Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8
Jafet situr heima á Íslandi en peningarnir
eru að hluta í útlöndum. Það krefst stöðugra
ferðalaga. Aðrir Íslendingar í sömu stöðu
hafa komið sér upp heimilum í útlöndum.
Valið sér hentuga borg til búsetu og ferðast
þaðan. Þessu fylgir mikill tímasparnaður.
Jafet vill heldur eyða tímanum í ferðalögin
en að fara frá Íslandi.
„Það hefur aldrei hvarflað að mér að flytja
frá Íslandi,“ segir Jafet og bætir við: „Ég reyni
að ferðast eins lítið og hægt er. Vil helst bara
vera hér heima og þá helst úti í náttúrunni í
kyrrð og ró og ég tala nú ekki um að komast
í að veiða silung og lax.“
Hættur að fara um London
En hjá ferðalögum verður ekki komist. Jafet
segist reyna að komast af með eina utan-
landsferð í mánuði. Þótt mikið megi gera
með hjálp nútímasamskiptatækni verða
menn í viðskiptum líka að hitta viðskiptavini
sína augliti til auglitis og enginn kaupir lóð í
Rúmeníu óséða.
„Flugferðir taka stöðugt meiri tíma,“ segir
Jafet og á þá sérstaklega við að alla biðina á
flugvöllunum. Öryggisgæslan tekur lengri
tíma og flugvellir stækka þannig að það þarf
að gera ráð fyrir rúmum tíma til að ná tengi-
flugi.
„Ég hef alveg gefist upp á að fara um
London til Búkarest. Það tekur svo langan
tíma að komast í gegn,“ segir Jafet. „Ég
hef tvisvar farið um París en þar týndu þeir
farangrinum í bæði skiptin. Núna er Kaup-
mannahöfn best. Ég nota því Kastrup.“
Leiga á einkaþotu skynsamleg
Leiga á einkaþotum kemur líka vel til greina
í viðskiptaferðum.
„Ég hef reiknað út að ef 7 til 8 þurfa
að fara saman þá borgar sig að taka þotu á
leigu,“ segir Jafet. „Ég hef hugleitt að taka
þotu og ég skil forsætisráðherra vel að fara
til Búkarest með einkaþotu og spara sér alla
bið og aukagistinætur. Þetta er bara reikn-
ingsdæmi og það verður líka að meta tíma
manna til fjár í þessu samhengi.“
En flutningur til útlanda kemur ekki til
greina.
„Ég fer ekki,“ segir Jafet. „Ég borga heldur
þennan aukakostnað sem ferðalögin hafa í
för með sér en að flytja úr landi.“
Þarna kemur líka til að Jafet og Hildur
Hermóðsdóttir kona hans eiga land á Snæ-
fellsnesi og í Þingeyjarsýslu. „Við viljum
heldur verja frístundum okkar þar en í
útlöndum,“ segir Jafet.
Langaði í pólitík
Jafet hefur lengi verið áberandi maður á
Íslandi, allt frá tímanum í iðnaðarráðuneyt-
inu til okkar daga. Hann er núna tíður álits-
gjafi um efnahagsmál í fjölmiðlum. Hefur
honum aldrei dottið í hug að fara út í
pólitík?
„Ég skal viðurkenna að pólitíkin kitl-
aði mig á yngri árum. Ég sá starf stjórn-
málamannsins í hillingum,“ segir Jafet. „En
eftir að hafa unnið með þremur stjórn-
málamönnum í iðnaðarráðuneytinu, Gunn-
ari Thoroddsen, Hjörleifi Guttormssyni og
Sverri Hermannssyni, læknaðist ég alveg af
þessum draumum. Stjórnmál eru vanþakk-
látt starf, illa launað, skammir miklar og að
auki lítið fjölskylduvænt. Aldrei hvarflað að
mér síðan. En það var lærdómsríkur tími að
vinna með þessum ágætu mönnum.“
Í framboð hjá KSÍ
Þótt stjórnmálin hafi ekki orðið vettvangur
Jafets hefur hann samt komið nærri kosn-
ingum. Hann bauð sig fram til formennsku
hjá Knattspyrnusambandi Íslands í upphafi
árs 2007.
„Já, þetta var kosningaslagur sem ég lagði
út í og tapaði með sóma,“ segir Jafet. Hann
hefur annars lengi haft áhuga á íþróttum,
er Valsari og situr nú í stjórn Vals. Þá hefur
hann verið formaður Badmintonsambands-
ins og leikur badminton reglulega tvisvar í
viku.
Hildur Hermóðsdóttir, eiginkona Jafets, á
og rekur bókaútgáfuna Sölku.
„Ég kem þar hvergi nærri og bókaútgáfa
er ekkert fyrir mig,“ segir Jafet. „Hins vegar
kynnist ég skemmtilegu fólki í gegnum
útgáfuna. Rithöfundar eru sérstakur þjóð-
flokkur eins og aðrir listamenn. Fólkið er
skemmtilegt en þetta er erfið atvinnugrein og
hefur alltaf verið.“
Börnin eru þrjú og meira og minna upp-
komin. Elst er Jóhanna Sigurborg. Húnn
vinnur hjá Landsbankanum í Luxemburg.
Þá er Ari Hermóður en hann er hjá Síma-
num og yngst er Sigríður Þóra, nemi í Versl-
unarskólanum.
Ræðismaður Rúmeníu
Nú síðast hefur það gerst að Jafet hefur verið
skipaður ræðismaður Rúmeníu á Íslandi.
Ræðismannsstaðan kemur í beinu framhaldi
af viðskiptum Jafets í Rúmeníu.
„Fyrst þegar ég fór til Rúmeníu naut
ég aðstoðar Theodor Palegologu, sendiherra
Rúmeníu á Íslandi, en hann situr í Kaup-
mannahöfn,“ segir Jafet. „Ég hef oft verið í
sambandi við hann hér heima, í Danmörku
og Rúmeníu vegna þessara viðskipta og ég
geri ráð fyrir að hugmyndin um að gera
mig að ræðismanni sé frá honum komin,
hann gerir tillögu til rúmenskra stjórnvalda
og síðan skipar utanríkisráðherra Ingibjörg
Sólrún mig í embættið.“
j a f e t s . ó l a f s s o n