Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 105
Fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0 105
F íton er ein af stærstu og þekktustu auglýsingastofum landsins og var ótvíræður sigurvegari á nýafstaðinni
ÍMARK hátíð, þar sem íslensku auglýs-
ingaverðlaunin voru afhent fyrir bestu aug-
lýsingarnar og auglýsingaherferðir. Fram-
kvæmdastjóri Fítons er Ragnar Gunnarsson.
„Ég sinni ráðgjöf og vörumerkjauppbyggingu
fyrir okkar viðskiptavini. Starfið er ótrúlega
fjölbreytt og skemmtilegt enda vinn ég með
frábæru fólki. Maður veit nánast aldrei hvað
dagurinn ber í skauti sér enda gerast hlutirnir
hratt í þessum bransa og allt þarf að gerast helst
í dag. Kannski er eini gallinn við hann hvað
maður eldist hratt því tíminn líður svo fljótt.
Akkúrat núna erum við að jafna okkur
eftir ÍMARK hátíðina en okkur gekk mjög
vel á íslensku auglýsingahátíðinni og unnum
fimm lúðra. Verk frá Fíton urðu hlutskörp-
ust í flokki herferða, markpósts, umhverf-
isgrafíkur og í opnum flokki, auk þess sem
almenningur taldi herferðina „Essasú?“ frá
Vodafone þá bestu á árinu 2009. Þá má
geta þess að Fíton var kosin besta auglýs-
ingastofan í könnun sem Capacent gerði
meðal 400 stærstu auglýsenda á Íslandi sem
er auðvitað mikill heiður fyrir okkur.
Við erum ótrúlega stolt af þessum við-
urkenningum og gaman að vera að ná þessum
árangri á erfiðustu tímum sem bransinn
hefur gengið í gegnum. Við höfum lagt
hart að okkur á undanförnum misserum og
unnið náið með viðskiptavinum okkar í leit
að snjöllum hugmyndum og lausnum sem
ríma við það einkennilega ástand sem ríkir í
þjóðfélaginu.“
Ragnar útskrifaðist úr viðskiptafræði frá
Háskóla Íslands með cand.oecon.-gráðu og er
í sambúð með Huldu Snorradóttir, fram-
kvæmdastjóra Margt smátt, og á einn fóst-
urson, Hjálmar D. Arnórsson. „Stærsta
áhugamálið er vinnan og flest sem tengist
auglýsingum. En ég á önnur áhugamál, s.s.
ferðalög, tónlist, líkamsrækt og frið í heim-
inum og ég reyni eftir bestu getu að sinna
þessum áhugamálum einnig. Hvað varðar
tónlistina, þá er ég að rembast við að læra á
bassa undir styrkri leiðsögn Magnúsar Bald-
urssonar hjá Auglýsingamiðlun. Það er þó
ekki hægt að kenna honum um hversu hægt
gengur.“
framkvæmdastjóri fítons
RAGNAR GUNNARSSON
Ragnar Gunnarsson: „Maður veit nánast aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér enda gerast hlutirnir hratt í
þessum bransa og allt þarf að gerast helst í dag.“
nafn: ragnar Gunnarsson
fæðingarstaður:
vestmannaeyjar, 27. maí 1968
foreldrar: anna birna
ragnarsdóttir og Gunnar
tómasson
maki: Hulda snorradóttir
Börn: Hjálmar d. arnórsson
menntun: viðskiptafræðingur
frá Hí (cand.oecon.)