Frjáls verslun - 01.03.2008, Page 43
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 43
síðastliðið sumar hvatamaður að mótmælum
á Kársnesinu. Í framhaldi af mótmælunum
voru stofnuð samtökin Betri byggð á
Kársnesi, en þau hafa það að markmiði að
standa vörð um lífsgæði íbúa í vesturbæ
Kópavogs.
Árið 2005 uppskar Þórarinn
árangur erfiðis síns hjá
Domino´s þegar hann var
valinn alþjóðaverslunarstjóri
ársins á glæsilegri sýningu
sem haldin var í Las Vegas.
þ ó r a r i n n h j ö r t u r æ v a r s s o n í n æ r m y n d
og aukaatriða. Hann er fylginn sér og öflugur samninga-
maður, sem þó leitar eftir lausnum sem báðir aðilar geta
unað sáttir við. Maður vinnur ekki traust Þórarins í einu
vetfangi, en þegar traust skapast er afar gott að vinna með
honum og það sem hann segir stendur eins og stafur á bók.
Friðrik Rafn Larsen,
lektor við Háskólann í Reykjavík:
Lætur ekki glepjast
Við Þórarinn kynntumst árið 1993 þegar hann var verslunar-
stjóri Domino’s en ég rak þá Bros-Boli sem ég hafði stofnað
það ár ásamt bróður mínum. Þórarinn var einn af okkar
fyrstu viðskiptavinum. Við áttum skap saman og tengdumst
mjög fljótt vináttuböndum sem hafa haldið í gegnum árin.
Þórarinn er einkar heiðarlegur, fylginn sér og afar réttsýnn
þannig að ef honum finnst á sér brotið lætur hann ekkert
stöðva sig í að leiðrétta slíkt og gengur í því eins langt og
ganga þarf. Birtingarform slíkra persónuleikaeinkenna eru
gjarnan útistöður við aðra þegar réttlætis er leitað. Það
á líka við Þórarin. Hann hefur átt í útistöðum öðru hverju,
bæði á opinberum vettvangi og vettvangi laga en hefur
alltaf betur í þeim rimmum sem mér finnst vitna um heil-
brigða ráðvendni hans. Þessu til viðbótar hefur Þórarinn afar
sterka siðferðis-
kennd. Hann
hefur aldrei
látið glepjast
af gylliboðum
sem stundum
viðgangast í við-
skiptalífinu enda
vill hann ekki
að neinn eigi
neitt inni hjá sér
sem hann getur
ekki borgað til
baka með góðri
samvisku. Að
þessu sögðu
kemur mér ekki
á óvart inn-
legg Þórarins í
umræðuna um verðhækkanir í kjölfar gengislækkunar krónu.
Hann er einfaldlega að gera það sem hann telur vera rétt en
ekki það sem hann kæmist mögulega upp með. Maðurinn
er einfaldlega gegnheill og traustur haukur í horni ef maður
þarf á að halda.
Friðrik Rafn Larsen.
Þórarinn er Kópavogsbúi í húð og hár.