Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 114

Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 114
114 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 er dálítið skrýtinn að því leytinu að hann er mjög viðkvæmur fyrir umhverfinu, verðið er viðkvæmt og þjónustan einnig. Þá er hann mjög næmur fyrir viðbrögðum viðskiptavinanna og þarf alltaf að vera á tánum hvað það varðar. Það kom okkur samt á óvart hversu gaman var í rauninni að takast á við þau verkefni sem fylgja rekstrinum og veitingarhúsbransinn er mun skemmtilegri en hann lítur út fyrir að vera utan frá. Stefnan sem við fórum af stað með í upphafi, að gera Pizza Hut að fjölskylduvænum veitingastað, hefur gengið eftir. Okkur hefur tekist að snúa rekstrinum við og straumlínu- laga hann verulega. Við höfum unnið mikið með Pizza Hut International í markaðsmálum, þjálfunarmálum og viðburðamálum og stör- fum þar af leiðandi í alþjóðlegu umhverfi. Við nýtum okkur alþjóðlega aðfangakeðju Pizza Hut, aðallega frá Evrópu, en einnig að litlu leyti frá Bandaríkjunum og verslum einnig á innlendum markaði hvað varðar hráefni á borð við ost, kjötmeti og grænmeti. Fyrst þegar við fórum að reka Pizza Hut var ég ekki starfandi að fullu í rekstrinum, en ég kem alfarið til starfa við fyrirtækið 2005. Við fórum strax í að hagræða rekstrinum og fækka á skrifstofunni. Og má segja að ég hafi beðið í tvö ár eftir tækifærinu til að stökkva úr starfi mínu hjá Reykja- víkurborg inn í reksturinn á Pizza Hut.“ Pizza hut í finnlandi Þórdís Lóa og Pétur létu ekki staðar numið heldur fóru í útrás til Finnlands. „Það var árið 2006 að við keyptum Pizza Hut í Finnlandi, sem voru átta staðir og erum í dag með sjö staði í rekstri. Við höfðum um tíma verið að hugsa hvað við myndum gera næst í rekstrinum, hvort við ætluðum að halda okkur við Ísland, íhuga stækkunarmö- guleika á Pizza Hut eða fara í einhvern annan rekstrargeira. Það sem réð úrslitum að við héldum okkur við Pizza Hut var að okkur fannst reksturinn skemmtilegur og spennandi, auk þess sem við fengum mjög góð viðbrögð frá Pizza Hut International. Þeir hvöttu okkur til að skoða aðra Pizza Hut markaði, sem við gerðum og enduðum með því að kaupa Pizza Hut í Finnlandi, en sá möguleiki hafði verið kynntur okkur. Þetta var í júní 2006. Í dag rekum við þessi tvö fyrir- tæki saman héðan frá Íslandi, en með yfirtöku á Pizza Hut stöðunum í Finnlandi varð mikil breyting á vinnutilhögun okkar. Við erum í Finnlandi að minnsta kosti eina vinnuviku í hverjum mánuði. Margir hafa haft á orði við okkur hvers vegna í ósköpunum við völdum Finnland. En þó að tungumálið vefjist fyrir okkur þá var ýmislegt sem mælti með því. Margt er í finnska viðskiptaumhverfinu sem á sérlega vel við okkur og hvað varðar rekstu- rinn þar hafa áætlanir okkar gengið eftir hægt og rólega, eins og gerðist hér á landi.“ kreppan hefur áhrif Rekstur Pizza Hut hefur ekki farið varhluta af kreppunni sem nú er í algleymingi, frekar en önnur fyrirtæki: „Reksturinn er í járnum, eins og hjá öllum fyrirtækjum í dag. Umhverfið hefur snarbreyst og má segja að við séum búin að vera með fyrirtækið í fanginu síðan kreppan skall á, hver einasti kostnaðarliður er skoðaður og allt gert til að halda okkur á floti. Aðsóknin hefur vissulega minnkað og við sjáum brey- tingu á kúnnahópum okkar og það er skiljanlegt. Ungt fjölskyldufólk er sá hópur sem er einna helst skuldsettur vegna húsnæðis og sá hópur „Það er margt í finnska viðskiptaumhverfinu sem á sérlega vel við okkur og hvað varðar reksturinn þar eru áætlanir okkar að ganga eftir hægt og rólega, eins og gerðist hér á landi.“ k r A f t M i k i l A t h A f n A k o n A Við Laxá í Aðaldal. „Ég er mikil útivistar- manneskja og dellu- kona. Stunda veiði af kappi, bæði flugu- og netaveiði, sem og skotveiði á haustin.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.