Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 21
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 21
Forsíðugrein
3. Hversu stór þáttur er krónan í því vantrausti sem erlendir
lánveitendur hafa á landinu um þessar myndir?
Erlendir bankar og erlendir fjárfestar treysta betur gjaldmiðlum sem
eru stöðugir og þeir þekkja vel.
4. Hversu mikið er til í þeirri fullyrðingu að krónan komi í veg fyrir
að erlendir bankar vilji sameinast íslenskum bönkum – og að hún
sé í raun orðinn hemill og viðbótaráhætta sem erlendir bankar
séu ekki tilbúnir til að taka?
Ein af ástæðum þess að erlendir fjárfestar hafa lítið látið til sín taka í
Kauphöll Íslands þrátt fyrir góða ávöxtun allt fram á síðasta ár er sú
viðbótaráhætta sem þeir hafa þurft að taka á gjaldmiðli sem er veikur,
lítill og fáir þekkja.
5. Hafa erlendar lánastofnanir tapað svo mikið sem einni krónu á
viðskiptum við íslenskar lánastofnanir síðustu tuttugu árin?
Ég er ekki í aðstöðu til að meta það.
6. Hversu sterkir eru íslensku bankarnir?
a. Eiginfjárstaðan?
b. Lausafjárstaðan?
c. Þolpróf Fjármálaeftirlitsins?
d. Einkunnir erlendra matsfyrirtækja?
Vandi íslenskra banka er lausafjárvandi. Aðrir
þættir í starfi þeirra eru fullkomlega sambærilegir
við sem nú gerist hjá virtustu og bestu bönkum
heims.
7. Hvað er helst að óttast í íslensku fjármálalífi
á næstu mánuðum? Er komið að örlagastundinni?
Það er kreppa. Lítið er um fjármagn til fjárfestinga og flestir sem geta
fjárfest halda að sér höndum. Nú skiptir máli að menn passi vel upp á
eigur sínar og reyni að fá sem mest út úr þeim án þess að auka áhættu.
Nú duga ekki skyndilausnir og þá er heldur ekki hægt að fresta erf-
iðum ákvörðunum.
8. Hvað veldur hinum ótrúlega áhuga erlendra fjölmiðla og banka
á örríkinu Íslandi?
Margar fjárfestingar Íslendinga erlendis hafa verið í fyrirtækjum sem
eru þekkt og eru áberandi eins og smásölufyrirtæki, símafyrirtæki og
matvælafyrirtæki og eru mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Þá hefur
Ísland og Reykjavík orðið æ vinsælli áfangastaður á undanförnum
árum og vitundin um land og þjóð aukist jafnt og þétt og má segja
að öll umfjöllun um Ísland í erlendum fjölmiðlum sé langt umfram
eðlileg stærðarhlutföll. Viðskiptaumfjöllunin endurspeglar það.
9. Erlendir lánveitendur vilja vita hverjir muni koma íslensku
bönkunum til aðstoðar ef í harðbakkann slær. Hvað þarf eig-
inlega að gera og hverja þarf að nefna til sögunnar svo að erlendir
lánveitendur róist?
Aðgerðir sem auka tiltrú á íslenska efnahags- og fjármálakerfið. Mestu
skiptir að erlendir aðilar skynji að viðvarandi lausafjárkreppa muni
ekki skaða íslenska banka umfram aðra banka.
10. Hversu mikilvægar eru yfirlýsingar Geirs H. Haarde og
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að ríkið muni koma íslensku
bönkunum til aðstoðar, t.d. með kaupum á skuldabréfum?
Yfirlýsingar eru góðra gjalda verðar en það eru aðgerðir sem skipta
máli.
11. Á sú gagnrýni rétt á sér að bankarnir hafi
sjálfir, með stórfelldum kaupum á erlendum
gjaldeyri til að verja eiginfjárstöðu sína gagn-
vart veikingu krónunnar, í raun tekið stöðu
gegn krónunni og stuðlað þannig að veikingu
hennar?
Nei. Hún á ekki rétt á sér. Bankarnir hafa í árar-
aðir beitt aðferðum virkrar áhættustýringar sem
eru fullkomlega viðkenndar og eðlilegar. Í raun
hefði verið betra ef fleiri hefðu beitt sambærilegum
aðferðum til að fyrirbyggja áföll vegna hraðra
breytinga á gengi krónunnar. Ef bankarnir hefðu ekki beitt virkri
áhættustýringu er hætt við að fjármálakerfið væri nú komið í þrot.
12. Hvernig er best að styrkja og breikka bakland íslenska
bankakerfisins?
Auka aðgengi bankanna að erlendu lánsfé. Rætt hefur verið um að
Seðlabanki Íslands sé lánveitandi til þrautarvara. Miðað við núverandi
aðstæður er ljóst að hann stendur ekki undir því enda er bankakerfið
að svo stóru leyti í öðrum myntum en Seðlabanki Íslands hefur yfir
að ráða. Ríkið þarf því að koma að málum.
13. Hversu sterkt er bakland íslensku bankanna í rauninni til að
takast á við vandann?
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON
fjárfestir og stjórnarformaður Straums
Þarf stöðugan og traustan gjaldmiðil
Það þarf að auðvelda
aðgang að erlendu
lánsfé og hefja undir
búning að upptöku
sterkrar alþjóðlegrar
myntar á Íslandi.
Mestu skiptir að
erlendir aðilar skynji
að viðvarandi lausa
fjárkreppa muni ekki
skaða íslenska banka
umfram aðra banka.
Sameining banka á Íslandi
hefur lítil áhrif á lausafjár
kreppuna. Þetta snýst ekki
um eigið fé banka heldur
laust fé, og sameining
breytir litlu í þeim efnum.
Vandi íslenskra banka
er lausafjárvandi. Aðrir
þættir í starfi þeirra eru
fullkomlega sambæri
legir við sem nú gerist
hjá virtustu og bestu
bönkum heims.