Frjáls verslun - 01.05.2007, Page 234
234 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
Spakleg orð kvenna um hitt kynið.
UMSJÓN: PÁLL BJARNASON
Karlmenn kunna ekki að skammast sín.
Ég er viss um að þeir myndu halda áfram
að glápa á mig þó að ég væri allsber.
Anita Ekberg
Ég hef enn ekki heyrt karlmann spurðan
að því hvernig hann fari að því að sameina
hjónaband og starfsframa.
Gloria Steinem
Karlmenn stela fyrsta kossinum, sárbæna
um þann næsta, heimta þann þriðja, þiggja
þann fjórða – og umbera alla kossa eftir
það.
Helen Rowland
Treystu aldrei eiginmanni sem er víðs fjarri
eða piparsveini sem er of nærri.
Helen Rowland
Mér líkar vel við Frakka því að jafnvel
þegar þeir móðga mann gera þeir það svo
kurteislega.
Josephine Baker
Fornleifafræðingur eru besti eiginmaður
sem kona getur fengið. Því eldri sem hún
verður þeim mun meiri áhuga hefur hann á
henni.
Agatha Christie
Þegar karlmaður fer sínu fram er hann
ákveðinn, þegar kona fer sínu fram er hún
frekja.
Bette Davis
Ég giftist Þjóðverja. Á hverju kvöldi var ég
í hlutverki Póllands í seinni heimsstyrjöld-
inni.
Bette Midler
Menn segja að konur tali of mikið. Þá ættu
þeir að vita að málþóf á þingi var fundið
upp af karlmönnum.
Clare Booth Luce
Það er ekki mikil list að veiða karlmann
í net konu. En það er mikil list að telja
honum trú um að hann sé frjáls í netinu.
Colette
Varið ykkur á manni sem segist styðja
kvenfrelsisbaráttu. Hann ætlar sér að
hætta að vinna.
Erica Jong
Hjónaband er góð stofnun, en ég er ekki
tilbúin að leggjast inn á stofnun.
Mae West
Guð skapaði manninn á undan konunni. Ég
hef sama háttinn á þegar ég skrifa, ég geri
fyrst uppkast.
Karen Blixen
Engin leið er að fá mann til að standa við
það sem hann hefur sagt ef hann er ást-
fanginn, drukkinn eða í pólitík.
Shirley McLaine
Flestar konur reyna að breyta mönnum
sínum og þegar þær hafa breytt þeim, þola
þær þá ekki lengur.
Marlene Dietrich
Við konur þörfnumst fegurðar til þess að
karlarnir elski okkur og heimsku til þess að
við getum elskað þá.
Coco Chanel
Það eru ekki mennirnir í lífi mínu sem
skipta máli heldur lífið í mönnunum mínum.
Mae West
Karlmenn kunna ekki
að skammast sín ...
‘07 70ÁR Á FLUGI
W W W. I C E L A N DA I R . I SFerðaávísun gildir
Frjáls verslun 210x275mm
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
81
06
0
6
/0
7
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í
hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
HLUNNINDI SEM FYRIRTÆKJASAMNINGUR VEITIR:
• Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
• Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn - alla daga ársins.
• Afsláttur sem býðst á fargjöldum til áfangastaða Icelandair
og sérkjör á tengifargjöldum.
• Sveigjanlegri fargjaldaskilmálar.
• Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?