Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 35

Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 35
DAGBÓK I N F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 35 frá árinu áður. Þessi hagvöxtur er nokkru minni en árið 2006 þegar hann nam 4,4%, og mun minni en árin 2004 og 2005 þegar hann var 7,7% og 7,5%. 4. apríl Hættir við flugvélakaup Við erum ekki að ræða um ríkisstjórnina; hún hefur ekki hugsað sér að kaupa flugvél, heldur dótturfyrirtæki Icelandair Group, Icelandair Cargo. Sagt var frá því að Icelandair Cargo og Icelease hefðu fallið frá samninga- viðræðum við Avion Aircraft Trading um leigu og kaup á fjórum Airbus A330-200 frakt- flugvélum. Viljayfirlýsing um málið var hins vegar gerð í maí á síðasta ári. Flugvélarnar áttu að afhend- ast á árunum 2010 og 2011. Vél af þessari gerð kostar um 130 milljónir dollara, eða 9,1 milljarður króna. 9. apríl Moody´s: Sveigjanleiki Íslands Alþjóðalega matsfyrirtækið Moody’s gaf út ársskýrslu sína þennan dag um lánshæfi íslenska ríkisins. Í ársskýrslu segir Moody’s að Ísland stand- ist mjög vel samanburð við önnur ríki sem hafi lánshæfis- einkunnirnar Aaa og Aa á marga mikilvæga mælikvarða sem notaðir eru til að meta lánshæfi. „Ísland kemur betur út í ýmsum samanburði, meðal ann- ars eru skuldir hins opinbera lágar, tekjur á mann háar, hagkerfið er sveigjanlegt og þjóðin tiltölulega ung og lífeyr- issjóðakerfið öflugt,“ segir Joan Feldbaum-Vidra, skýrsluhöf- undur Moody’s. Í skýrslunni lýsir hann enn- fremur erfiðum þjóðahags- og fjármálalegum aðstæðum sem Ísland standi frammi fyrir eftir margra ára ofþenslu. „Efnahagskerfið stefnir í erf- iða lendingu sem gæti leitt til neikvæðs hagvaxtar í nokkra ársfjórðunga,“ segir hann í skýrslunni. 10. apríl Gjaldeyrisforðinn aukinn Haft var eftir Geir H. Haarde forsætisráðherra á vef frétta- veitunnar Bloomberg að í undir- búningi væri að auka gjald- eyrisforða Seðlabankans, svo að hann gæti mætt auknum erlendum eignum bankanna. Forsætisráðherra sagðist ekki geta nefnt nákvæma tölu um hvað gjaldeyrisforðinn yrði auk- inn mikið. Gjaldeyrisforðinn er núna aðeins rúmir 200 milljarðar króna. 11. apríl Kristinn Þór á faraldsfæti Við sögðum frá því nýlega að Kristinn Þór Geirsson hefði verið ráðinn for- stjóri B&L. En Kristinn er sannarlega á faraldsfæti því þennan dag var tilkynnt að hann hefði verið ráðinn framkvæmdastjóri Fjármála og- rekstrarsviðs Glitnis og tæki sæti í framkvæmdastjórn bankans. 12. apríl Andrés hættir hjá FÍS Sagt var frá því að Andrés Magnússon hefði ákveðið að láta af störfum sem fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Andrés sagði að það hefði alltaf legið fyrir af hans hálfu að hann myndi láta af störfum eftir að aðalfundur FÍS ákvað að samþykkja ekki að ganga til sameiningarvið- ræðna við Samtök verslunar og þjónustu. Hann sagðist láta af störfum í endaðan maí eftir að hafa verið framkvæmdastjóri FÍS í tæp sjö ár. 3. apríl EinbýliSHúS FAllA Í vErði Hér kom auðvitað frétt sem allir höfðu átt von á; að yfirspennt verð á fasteignum ætti eftir að lækka í kjölfar niðursveiflunnar. Á daginn kom að tilkynnt var um mestu lækkun á verði einbýlishúsa í tæp 7 ár. Þessi verðlækkun einbýlishúsa á höfuðborgarsvæðinu nam um 2,4% á milli mánaða sem er mesta lækkun sem mælst hefur frá því í októ- ber 2001 þegar verðið lækkaði um 2,6% á milli mánaða. Í fréttinni af fasteignaverðinu kom fram að verð fasteigna á lands- byggðinni hækkaði um 1,5% á sama tíma og fjölbýli á höfuðborg- arsvæðinu hækkaði um nærri 1%. Stóra málið á fasteignamarkaðnum er auðvitað að hann er nánast frosinn því fáar eignir seljast. Það er því ekki aðeins spurt um verðið – heldur hvort eignin seljist yfir höfuð. Mesta lækkun á verði einbýlishúsa í Reykjavík í 7 ár. Kristinn Þór Geirsson. Andrés Magnússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.