Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 105
fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 105
Nafn: Marín Magnúsdóttir.
Fæðingarstaður: Höfn, 28 janúar
1976.
Foreldrar: Þorbjörg Magnúsdóttir
og Magnús Hans Magnússon.
Maki: Davíð Kristján Halldórsson.
Börn: Saga Margrét, 11 mánaða.
Menntun: Viðskiptafræðingur með
sérhæfingu í mannauðsstjórnun,
markaðs- og almannatengslum.
framkvæmdastjóri Practical
MArín MAgnúsdóttIr
practical sérhæfir sig í viðburðaskipu-lagningu, hópeflis- og hvataferðum, starfsdögum og sérferðum innanlands
sem erlendis. Framkvæmdastjóri er Marín
Magnúsdóttir: „Mitt starf felst í að sjá um að
hlutirnir gangi vel fyrir sig og að markmiðum
okkar sé náð. Ég er með frábært starfsfólk
sem er mjög fært á sínu sviði, með víðtæka
menntun og reynslu. Starfið er fjölbreytt og
krefjandi enda vinnum við í umhverfi sem er
mjög víðfeðmt. Fundaseta er stór hluti af starf-
inu og dagurinn oft þéttskipaður.“
Sambýlismaður Marínar er Davíð Kristján
Halldórsson, sérfræðingur hjá KPMG hf.
„Við eigum eina dóttur, Sögu Margréti,
sem er ellefu mánaða og hefur hún ósjaldan
komið með mér í vinnuna.“ Marín fæddist á
Höfn en flutti þriggja mánaða til Hólmavíkur
þar sem hún ólst upp og segist hún vera mikil
Strandakona. „Ég bjó á Hólmavík til 16 ára
aldurs og þaðan lá leið mín í hefðbundið
nám.Ég einnig eitt ár skiptinemi í Ástralíu.
Þar eignaðist ég dýrmæta vini og svo kallaða
fósturfjölskyldu sem ég held miklu sambandi
við. Þegar við Davíð fórum að vera saman
söfnuðum við fyrir ferðalagi og ferðuðumst
um Asíu og Ástralíu í þrjá mánuði. Tveimur
árum síðar ákváðum við að flytja til Ástralíu
þar sem við bjuggum í nokkur ár og lukum
framhaldsnámi. Þegar við komum heim
2004 stofnaði ég Practical en ég hafði lengi
verið með þessa hugmynd í maganum. Fyrsta
árið var ég ein en fljótlega jukust umsvifin og
í dag eru sjö fastráðnir starfsmenn auk fjöl-
margra verktaka sem koma að verkefnunum
með okkur.
Hlaup eiga hug minn allan í frítímanum
enda fátt betra fyrir eða eftir góðan vinnudag.
Ég byrjaði fyrst að hlaupa í Ástralíu og hljóp
þar tvö maraþon, í Sidney og Brisbane. Þar
kynntist ég einnig köfun sem ég hreifst mikið
af og stundaði hvenær sem tækifæri gafst til.
Eftir heimkomu hef ég lítið kafað og einbeiti
mér að hlaupunum og almennri útivist og
ferðalögum.
Í sumar ætlar fjölskylda mín í Ástralíu
að koma í heimsókn og hlakka ég mikið til
að sýna þeim Ísland. Einnig eru spennandi
tímar framundan hjá Practical þar sem við
erum þess heiðurs njótandi að vinna með
fjölmörgum spennandi fyrirtækjum í skipu-
lagningu hvers kyns starfs- og hvatadaga auk
fjölmargra viðburða. Ber þá helst að nefna
100 ára afmæli Hafnarfjarðar.“
Marín Magnúsdóttir:
„Hlaup eiga hug minn
allan í frítímanum
enda fátt betra fyrir
eða eftir góðan vinnu
dag. Ég byrjaði fyrst
að hlaupa í Ástralíu
og hljóp þar tvö
maraþon, í Sidney
og Brisbane.“