Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 97

Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 97
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 97 ójöfnu millibili í gegnum lófatölvu og það beðið að skrifa niður svör við spurningum eins og: Hvað ertu að gera? Hversu mikla ánægju hefur þú af því sem þú ert að gera? Ertu ein(n) eða í samneyti við aðra? Þessi aðferð sem er kölluð Experience Sampling Method er kostnaðarsöm, ágeng og tímafrek, en gefur mjög góða og nákvæma mynd af ánægju fólks á hverjum tíma og meðan á ákveðinni athöfn stendur. Að annast börnin ekki ofarlega á listanum Í lok ársins 2004 kom sálfræðingurinn og Nóbelsverðlauna- hafinn Daniel Kahnemann við Princeton-háskóla fram með nýtt mælitæki til að mæla hamingju, einhvers konar tímavörslu dagsins. Þátttakendur fylla út ítarlega dagbók og spurningalista varðandi allt sem þeir gerðu daginn áður og hverjum þeir voru með og meta tilfinningar sínar á hverjum tímapunkti (hamingjusamur/söm, óþolinmóð/ur, þunglynd/ur, áhyggjufull/ur, þreytt/ur o.s.frv.) á sjö punkta skala. Aðferðin var prófuð á hópi 900 kvenna í Texas og voru niðurstöðurnar nokkuð óvæntar. Í ljós kom að jákvæðustu athafnir kvenna eru í röð mikilvægis: kynlíf, samskipti við aðra, að slaka á, að stunda bænir eða hugleiðslu og í fimmta sæti að borða. Hreyfing og að horfa á sjónvarpið voru ekki langt á eftir. Miklu neðar á listanum var að annast börnin, sem lenti neðar en eldamennskan og aðeins ofar en heim- ilisstörfin. Þetta kemur á óvart vitandi það að fólk nefnir börnin yfirleitt sem stærstu uppsprettu ánægju. Í könnun TIME í desember 2004 sem dæmi þegar spurt var hvaða eitt atriði hefði fært fólki mestu hamingjuna, nefndu 35% börnin, barnabörnin eða bæði. Trúin var í öðru sæti (17%) og makinn miklu neðar eða 9%. Ósamræmið við niðurstöður rannsóknarinnar í Texas sýnir það sem einkennir umræðuna í hamingjurannsóknum: Hvaða upplýsingar eru þýðingarmeiri – víðtækar niðurstöður á vellíðan („Líf mitt er ánægjulegt, og börnin mín eru helsta uppspretta ánægju“) eða sértækari upplýsingar um ánægju dags frá degi („Þvílíkt kvöld, börnin voru hrikalega erfið“)? Þetta eru mjög ólíkar rannsóknir og rannsóknarniðurstöður hafa ekki sýnt mikið samhengi á milli þessara tveggja póla. Almennt hamingjustig okkar er ekki bara summa hamingjusamra augnablika mínus summa reiðra eða dapra. Þetta á við bæði þegar við veltum fyrir okkur hversu ánægð við erum með lífið almennt eða með sértæk atriði eins og börnin, bílinn, starfið eða sumarfríið. Kahnemann gerir gjarnan greinarmun á reynslusjálfinu og minningarsjálfinu. Rannsóknir hans sýna að það sem hefur áhrif á minningu okkar af atburði er tilfinningalegir hápunktar og lágpunktar og einnig hvernig atburðurinn endaði. Þannig að ef við myndum spyrja einhvern í fríi á Ítalíu af handahófi gætum við lent í því að hitta á viðkomandi í reiðikasti að bíða eftir þjóni á veitingastað. Ef maður myndi spyrja seinna „Hvernig var fríið á Ítalíu?“ þá man meðaleinstaklingurinn skemmti- legustu augnablikin og hvernig honum eða henni leið í lok ferðarinnar. Endir atburðar hefur þýðingarmikil áhrif Kahnemann komst að því í tilraunum sínum að það hvernig atburður endar hefur þýðingarmikil áhrif. Í einni rannsókn tóku þátttakendur þátt í ristilspeglun þar sem sveigjanlegt tæki var þrætt upp í ristilinn. Samanburðarhópurinn fékk staðlaða meðferð á meðan speglunin hjá hinum helm- ingnum varaði 60 sekúndum lengur en tækið var ekki hreyft á meðan (hreyfingin á tækinu er það sem skapar óþægindin). Í ljós kom að þeim sem fengu lengri speglun en með betri endi fannst speglunin ekki eins óþægileg og samanburð- arhópnum, og voru viljugri til að fara aftur í ristilspeglun. Einn af lyk- ilþáttum í ham- ingjurannsókn- unum er spurn- ingin hversu mikil áhrif við getum haft á eigin hamingju.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.