Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2008, Page 30

Frjáls verslun - 01.03.2008, Page 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 19. mars Óinnleystur „gengis­ hagnaður“ bank­ anna 154 milljarðar Á sama tíma og gengi krón­ unnar féll snöggt í dymbilvik­ unni sagði Morgunblaðið frá því að óinnleystur gengishagnaður viðskiptabankanna þriggja af lækkun krónunnar vikurnar þar á undan næmi um 154 milljörðum króna. Þar af væri hagnaður Kaupþings um 101 milljarður frá áramótum en hagnaður Landsbankans og Glitnis væri um 53 milljarðar til samans. Sagt var frá því að gengis­ vísitalan hefði komist í rúm 152 stig í dymbilvikunni en hæsta gengi þar á undan hefði verið 151 stig í lok nóvember árið 2001. Um áramótin sl. var gengisvísitalan 120 stig. Óinnleystur „hagnaður“ bank- anna 154 milljarðar vegna veik- ingar krónunnar. 19. mars Óvarlegt að tala um gengishagnað Forráðamenn bankanna voru ekki hressir með þá fram­ setningu að bankarnir væru að græða stórfé á veikingu krónunnar. Þeir sögðu að það væri röng framsetning. Hið rétta væri að ræða um vörn á eigin fjárhlutfalli. Kaup þeirra á gjaldeyri væru sveiflujöfnunar­ aðgerð. Þannig sagði Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, við Morgunblaðið að hið rétta í málinu væri að Kaupþingi hefði tekist að verja eiginfjárhlutfall bankans. „Megnið af þeirri upp­ hæð sem hér er um að ræða bætist við eigið fé bankans en lítill hluti þess bókast sem hagnaður af veltufjáreignum á rekstrarreikningi bankans. Hið rétta er að okkur hefur tekist að verja eig­ infjárhlutfall bankans í gegnum þessar miklu sveiflur sem hafa orðið á gjaldeyrismarkaði á undanförnum vikum.“ 27. mars Með Ísland á heilanum Erlendir fjölmiðlar hafa aldrei áður sýnt íslensku viðskiptalífi jafnmikinn áhuga og á þessu ári. Sumir hafa þó greinilega meiri áhuga á landinu en aðrir. Þannig eru breskir og danskir fjölmiðlar með Ísland nánast á heilanum þrátt fyrir að banka­ menn í báðum þessum löndum séu á taugum yfir ástandinu heima fyrir. En þennan dag sagði t.d. Daily Telegraph að ástandið á Íslandi gæti haft áhrif á Tyrkland, Eystrasaltsríkin, Balkanríkin, Ungverjaland og hugsanlega Suður­Afríku. Var þetta rökstutt með þeim orðum að þetta væru allt lönd sem lifað hefðu um efni fram og stoppað í fjármálagöt með ódýru lánsfjármagni. Erlend lán þessara ríkja hefðu vaxið langt umfram „öruggan hámarks­ hraða“. Daily Telegraph: Ísland – víti til varnaðar. Blaðið bætti því svo við að brothætt hagkerfi Íslands ætti að vera öðrum löndum víti til varnaðar. 27. mars Svarthvít niðurstaða í forstjórakönnun Það þurfti ekki að koma mjög á óvart að stjórnendur 400 stærstu fyrirtækja landsins væru töluvert svartsýnni en áður um ástandið í íslensku viðskiptalífi. Enda var það niðurstaðan í könnun Seðlabankans sem birt var í Hagvísum Seðlabankans. Fram kom að tæp 50% fyrir­ tækja töldu aðstæður vera slæmar, samanborið við tæp­ lega 20% í desember sl.. Hins vegar voru horfur framundan betri en áður að mati forsvars­ manna fyrirtækjanna. Rúmlega 25% töldu að aðstæður yrðu betri eftir sex mánuði, saman­ borið við 16% í síðustu könnun. Þetta er því nokkuð merki­ leg niðurstaða: Fleiri svartsýnni en áður – en líka bjartsýnni. Eigum við að segja að þetta sé svarthvít niðurstaða? 28. mars Auður kvenna vex hratt Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auðar Capital, sagði á námstefnunni Virkjum fjármagn kvenna sem haldin var á Hótel Nordica, að fjár­ auður kvenna um allan heim yxi með miklum hraða ­ mun meiri hraða en margir gerðu sér grein fyrir. D A G B Ó K I N TExTi: Jón G. Hauksson • MyNDiR: Geir ólafsson o.fl. Það voru svartir dagar í dymbilvikunni. 19. mars Svartir dagar fyrir páskafrí Landsmenn fóru í páskafrí nokkuð áhyggjufullir út af efnahagsmálum. Það voru svartir dagar í geng­ ismálum í dymbilvikunni og krónan hafði látið skarpt undan. Þannig fór sterl­ ingspundið í 156 krónur miðvikudaginn 19. mars, daginn áður en flestir skunduðu í páskafrí. Evran fór í 123 krónur og doll­ arinn í 78 krónur. Krónan hefur heldur styrkst frá páskum en samt ekki svo; það hefur verið bitamunur frekar en fjár. Hreiðar Már Sigurðsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.