Frjáls verslun - 01.03.2008, Page 93
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 93
„Þetta var eins og hvert annað hunds-
bit. Ég hugsa ekki um það heldur öll þau
tækifæri sem ég hef fengið í lífinu og þá góðu
viðskiptavini sem ég hef átt. Sömuleiðis þá
frábæru vini sem ég hef átt að í búðunum
hér í nágrenninu,“ segir Jórunn en þess má
geta að verslun hennar er í húsnæði sem
Handprjónasambandið á. Þótt verslunin sé
skráð til heimilis að Skólavörðustíg 19 þá er
hún Klapparstígsmegin. Þeir, sem vita ekki
hvar bestu sængurföt og dúka bæjarins er
að finna, geta þurft að leita í dálítinn tíma
að versluninni og þannig var það með Pál
Kjartansson ljósmyndara sem er nýkominn
á staðinn til að mynda hinn aldna verslunar-
eiganda. „Ég hringdi í eiginkonuna sem var
með þetta alveg á hreinu. Sjálfur hefði ég
átt að vita þetta þar sem ég hef síðustu árin
sofið við sængurföt sem Jórunn seldi okkur,“
segir Páll. Jórunni þykir greinilega lofið gott
og í samtali okkar kemur fram að þegar fyrri
eigandi hússins seldi húsnæðið til Hand-
prjónasambandsins þá hafi hann sett það
skilyrði að Jórunn fengi að halda sínu rými
áfram á meðan hún lifði eða stundaði versl-
unarrekstur gegn 20 þúsund króna mán-
Ég er engin hetja en ég
er til vitnis um að lífið
getur verið ævintýri.
Það kemur allt, sem
mann vantar, upp í
hendurnar á manni.
aðargreiðslu. Það hefur staðið eins og stafur
á bók og hefur leigugreiðslan verið greidd
skilvíslega með ávísun í hverjum mánuði.
,,Mér finnst þjóðin vera á réttri leið“
Jórunn segist ekki geta verið annað ánægð en
ánægð á þessum tímamótum og hún setjist í
helgan stein sátt við Guð og menn.
„Það eru allir að tala um að allt sé að
fara á verri veg í þjóðfélaginu. Það er ekki
mín tilfinning. Ef eitthvað er þá finnst mér
að þjóðin sé á réttri leið. Samhjálpin er
miklu meiri og hrokinn, sem mér fannst
vera alltof mikill á sínum tíma, er að mestu
horfinn. E.t.v. var stéttaskiptingin meiri í
gamla daga. Samfélagið er nú miklu opnara
og betra en það var fyrrum. En hvað er ég
að segja um lífið? Ég þekki bara lífið hér við
Skólavörðustíginn og það hefur verið gott líf
og götunni, íbúunum og þeim, sem hingað
hafa sótt, til mikils sóma. Ég hef ekki tölu
á þeim leyndarmálum, sem mér hefur verið
trúað fyrir í áranna rás, og þau fara með mér
í gröfina. Hér hef ég eignast minn skilning á
lífinu og fyrir það þakka ég af heilum hug.
Ég bið sömuleiðis fyrir hjartans kveðjur til
allra þeirra sem ég hef átt viðskipti við á
undanförnum áratugum. Án þeirra hefði
verslunin aldrei gengið,“ segir Jórunn Brynj-
ólfsdóttir. En síðustu spurningunni um hvað
taki nú við þegar hún hættir verslunarrekstr-
inum svarar hún:
„Ég er ekki hrædd um að mér muni leiðast
þótt ég muni vissulega sakna búðarinnar. Ég
hef sem betur fer aldrei þurft að nota gler-
augu og les mikið. Það er mitt helsta áhuga-
mál. Og svo mun ég sennilega halda áfram
að reikna í huganum. Ég hef aldrei lært á
tölvu og sennilega er ég orðin of gömul til
þess. Mér þykir betra að fara aftur í tímann
og sækja í minningarnar í stað þess að takast á
við hluti sem ég kann engin skil á.“
Jórunn Brynjólfsdóttir og Sigurveig dóttir hennar í Verslun Jórunnar Brynjólfsdóttur að
Skólavörðustíg 19.