Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 57

Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 57
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 57 Þ etta var bara kalt mat. Rúmenía varð fyrir valinu vegna þess að þar voru möguleikarnir mestir,“ segir Jafet S Ólafsson sem nú hefur í rúmt ár verið fjárfestir í fullu starfi – bæði með sína eigin peninga og félaga sinna – og einbeitt sér að byggingu íbúða í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu. Alls 1500 meðalstórar íbúðir sem byggingafélag að nafni Gigant Construct byggir í svoköll- uðu Títan-hverfi í borginni. 200 íbúðir eru tilbúnar og seldar, 330 verður lokið í ár og allt klárað á næstu þremur árum. Allt eru þetta íbúðir 65 til 110 fermetrar að stærð og ætlaðar til sölu á almennum markaði. Síðan hefur félagið fest kaup á tveimur lóðum til viðbótar og þar gætu risið allt að 1000 íbúðir. Jafet segir að veltan sé upp á um 2,5 millj- arða íslenskra króna á því sem sé lokið – það er eigið fé fjárfestanna og lán sem tekin eru í Rúmeníu. Hann segir að yfirleitt sé gert ráð fyrir að eigið fé sé 20 til 25% af fjárfestingu í húsnæði. Það þýðir að Íslendingarnir sem eiga Gigant Construct hafi lagt rúman hálfan milljarð í fjárfestingarnar í Búkarest. Og rúmenski framkvæmdastjórinn, Corneliu Serban, á þrjú prósent byggingafélagsins. „Það eru þrjú ár síðan við byrjuðum á þessu verkefni í Rúmeníu,“ segir Jafet. Þó er ekki nema hálft annað ár liðið frá því hann hætti sem framkvæmdastjóri VBS fjárfest- ingabanka og fór að sinna þessum og öðrum fjárfestingum eingöngu. Annars er Jafet oft- ast kenndur við Verðbréfastofuna og á enn smáhlut í félaginu. Rúmenar sátu eftir Upphaflega beindist athygli Jafets og félaga hans að Eystrasaltslöndunum. Fleiri Íslend- ingar hafa verið þar. Síðan var ákveðið að leita möguleika í fleiri löndum Austur-Evr- ópu – í Tékklandi, Ungverjalandi og í Rúm- eníu. „Við völdum Rúmeníu vegna þess að þar var þróunin skemmra á veg komin en í flestum nágrannalöndunum. Rúmenar lentu á eftir mörgum öðrum ríkjum Austur-Evr- ópu eftir fall járntjaldsins. Þróunin varð strax mjög ör - til dæmis í Ungverjalandi - og því færri tækifæri fyrir nýja fjárfesta að komast þar inn. Í Rúmeníu hófst þessi hraða upp- bygging með erlendum fjárfestingum varla fyrr en á þessari öld og aðallega fyrir þremur árum eða svo.“ Þetta eru staðreyndirnar sem búa að baki þegar Jafet talar um „kalt viðskiptalegt mat“ þegar hann og félagar hans fóru að leita fyrir sér í Rúmeníu. Grátt leiknir af kommúnistum Jafet segir að kauphöll hafi fyrst verið opnuð í Búkarest árið 1995 og hafði þá ekki starfað í 50 ár eða frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Fall kommúnistaleiðtogans Nicolae Ceau- sescu - hann var skotinn ásamt konu sinni á jólunum 1989 - leiddi ekki til aukins frelsis í fyrstu. Gamla stjórnkerfið hélt velli og það fór ekki að rofa til fyrr en tíu árum eftir fall harðstjórans. Þá var tíundi hver Rúmeni farinn úr landi í atvinnuleit og landið hélt áfram að grotna niður. „Kommúnisminn fór á margan hátt verr með Rúmena en nágranna þeirra,“ segir Jafet. „Undir stjórn Nicolae Ceausescu staðnaði efnahagslífið algerlega. Hjá Ungverjum og Tékkum gerist það ekki með jafnafdrifa- ríkum hætti. Þeir voru því mun fljótari að ná Jafet S. Ólafsson í viðtali um Rúmeníu, ESB og fjárfestingar í útlöndum: Tækifærin eru mörg í Rúmeníu Jafet S. Ólafsson hefur verið fjárfestir í fullu starfi í rúmt ár. Áður var hann alltaf kenndur við Verðbréfastofuna og síðar VBS fjárfestingarbanka. Núna er hann einn margra Íslendinga sem fengið hefur augastað á Rúmeníu. Þar er hann í félagi við fleiri fjárfesta með 1.500 íbúðir í byggingu. Af hverju Rúmenía? texti: gísli kristjánsson • Myndir: geir ólafsson j a f e t s . ó l a f s s o n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.