Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 129
fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 129
nafn: Þórdís ágústa ingólfsdóttir.
fæðingarstaður: reykjavík, 24.
október 1955.
foreldrar: ingólfur Snorri ágústsson
(1917), verkfræðingur, lést árið
1997 og ásdís einarsdóttir (1925)
hjúkrunarfræðingur.
Maki: gísli ragnarsson, viðskipta-
fræðingur.
Börn: Vigdís Svava, 26 ára, Snorri,
22 ára, ásdís Hrund, 19 ára.
Stjúpsonur Halldór ragnar, 33 ára.
Menntun: Hjúkrunarfræðingur frá
Hí. Ma í mannauðsstjórnun frá við-
skipta- og hagfræðideild Hí. „Starfsvettvangur minn
hefur að langmestu
leyti verið á sjúkra-
húsum í Reykjavík,
þ.e. Borgarspítalanum,
Sjúkrahúsi Reykjavíkur
og síðan Landspítala
frá árinu 2000.“
Þórdís Ágústa Ingólfsdóttir tók við við starfi mannauðsráðgjafa á Lyflækn-ingasviði Landspítala í júní og lét þá
um leið af störfum sviðsstjóra hjúkrunar á
endurhæfingarsviði LSH. „Lyflækningasvið
er stærsta svið Landspítala með ríflega 1500
starfsmenn. Þeir hafa fjölbreytta menntun
og sinna ólíkum störfum sem tengjast þó
öll því að veita þjónustu þeim sjúklingum
og aðstandendum þeirra sem til spítalans
leita. Teymisvinna er mikilvæg til að þekk-
ing hvers og eins nýtist sem best og til að
auka skilvirkni. Auk Íslendinga starfar fjöldi
útlendinga í ólíkum störfum við sviðið.
Mannauðsráðgjafar starfa náið með stjórn-
endum sviðsins, þ.e. framkvæmdastjóra,
deildarstjórum og yfirlæknum, meðal annars
við áætlanagerð um mönnunarþörf deilda
og eininga, ráðningar, móttöku nýliða, sí-
og endurmenntun, þjálfun og starfsþróun,
starfslok. Stuðla að bættu starfsumhverfi í
samráði við stjórnendur. Einnig er hluti af
starfinu að samræma mannauðstengd verk-
efni og miðla þekkingu innan sviðs og milli
sviða.“
Þórdís útskrifaðist frá Háskóla Íslands
með BS-gráðu í hjúkrunarfræði árið 1979
og lauk MA-prófi í mannauðsstjórnun í
janúar 2008. „Starfsvettvangur minn hefur
að langmestu leyti verið á sjúkrahúsum í
Reykjavík, þ.e. Borgarspítalanum, Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og síðan Landspítala frá árinu
2000. Ég hef lengst af verið í stjórnunarstarfi,
fyrst sem deildarstjóri á endurhæfingardeild á
Grensási og frá árinu 2000 til vors árið 2009
sem sviðsstjóri hjúkrunar á endurhæfingar-
sviði Landspítala.“
Þórdís er gift Gísla Ragnari Ragnars-
syni, viðskiptafræðingi, markaðsstjóra hjá
Kögun. „Við eigum saman þrjú börn, Vig-
dísi Svövu, 26 ára, hún er íþróttafræðingur
og stundar nú nám í sjúkraþjálfun í Óðins-
véum, Snorri, 22 ára nemi í viðskiptadeild
HÍ og Ásdís Hrund, 19 ára nýstúdent frá
MS sem hyggur á nám í verkfræði í haust.
Einnig á ég stjúpson, Halldór Ragnar, 33
ára, hann er sjávarútvegsfræðingur og starfar
sem aðstoðarútibússtjóri hjá Kaupþingi á
Akureyri. Hann er í sambúð með Jónínu
Guðmundsdótttir viðskiptafræðingi og eiga
þau tvíburana Guðmund og Jón Inga, 5 ára
og Ragnar, 4 mánaða.“
Þegar kemur að áhugamálum segir Þórdís
fjölskylduna vera sitt helsta áhugamál en
nefnir einnig gönguferðir og útiveru almennt
og bóklestur: „Síðasta góða frí sem við hjónin
fórum í var til Ítalíu síðastliðið sumar. Þar
dvöldum við viku í yndislegu sumarhúsi í
sveitasælunni í Umbriu og ferðuðumst um
Toscana í eina viku, skoðuðum vínrækt-
arhéruð, fórum og gistum ýmist í smábæjum
eða borgum og enduðum ferðina í Róm
þar sem við dvöldum í þrjá daga. Fyrir utan
vikuferð til Danmerkur nú í byrjun júlí þar
sem við ætlum að heimsækja dóttur okkar í
Óðinsvéum er ætlunin að ferðast um landið.
Við ferðumst mikið innanlands á sumrin
og ætlum ekki að breyta út af þeim vana í
sumar.“
mannauðsráðgjafi á lyflækningasviði landspítala
ÞÓRDÍS ÁGÚSTA INGÓLFSDÓTTIR