Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8
DAGBÓK I N
ekki fyrir en að bankinn væri
að skoða málið með lögfræð
ingum sínum.
Í fréttinni sagði ennfremur
að skortstaða væri það nefnt
þegar fjárfestar veðjuðu á að
gengi bréfa myndi lækka í stað
þess að hækka. „Ekkert óeðli
legt er við slíkt nema þegar
tveir eða fleiri hafa samráð
um slíka stöðu gagnvart einu
félagi eða markaði í heild. Við
slíkt verður málið alvarlegt
og ólöglegt samkvæmt lögum
og reglum um kauphallarvið
skipti,“ sagði ennfremur.
29. mars
Óháð úttekt gerð
á Seðlabankanum
Orð Geirs H. Haarde for
sætisráðherra á ársfundi
Seðlabankans um að ríkis
stjórnin hefði ákveðið að leita
álits hjá óháðum, erlendum
fræðimönnum á fyrirkomulagi
og framkvæmd peningastefnu
Seðlabanka Íslands, vakti
bæði athygli
og fögnuð
ýmissa.
Þannig
sendi Við
skiptaráð
frá sér til
kynningu þar
sem ráðið
sagðist fagna
ákvörðun for
sætisráðherra
og að undanfarið hefði íslenska
krónan reynst fyrirtækjum og
einstaklingum fjötur um fót,
enda hefði verðbólga verið við
varandi, gengissveiflur miklar
og vaxtastig hátt.
„Á síðustu misserum hefur
Seðlabankinn mátt sæta tíðri
gagnrýni fyrir framkvæmd pen
ingamálastefnunnar, mismál
efnalegri þó. Trúverðugleiki er
verðmætasta eign hvers seðla
banka, sérstaklega þegar hann
vinnur eftir verðbólgumarkmiði.
Það er því mikilvægt að bank
inn njóti stuðnings í aðgerðum
sínum og ekki sé grafið undan
trúverðugleika hans með gagn
rýni sem er ekki á rökum reist.
Ein besta leiðin til að svo megi
verða er að fá erlenda, óháða
sérfræðinga til að meta árangur
og gæði peningamálastefnu
bankans,“ sagði í tilkynningu
Viðskiptaráðs.
Jón Sigurðsson,
forstjóri FL Group.
31. mars
fL Group selur
hlutinn í finnair
Sagt var frá því að FL Group
hefði selt 12,7% eignarhlut
sinn í finnska flugfélaginu
Finnair og væri því ekki lengur
meðal hluthafa í Finnair. Fram
kom að andvirði sölunnar væri
um 13,6 milljarðar íslenskra
króna og að salan hefði nei
kvæð áhrif á afkomu FL Group
á fyrsta ársfjórðungi 2008 sem
næmi um 1,7 milljörðum króna.
Jón Sigurðsson, forstjóri FL
Group, sagði í tilkynningu:
„Sala hlutanna er í samræmi
við stefnu FL Group um að
minnka vægi eignarhluta í
skráðum félögum sem ekki
falla undir kjarnafjárfestingar
félagsins í fjármála, trygg
inga og fasteignafélögum. Við
leggjum nú mikla áherslu á
stærstu eignarhluta FL Group í
Glitni, Tryggingamiðstöðinni og
Landic Property, auk fjölmargra
fjárfestingaverkefna í óskráðum
félögum í ýmsum greinum.“
31. mars
fór í 450 punkta
Miklar umræður urðu þessa
dagana um að skuldatrygg
ingarálag íslenska ríkisins væri
komið í 450 punkta þrátt fyrir
að íslenska ríkið skuldaði nán
ast ekki neitt. Að vísu hefur
Finnur Odds-
son, fram-
kvæmdastjóri
Viðskiptaráðs.
Nokkrar umræður
urðu um þau orð
ingibjargar Sólrúnar
á flokksstjórnarfundi
Samfylkingarinnar á
Hótel Sögu þennan
sunnudag að senda
þyrfti skýr skilaboð til
erlendra fjármálamark
aða um að áhlaupi á
bankana yrði hrundið
og að bankakerfið yrði
varið með aðstoð rík
isins.
ingibjörg Sólrún
sagði að það kynni að
fela í sér umtalsverða
lántöku hjá ríkissjóði til
að efla gjaldeyrisforða
Seðlabankans og það
kynni líka að fela í sér
að stýrivextir hækkuðu
meira en nú þegar væri
orðið.
ingibjörg Sólrún
sagði enn fremur á
flokksstjórnarfundinum
að spákaupmenn í fjar
lægum heimshornum
högnuðust á hremm
ingum krónunnar og það
vefðist hvorki fyrir þeim
siðferðilega né fjárhags
lega að taka stöðu gegn
henni ef þeir sæju í því
hagnaðarvon. „Í fjár
málaheiminum er eng
inn annars bróðir í leik
og það er ekki spurt um
heiður eða sóma heldur
auð og áhrif.“
30. mars
ingibjörg Sólrún:
ÁhLAupi Á BAnkA verði hrundið
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.