Frjáls verslun - 01.05.2009, Síða 121
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 121
s t u ð u l l
vera nokkuð virkt í borginni og að þær
Jóhanna, Kristín og fleiri hafi kynnst vel í
gegnum það.
„Það er gaman hvernig ákveðin stemmn-
ing og sambönd hafa myndast á milli Íslend-
ingana hérna á síðustu árum,“ segir Sigrún.
„Það myndast eiginlega svolítil systkina- eða
bekkjarstemmning því fólk er jú að ganga
í gegnum það sama og þess vegna skapast
ákveðið net á milli fólks.“
Haraldur vinnur í tölvubransanum hjá
Oz (sem reyndar var keypt af Nokia síðast-
liðið haust ) á meðan Sigrún hefur helgað sig
myndlistinni að mestu.
Hún stundaði myndlistarnám við Con-
cordia-háskóla og hefur haldið nokkrar sýn-
ingar. Ennþá hefur hún ekki haldið sýningu
á Íslandi en stefnir á það.
Sigrún stundaði síðastliðinn vetur fjar-
nám frá Háskólanum á Bifröst í menning-
arstjórnun jafnframt því að starfa á listastofn-
uninni Articule í Montréal við ýmiss konar
nefndarstörf og skipulagningu listviðburða.
stórborg með bæjarbrag
Þegar þær Kristín, Jóhanna og Sigrún eru
beðnar að lýsa Montréal er ekkert hik á
góðum lýsingum. Montréal er stórborg
en samt er mikill bæjarbragur á henni og
afslappað andrúmsloft að þeirra mati.
Sigrún lýsir borginni sem fjölbreyttu og
alþjóðlegu samfélagi þar sem fólk sé almennt
hamingjusamt og opið. „Fólk hér virðist hafa
eða gefa sér tíma til að stoppa og spjalla sem
maður finnur ekki svo mikið fyrir heima á
Íslandi.“
Jóhanna segir fólk í Montréal einnig vera
mjög umburðarlynt gagnvart siðvenjum,
trúarbrögðum, klæðaburði og lífsstíl. „Hér
er margt aðkomufólk sem flytur jafnvel eitt
til borgarinnar og þarf því að kynnast fólki.
Kannski er það ástæðan fyrir því hversu opið
fólk er.“
Kristín segir að í Montréal sé hún meira
ein af fjöldanum og sér finnist samkeppnin
minni en heima. „Ég hef líka búið í Kaup-
mannahöfn og London, þar sem er skýr
stéttaskipting og mikið um fordóma, hér
finn ég ekki fyrir því.“
Jóhanna segir að það hafi ekki verið fyrr
en eftir nokkurra ára búsetu í Kanada að
hún gerði sér grein fyrir því hvað Ísland
er í raun fallegt land. „Þar finnur maður
orkuna, birtan er sérstök, náttúran einstök
og fólkið gott,“ segir hún. „Ég auglýsi Ísland
á hverjum degi.“
Er heimferð á döfinni?
Sigrún segir að fjölskylda sín stefni að því a
flytja heim áður en dæturnar tvær komast á
skólaaldur. „Við viljum að þær alist upp sem
Íslendingar og læri málið vel,“ útskýrir hún.
„Maður er náttúrulega alltaf Íslendingur og
eftir átta ár er okkur farið að langa svolítið
heim.“
Kristín segir þau Tómas vilja búa áfram
úti og reyna eitthvað nýtt áður en þau haldi
heim til Íslands. „Það fer alveg eftir tækifær-
unum hvað gerist.“
Jóhanna segir þau Jóhann vel getað
hugsað sér að búa annars staðar erlendis en
í Montréal áður stefnan sé tekin heim til
Íslands. „Þetta snýst um að grípa tækifærin
þegar þau bjóðast.“
Hægt er að nálgast tónlist
nistu á www.nistamusic.com
og kynna sér myndlist Sigrúnar á
www.sigrunjenny.com.
Frá vinstri Kristín Birgitta Ágústsdóttir starfar sem söngkona og semur tónlist, Sigrún Jenný Barðadóttir vinnur við myndlist og leiðsögn og
Jóhanna Jakobsdóttir vinnur m.a. við hugbúnaðarþýðingar fyrir Google og Expedia.com.