Frjáls verslun - 01.03.2008, Síða 65
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 65
Herferð Icelandair í tengslum við nýju sætin og afþreyingarkerfið í Boeing 757 þotum félagsins er dýr. Hún kostar yfir 1,8 milljarða
króna. Og fyrir þann sem þarf að leggja út
fyrir þessu hlýtur spurningin að vera: Borgar
þetta sig? Er þetta ekki of kostnaðarsamt,
hvað þá þegar ekki er ætlunin að hækka verð
flugfargjalda?
Halldór Harðarson, markaðsstjóri Ice-
landair, er sannfærður; þetta er fjárfesting
sem borgar sig upp og tryggir félaginu fleiri
farþega til langs tíma. Hann segir ætlunina
ekki að hækka verð á farmiðum í tengslum
við breytingarnar, heldur að tryggja fleiri
farþega með aukinni sérstöðu og þægindum
um borð. Samkeppnin við önnur flugfélög í
Evrópu og Bandaríkjunum er hörð. Félagið
skilgreinir hins vegar Iceland Express sem
sinn helsta keppinaut á heimamarkaði og
fróðlegt verður að sjá hvernig hann bregst við
hinni nýju herferð Icelandair.
Frjáls verslun þáði boð Icelandair þegar
félagið kynnti fyrir blaðamönnum breyting-
arnar og í hverju markaðsherferð félagsins
væri fólgin. Tilefnið var að fyrsta Boeing 757
þota félagsins af ellefu var tilbúin eftir gagn-
gerar breytingar á innréttingum og tækni-
búnaði fyrir farþega og komin í gagnið með
nýju sætunum. En til stendur að breytingum
á öllum vélunum verði lokið fyrir árslok.
Ný sæti og meiri afþreying
Breytingarnar snúast fyrst og fremst um
aukin þægindi um borð; meira rými í sætum
og meiri afþreyingu. Hver farþegi hefur í sæti
sínu aðgang að snertiskjá þar sem boðið er
upp á 13 nýjar kvikmyndir, sjónvarpsþætti,
tölvuleiki, (t.d. skák), tónlist, frétta- og
kynningarefni um Ísland, viðtöl við þekkta
s a g a n á b a k v i ð H e r f e r ð i n a
Herferð Icelandair í tengslum við nýju sætin og afþreying-
arkerfið er umfangsmikil. Hún kostar sitt, hún er hluti af
nýrri ímynd, undirbúningur hefur staðið lengi yfir, hundruð
starfsmanna hafa komið að henni og herferðin nær til
ýmissa fleiri breytinga, eins og nýrra einkennisbúninga
áhafna, tónlistar um borð, veitinga og fleiri þátta.
Í tengslum við herferðina fá allar þotur félagsins ný nöfn,
nöfn þekktra eldfjalla, eins og Hekla, Askja, Skjaldbreiður
og Surtsey.
texti: Jón G. Hauksson • Myndir: Geir ólafsson
Ný sæti og afþreying í þotum Icelandair:
Herferð
sem kostar 1,8 milljarða