Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 79
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 79
K
Y
N
N
IN
G
Plastprent hf. er leið-andi fyrirtæki í fram-leiðslu plastumbúða og
plastfilma. Að sögn Þóru Grétu
Þórisdóttur, fjármálastjóra Plast-
prents, býður fyrirtækið plast-
umbúðir og skyldar vörur til
reksturs og endursölu:
nýjustu aðferðir og tækni
„Við leggjum mikla áherslu á
að bjóða viðskiptavinum okkar
vörur og þjónustu sem mæta
ströngustu kröfum um gæði og
samkeppnishæft verð. Með þessi
grunngildi að leiðarljósi höfum
við kappkostað að nýta nýjustu
aðferðir og tækni við framleiðsl-
una. Auk þess er yfirlýst stefna
okkar að vera stöðugt í farar-
broddi hvað varðar vörugæði og
þjónustu.“
endurnýting í hávegum höfð
„Fyrirtæki sem starfa í plast-
iðnaði hafa unnið markvisst að
þróun á leiðum til endur-
nýtingar á plasti og eru ýmsir
möguleikar í boði í þeim efnum.
Plastprent hefur í áraraðir endur-
unnið plastúrgang sem til fellur
í verksmiðjunni til framleiðslu
á sorp- og burðarpokum. Það
sem ekki er endurunnið hjá
okkur er sent til Sorpu og fargað
á öruggan og umhverfisvænan
hátt. Við höfum jafnframt verið
að þróa framleiðslu á pokum og
plastfilmum úr lífbrjótanlegu
efni sem unnið er úr maíssterkju
og er spennandi verkefni til
framtíðar.“
Átt þú góð ráð handa konum
sem hafa áhuga á stjórn-
unarstörfum hjá
fyrirtækjum?
„Já, að hafa trú á færni sinni og
því sem þær eru að fást við, og
láta sig málin varða. Annars tel
ég mikilvæga eiginleika sérhvers
stjórnanda felast í skýrri sýn,
heilindum, hugrekki til að fram-
kvæma og brennandi áhuga á
viðfangsefninu.“
Hvaða augum lítið þið hjá
Plastprenti á reksturinn um
þessar mundir?
„Því er ekki að neita að rekstrar-
umhverfið er erfitt í dag og
mikil áskorun að stýra fyrir-
tækjum. Á móti kemur að við
erum með gott starfsfólk sem er
tilbúið til að leggja hart að sér
með okkur – það þarf kraft og
þor þegar á móti blæs.
Við höfum einsett okkur
að vinna vel úr því sem til er,
hagræða og leita sóknarfæra
sem spretta upp í breyttu
umhverfi.“
Þóra Gréta Þórisdóttir, fjármálastjóri Plastprents.
„Við leggjum mikla
áherslu á að bjóða
viðskiptavinum
okkar vörur og
þjónustu á sam-
keppnishæfu verði
án þess að slá af
ströngustu kröfum
um gæði og fag-
mennsku.“
STöÐUGT Í FARARBRODDI
Í VöRUGÆÐUM OG ÞJÓNUSTU
Plastprent