Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 101
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 101
K
y
n
n
in
g
Fyrir rúmu ári opnaði Hreyfing og Blue Lagoon Spa heilsulind í glæsilegu
húsnæði í Glæsibæ. Hreyfing er
ein þekktasta heilsurækt landsins
og hefur notið mikilla vinsælda
allt frá því Ágústa Johnson
hóf rekstur þolfimistöðvar
árið 1986. Stöðugur vöxtur í
þessa rúmu tvo áratugi sýnir
best ánægju viðskiptavinanna.
Metnaður er lagður í að veita
fyrsta flokks þjónustu og taka
vel á móti fólki sem vill stunda
heilsurækt og eiga notalegar
stundir í Hreyfingu og Blue
Lagoon spa.
Aðstaðan í Glæsibæ er
framúrskarandi, umhverfið
fallegt og notalegt, þjónustan
persónuleg og viðmótið hlýtt.
Tækjasalur Hreyfingar er
fyrsta flokks og lögð áhersla
á að bjóða það besta sem völ
er á í líkamsræktarstöðvum í
dag. „Í Hreyfingu getur fólk á
öllum aldri fundið fjölbreyttar
leiðir til að stunda heilsurækt í
fallegu og notalegu umhverfi.
Hreyfing sérhæfir sig í hóp-
þjálfun, bæði í opnum tímum
og lokuðum námskeiðum fyrir
konur og karla og geta flestir
fundið eitthvað við sitt hæfi,“
segir Ágústa Johnson fram-
kvæmdastjóri.
Þolið eykst
Árangursnámskeiðin, sérstök
aðhaldsnámskeið, hafa vakið
mikla athygli og árangur þátt-
takenda verið mjög góður;
97,7% þátttakenda segja þau
hafa uppfyllt eða farið framúr
væntingum sínum og 99,5%!
segjast mundu mæla með slíku
námskeiði við aðra.
„Ég finn hvernig þolið eykst
með hverjum tímanum og
auðveldara verður að gera æfing-
arnar. Hlakka alltaf til að mæta,“
segir þátttakandi í árangurs-
námskeiði. Annar bætir við að
með þrotlausu púli, ánægju og
svita hafi náðst sá árangur sem
viðkomandi vænti. „Aðstaðan
er til fyrirmyndar, umhverfið
notalegt og starfsfólkið elskulegt.
Þetta var akkúrat það sem ég
þurfti til að koma mér af stað í
áframhaldandi þjálfun. Líðanin
er stórkostleg eftir tímana.“
Meðferðir með græðandi
efnum Bláa lónsins má nú upp-
lifa í Blue Lagoon spa í Glæsibæ
því að Bláa Lónið hefur þróað
spa-meðferðir og umhverfi sem
byggir á náttúrulegum efnum
og tengingu við náttúrulegt
umhverfi Bláa lónsins. Meðferð-
irnar eru ótæmandi uppspretta
andlegrar og líkamlegrar orku
að sögn þeirra sem reynt hafa.
Viðskiptavinir nýta sér óspart
útiaðstöðuna í Hreyfingu. Þar
eru tveir heitir pottar, annar
með hinum eftirsótta jarðsjó
sem viðskiptavinir dásama mjög
og þykir hafa mjög góð áhrif
t.d. á húðina.
Barnagæsla og skemmtileg
veitingaaðstaða
Í Hreyfingu er björt og
skemmtileg matar- og kaffi-
aðstaða. Þar má líta í blöð og
tímarit, gæða sér á hollum
og góðum veitingum og nýta
sér nettengingu fyrir fartölv-
una. Barnagæslan í Hreyfingu
kemur sér vel fyrir marga. Þar
eru barnanna gætt í öruggu,
hreinu, fallegu og skemmtilegu
umhverfi og ábyrgur starfs-
maður leggur sig fram um að
vinna áhugavert og þroskandi
starf fyrir börnin. Séraðstaða
er fyrir ungabörn sem geta
þar verið í ró og friði frá eldri
börnum. Allir starfsmenn barna-
gæslunnar hafa lært að bregðast
rétt við helstu slysum.
„Í Hreyfingu getur
fólk á öllum aldri
fundið fjölbreyttar
leiðir til að stunda
heilsurækt í
fallegu og nota-
legu umhverfi.“
aÐstaÐa Og Árangur FraMÚrsKarandi
Hreyfing
Ágústa Johnson framkvæmdastjóri.