Frjáls verslun - 01.03.2008, Síða 73
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 73
Beovision9 er jafnframt með innbyggðan
harðan disk til að geyma myndefni og getur
tekið sjónvarpsefni upp á einfaldan hátt.
Þannig má „stöðva“ sjónvarpsútsendingu,
t.d. til að svara í símann og halda svo
áfram að horfa þannig að sjónvarpið „eltir“
sjónvarpsútsendinguna, auk þess sem
að sjálfsögðu er hægt að taka upp á ann-
arri rás en verið er að horfa á. Svo er þar
að auki innbyggt hátalarakerfi í skjánum,
þótt vissulega sé einnig hægt að bæta við
„surround“ hljóðkerfi frá Bang & Olufsen í
stíl. En eins og gera má sér í hugarlund er
verðið ekki fyrir þá sem hafa ofnæmi fyrir
mörgum núllum.
2. Heimilishljóðkerfi
Að sjálfsögðu verður svo að vera almenni-
legt hljóðkerfi á heimilinu. Á alvöru
hátækniheimili er hljóðkerfið með stórum
hörðum diski, þannig að hægt sé að vista
þar allt tónlistarsafnið. Svo er flett milli
diska með fjarstýringunni og ávallt hægt
að sjá upplýsingar um þá tónlist sem verið
er að spila hverju sinni – nafn flytjanda,
plötu og lags. Við aðalsjónvarp heimilisins
er heimabíókerfi sem skilar öllum umhverf-
ishljóðum þannig að áhorfendur upplifa sig
inni í miðri bíómynd. Annars staðar í húsinu
eru svo fleiri hátalarar sem tengdir eru við
hljóðkerfið, þar sem hægt er að hlusta á
útvarp eða tónlist úr safninu. Slík hljóðkerfi
ráða við að spila eitt í sjónvarpsherberg-
inu, annað í eldhúsinu og jafnvel það þriðja
í barnaherberginu. Dæmi um slíkt kerfi er
Bose Lifestyle hljóðkerfið, sem er í ofaná-
lag búið þeim skemmtilega eiginleika að
geta skannað herbergið sem hátalararnir
eru staðsettir í og stillt sjálfkrafa hljóminn
þannig að hann henti viðkomandi rými sem
best.
3. Miðstýrð lýsing
Hátækniheimilið er með öll ljós miðstýrð,
þannig að frá einum stað, t.d. lausri fjar-
stýringu eða í stjórnstöðvum við útihurðir,
er hægt að kveikja, slökkva eða stýra
birtustigi allra ljósa í húsinu. Setja má upp
ýmsar fyrirfram gefnar stillingar á öllum
ljósum í húsinu, þannig að með því að ýta á
einn hnapp má breyta allri lýsingu eftir því
sem við á. Hefðbundin kvöldverðarstilling
kveikir t.d. ljós við eldhúsborðið á meðan
rómantísk kvöldverðarstilling sér til þess
að kertaljós njóti sín sem best í setustof-
unni. Þessu fylgir líka að sjálfsögðu sá
kostur að maður þarf ekki að standa upp
til að kveikja, slökkva eða stilla ljósin –
sem eru sjálfsögð mannréttindi!
4. Miðstýrður hiti
Hitastýring er orðin sjálfsagður hluti af
hátækniheimilinu, þar sem húshitun er
komin úr ofnunum og í gólfin – og öllu er
miðstýrt. Þannig má sjá hitastig í öllum
herbergjum hússins í stjórnstöðinni og
hækka og lækka að vild. Þar að auki má
nýta kerfið til að spara hitunarkostnað með
því að draga úr notkun heits vatns þegar
enginn er heimavið, stilla hitann í heitum
pottum og þar fram eftir götunum.
5. Öryggiskerfi
Hátækniheimili eru að sjálfsögðu útbúin
öflugum öryggiskerfum sem láta bæði vita
af innbrotsþjófum og annarri hættu, svo
sem reyk, eldi eða leka. Öryggismyndavélar
eru staðsettar á mikilvægum stöðum og er
hægt að skoða beina útsendingu frá þeim
með því að skrá sig inn á sitt heimasvæði
á Netinu, auk þess sem þar má stjórna
ýmsum stillingum öryggiskerfisins – til
að mynda kveikja á því, ef það gleymdist
áður en farið var að heiman. Að sjálfsögðu
fylgir þessu öllu saman svo myndavél við
dyrasímann, þannig að auðvelt er að virða
fyrir sér þann sem knýr dyra hverju sinni
áður en honum er hleypt inn.
6. Rafknúin gluggatjöld
Það er voðalega 1900-eitthvað að draga
gluggatjöldin handvirkt fyrir og frá, finnst
ykkur ekki? Á hátækniheimilinu er þetta
að sjálfsögðu rafdrifið og hægt að hleypa
sólskininu inn eða loka á nágrannana með
einni skipun á fjarstýringu. Þetta er sér-
staklega þægilegt þegar kemur að því að
draga fyrir alla glugga í einu áður en farið
er úr húsi.
20
nauðsynlegir hlutir fyrir
hátækniheimilið
nauðsynlegir hlutir fyrir
hátækniheimilið
13
19