Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 96

Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 s t j ó r n u n - s á l f r æ ð i háskóla frá árinu 2002 sýndi að megineinkenni þeirra sem upplifðu mestu hamingjuna og fæst einkenni þunglyndis eru sterk tengsl þeirra við vini og fjölskyldu og skuldbinding þeirra til að verja tíma með þeim. Mikilvægt er því að skapa sér öflugt félagslegt tengslanet og huga að nánum samskiptum og félagslegum stuðningi til að öðlast hamingju, að sögn Dieners. Mælitæki hamingjunnar Hamingjustig er að sjálfsögðu ekki óbreyt- anleg stærð. Jafnvel hamingjusamasta fólkið – efstu 10 prósentin – eru daprir á stundum. Og jafnvel þeir döprustu upplifa ánægjuleg augnablik. Þessi staðreynd hefur gert fræðimönnum erfitt að mæla hamingju. Auk þess er ham- ingja í eðli sínu huglæg. Til að takast á við þessar áskoranir hafa fræðimenn hugsað upp mismunandi leiðir til að mæla hamingju. Diener hefur til dæmis þróað tól sem er mikið notað og nefnist Sat- isfaction with Life Scale. Þó að fræðimenn hafi sett spurningarmerki við lögmæti spurningalistans, sem er einfaldur og samanstendur af einungis fimm spurn- ingum, hefur Diener komist að því að mælitækið samræmist vel öðrum mæl- ingum á hamingju, svo sem áliti vina og fjölskyldu, tjáningu jákvæðra tilfinninga og lágri tíðni þunglyndis. Fræðimenn hafa þróað önnur tól til að skoða meira tímabundið hugarástand. Csikszentmihalyi þróaði t.d. aðferð þar sem haft er samband við fólk með jákvæðustu athafnir kvenna eru í röð mikilvægis: kynlíf, samskipti við aðra, að slaka á, að stunda bænir, hugleiðslu og að borða. 1. Rannsóknir dieners og annarra hafa leitt í ljós að þegar búið er að mæta frum- þörfum okkar skapa aukalegar tekjur ekki meiri ánægju með lífið. 2. Góð menntun skapar heldur ekki leið- ina að hamingju né mikil vitsmunagreind, kynþáttur eða kyn. 3. Æskan virðist ekki áhrifaþáttur heldur. eldra fólk er almennt ánægðara með líf sitt en ungt fólk og sjaldnar í þungu skapi. 4. Nýleg rannsókn af Centers for disease Control and Prevention sýndi að fólk á aldr- inum 20–24 ára er dapurt að meðaltali 3,4 daga í mánuði á meðan fólk á aldrinum 65–74 ára upplifir aðeins 2,3 slíka daga. 5. Hjónabandið er nokkuð flókið fyrirbæri. Gift fólk er almennt hamingjusamara en einstæðingar, en það gæti hins vegar verið að fólk í hjónabandi hafi verið hamingju- samara til að byrja með. 6. Sólin virðist ekki hafa úrslitaáhrif á ham- ingju fólks. 7. Fólk í suðrænum löndum er ekki endi- lega hamingjusamara en fólk á norðurhveli jarðarinnar. 8. Það að vera hraustur sýnir heldur ekki marktæk tengsl við hamingju fólks en hins vegar tengist sú huglæga skynjun á því hversu hraust við erum hamingjustigi okkar. 9. Megineinkenni þeirra sem upplifðu mestu hamingjuna og fæst einkenni þunglyndis eru sterk tengsl þeirra við vini og fjölskyldu 10. Það að vera góður gerir viðkomandi hamingjusaman. Gæska, þakklæti og hæfi- leikinn til að elska er málið. 11. Aðferðin var prófuð á hópi 900 kvenna í texas og voru niðurstöðurnar nokkuð óvæntar. Í ljós kom að jákvæðustu athafnir kvenna eru í röð mikilvægis: kynlíf, sam- skipti við aðra, að slaka á, að stunda bænir eða hugleiðslu og í fimmta sæti að borða. Miklu neðar á listanum var að annast börnin sem kemur á óvart því fólk nefnir börnin yfirleitt sem stærstu upp- sprettu ánægju. 12. Í könnun tiMe í desember 2004 kom önnur niðurstaða í ljós en í rannsókninni í texas. Þegar spurt var hvaða eitt atriði hefði fært fólki mestu hamingjuna, nefndu 35% börnin, barnabörnin eða bæði. trúin var í öðru sæti (17%) og makinn miklu neðar eða 9%. 13. Þakklætisæfingar geta gert meira en að lyfta skapi manns. robert emmons, sálfræðingur við háskóla Kaliforníu við davis, komst að því að þær bæta líkamlega heilsu, auka orkustig og draga úr verkjum og þreytu. 14. Í rannsóknum sínum fann hann þrjá þætti hamingju: 1) nautnir (sportbíllinn, Pamela Anderson, rjóminn á kökuna); 2) Helgun (hversu mikið við helgum okkur fjöl- skyldunni, starfinu, ástarsamböndum og áhugamálum); 3) tilgangur (að nota styrk- leika okkar í þágu annarra). Lítil tengsl eru á milli nautna og hamingjusams, ánægju- legs lífs. 15. Síðustu tveir þættirnir og þá sérstak- lega tilgangur þar á móti hafi miklu meiri tengsl við lífsánægju. 16. David Lykken fann að breytilegir þættir eins og tekjur, hjúskaparstaða, trú og menntun stuðla aðeins um 8% að almennri vellíðan fólks. Afgangurinn er þau atriði sem lífið færir okkur í fang. 17. Eftir að hann bar saman upplýsingar eineggja og tvíeggja tvíbura komst hann að þeirri niðurstöðu að um 50% af lífsánægju er erfðafræðilegt. Genin hafa áhrif á þætti eins og að hafa bjartan, léttlyndan persónu- leika, að geta stjórnað stressi og álagi, ásamt litlum kvíðatilfinningum og þunglyndi. um hamingjuna ...
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.