óttast að
þarna vilji sumir vera.“
Jón undirstrikaði á að nú yrði að hætta hausaveiðum og for-
tíðarhyggju og huga þess í stað að framtíðinni. Hann sagði jafn-
framt að aðild að ESB gæti fært Íslandi bætta stöðu í alþjóða-
samfélaginu og betri starfsskilyrði og að nauðsynlegt væri að róa
öllum árum að því að uppfylla Maastricht-skilyrðin.
„Það eru því miður engar patentlausnir á þeim vanda sem við
er að etja. Við þurfum á skýrri stefnumörkun og forystu að
halda til að hér geti áfram þrifist kröftugt atvinnulíf.“
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Kristinn Hafliðason og Þórður Hilmarsson, starfsmenn
Útflutningsráðs, og Gunnar Bragi Sveinsson alþingismaður.
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskipta-
ráðs, Kolbeinn Kolbeinsson framkvæmdastjóri ÍSTAKS hf., og
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris hf.
Guðmundur Ó. Eggertsson, stjórnarmaður í Iðnaðarmannafélagi
Reykjavíkur, og Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra.
sviPMyndir frá iðnþingi 2010