Frjáls verslun - 01.02.2010, Síða 99
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0 99
Lífsstíll
Umsjón: Svava JónSdóttir (myndlist o.fl.) • Hilmar KarlSSon (kvikmyndir) • páll StefánSSon (bílar)
„Ég heillaðist snemma af franskri tungu
og frönskum bókmenntum,“ segir
ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri
í samgöngu- og sveitarstjórnarráðueyt-
inu. Hún nefnir í því sambandi jean-Paul
sartre, albert Camus og simone de
beauvoir; Hitt kynið (le deuxième sexe)
eftir beauvoir er í sérstöku uppáhaldi.
„kynni mín af verkum þessara rithöfunda
hafa haft áhrif á viðhorf mitt til frakklands
og franskrar menningar.“
ragnhildur kom fyrst til Parísar árið
1971. Hún stundaði síðar nám í þjóðar-
rétti í tvö ár í Genf í sviss og á þeim árum
fór hún til Parísar. síðan hefur hún farið
reglulega til borgarinnar við signubakka.
„París er draumaborgin mín.“
Á meðal þess sem heillar ragnhildi við
París: menningin og mannlífið.
signubakkinn. skipulagið og breiðgötur-
nar. latínuhverfið. Gallerí. markaðir.
Elegansinn. kaffihúsin. „Ég hafði aldrei
fyrr séð fólk tala saman með kaffibolla og
croissant svo tímum skipti. Hvert hverfi
hefur sitt sérkenni og sjarma. París heillar
mig enn á sama hátt og þegar ég kom
þangað fyrst. Það getur engin borg keppt
við París í mínum huga.“ Hún nefnir lífs-
gleðina. að njóta stundarinnar. „mér
finnst tíminn stoppa. Ég get setið ein og
horft á mannlífið.“ Ein með kaffibolla.
croissant.
veiðar eru eitt af áhugamálum
Þórdísar lóu Þórhallsdóttur,
framkvæmdastjóra Pizza Hut
– skotveiði, stangveiði og neta-
veiði. „Ég ólst upp við þetta en
fjölskyldan á jörð fyrir norðan,“
segir framkvæmdastjórinn. „Ég
hef skotið frá því ég var 22 ára
og gekk til rjúpna í nokkur ár.“
Gæsir hafa orðið fórnarlömb
skotfimi Þórdísar lóu og gera
má ráð fyrir að eitthvert hrein-
dýrið fyrir austan verði hennar
bráð í haust þar sem hún er
nú komin með leyfi á eitt slíkt;
hreindýrakú nánar tiltekið.
Þess má geta að hvað skotfim-
ina varðar hefur hún hitt dýr
í öðrum löndum en einhverju
sinni fór hún á krónhjartaveiðar
í skotlandi.
Hvað skyldi heilla fram-
kvæmdastjórann Þórdísi lóu
við veiðimennskuna? „Útiveran,
tengsl við náttúruna, sú
„aksjón“ sem er í kringum
þetta og „gourmevinnan“. Þetta
gefur mér ákveðna hvíld frá
vinnunni.“
Þess má geta í tengslum
við „gourmevinnuna“ að Þórdís
lóa er í alþjóðlegu samtök-
unum slow food. Á heimasíðu
samtakanna hér á landi segir:
„meginmarkmið slow food er
að auka meðvitund fólks um
mikilvægi matarmenningar,
þekkingar, hefðar og landfræði-
legs uppruna matvæla.
Einkunnarorð samtakanna eru
Góður, hreinn og sanngjarn, og
er þar átt við að maturinn eigi
að bragðast vel, hann eigi að
vera laus við aukaefni og sem
náttúrulegastur, og sanngjarn á
þann hátt að sá sem framleiðir
matinn fái sanngjarnt verð fyrir
vinnu sína og afurðir.“ Þórdís
lóa ræktar kryddjurtir og kál í
garðinum sínum. „Ég hef
gaman af að elda,“ segir hún
og er bráðin, sem hún veiðir, í
sérstöku uppáhaldi hvað það
varðar. Hún á það til að galdra
fram bollur og paté úr
bráðinni. „Það er ævintýra-
mennska í kringum þessa
eldamennsku.“ Þegar Þórdís
lóa er spurð hvort hún eigi
ekki stóra frystikistu segir
hún: „Það eru tvær frystikistur
í bílskúrnum.“
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. „Útiveran, tengsl við náttúruna, sú
„aksjón“ sem er í kringum þetta og „gourmevinnan“. Þetta gefur
mér ákveðna hvíld frá vinnunni.“
veiðimennska
Tvær frysTikisTur í bílskúrnum
Ragnhildur Hjaltadóttir og dóttir hennar, Sigríður
Theodóra, í París.
Uppáhaldsborgin
menningin, mannlífið og markaðirnir