Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 34

Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 DAGBÓK I N á áhyggjur fjárfesta og gert skuldabréf bankanna meira aðlaðandi fyrir þá. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta. 1. apríl exista með 88% í Skiptum Sagt var frá því að eigendur 44,2% hlutafjár í Skiptum, móðurfélagi Símans, hefðu tekið yfirtökutilboði Exista í allt hlutafé félagsins. Að með­ töldum 43,7% hlut sem Exista átti fyrir fer félagið nú með 87,9% hlutafjár í Skiptum. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kom fram að tilboðs­ tímabilið stæði í átta vikur eða til 26. maí 2008. 1. apríl SprOn fær 5 milljarða lán frá kaupþingi Tilkynnt var til Kauphallar Íslands að SPRON hefði tekið víkjandi lán upp á 5 millj­ arða króna hjá Kaupþing og að lántakan væri til 10 ára. Tilgangurinn með lántökunni er að renna enn styrkari stoðum undir eiginfjárgrunn félags­ ins, sagði í tilkynningu til Kauphallarinnar. 2. apríl invik skráð í Stokkhólmi Fréttablaðið var með athyglisvert viðtal við Karl Wernersson, stjórnarformann Milestone, þennan dag. Þar kom fram að Milestone er núna skilgreint sem fjármálaþjón­ ustufyrirtæki og að það ætli að skrá sænska fjármálafyrirtækið invik í OMx Nordic Exchange kauphöllina í Svíþjóð innan tveggja ára. En invik er helsta eign Milestone. Íslensk fyrirtæki í eigu Milestone eru Sjóvá, Askar Capital og Lyf og heilsa. Þau verða í framtíðinni dótturfyr­ irtæki invik. Nema Lyf og heilsa en fram kom hjá Karli að unnið sé að því að selja Lyf og heilsu út úr samstæðunni þar sem lyfjarekstur færi ekki saman við fjármálaþjónustu í skráðu félagi. Það eru eigendur Milestone, ásamt fleiri fjárfestum, sem kaupa lyfjareksturinn. Geir H. Haarde forsætisráðherra. 1. apríl ekki gera neitt, frekar en ein­ hverja vitleysu Geir H. Haarde forsætisráðherra var í Kastljósi þennan dag og sagði m.a. að ríkisstjórnin væri í miklu samstarfi við Seðlabankann um ástandið sem skapast hefði í efnahagsmálum. „Við rösum ekki um ráð fram í þessu efni. Það er mjög mikilvægt að misstíga sig ekki og þá er betra að gera ekki neitt heldur en að gera ein­ hverja bölvaða vitleysu,“ sagði forsætisráðherra í Kastljósi þegar hann var inntur svara um meint aðgerðaleysi ríkisstjórn­ arinnar í efnahagsmálum. Geir minnti menn á að fyrir sex vikum hefði hann nefnt að lántaka til að auka gjald­ eyrisforða kæmi til greina og verið væri að skoða málið. Þá útilokaði hann ekki að ríkið keypti hluta af skuldabréfum bankanna, en benti jafnframt á það væri enginn smápakki því að öll þriggja ára bréf bankanna myndu kosta um 2.900 millj­ arða króna. 4. apríl icelandic Group skráð af markaði Í tilkynningu frá stjórn icelandic Group, áður SH, þennan dag kom fram að stjórnin ætlaði að leggja til á aðalfundi félagsins þann 18. apríl að fá heimild til að afskrá félagið úr Kauphöll Íslands. Það kom ennfremur fram að icelandic Group hefði undan­ farin ár ekki náð að nýta sér kosti þess að vera skráð félag. Þannig hefðu lítil við­ skipti verið með bréf félagsins, verðmyndun verið óskilvirk og dreifing hlutafjár verið undir við­ miðum kauphallarinnar. Þá sagði einnig að félagið ynni að fjárhagslegri endur­ skipulagningu og hagræðingu. 4. apríl Landsframleiðsla 1.279 milljarðar Í Hagvísum Hagstofunnar kom fram að Hagstofan áætlar að landsframleiðsla á árinu 2007 hafi verið 1.279 milljarðar og aukist að raungildi um 3,8% 2. apríl ÓdýrAr LétteinkAþOtur Lítið fyrirtæki með óvenjulega hugmynd komst í fréttirnar í tengslum við Seed Forum ráðstefnuna. Þetta er fyrirtækið Accel Jet sem hyggst kaupa yfir 10 létteinkaþotur á næstu árum og leigja þær innlendum sem erlendum athafna- mönnum. Haft var eftir Einari Arnarssyni, framkvæmdastjóra Accel Jet, að reynslan sýndi að yfirleitt væru tveir til þrír farþegar í venjulegum einkaþotum og fyrir vikið væru þær allt of stórar. Ódýru létteinkaþoturnar byggjast á nýrri tækni og eru eyðslugrennri og mun ódýrari en hefðbundnar einkaþotur. Enda boðar Einar að um helmingi ódýrara verði að leigja þær en venjulegar einkaþotur. Karl Wernersson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.