Frjáls verslun - 01.03.2008, Page 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8
M
ikið hefur verið rætt og ritað um leið-
togann og hlutverk hans á liðnum
árum. Í bók sinni 360°Leader fjallar
John Maxwell ítarlega um ákveðna teg-
und leiðtoga sem orðið hefur útundan
í þeirri umræðu. Leiðtogann, sem ekki situr efst í fyrir-
tækjum, heldur leiðir „frá miðju“ eins og hann orðar
það, með fólk undir sér, samhliða og yfir sér. Stað-
reyndin er sú að ekki er pláss fyrir alla
leiðtoga á toppnum.
John Maxwell heldur því fram að þessi
hópur leiðtoga sé mikilvægasti hlekkurinn í
árangri fyrirtækja og með því að leggja rækt
við þennan hóp geti fyrirtæki bætt árangur
sinn til muna. Þessi hópur geti jafnframt haft
meiri áhrif en leiðtogarnir á toppnum ef þeir
leggja sig fram um að sinna sínu hlutverki
af alúð og með því að leiða allan hringinn í
sínum fyrirtækjum.
Þeir þurfa að vera leiðtogar sinna starfs-
manna en jafnframt þeirra sem standa samhliða
þeim í skipuritinu og síðast en ekki síst þurfa
þeir að leiða upp, vera leiðtogar sinna yfirmanna. Þegar
þetta tekst er miðjuleiðtoginn orðinn áhrifamikill innan
fyrirtækisins, langt umfram sitt stöðuheiti.
s t j ó r n u n a r b æ k u r
Leiðtoginn sem
leiðir „frá miðju“
Unnur Valborg Einarsdóttir skrifar
hér um bókina 360°Leader eftir
John Maxwell. Þetta er ekki bók
um leiðtogann, sem situr efst í
fyrirtækinu, heldur um þann sem
situr mitt í hringiðunni; með fólk
undir sér, samhliða og yfir sér.
Það er ekki rými fyrir alla leiðtoga
á toppnum.
Unnur Valborg Einarsdóttir hefur tekið að sér að skrifa um stjórnunarbækur í
Frjálsa verslun.
Bækur: