Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 71

Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 71
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 71 skapaði. Þess má geta að í ár eru 400 ár síðan fyrra bindið um riddarann hugumstóra kom út. „Mio Cid er hetja raunveruleikans og Don Quijote er hetja fantasíunnar. Í heimahéraði þeirra beggja, Castilla, er ferðamönnum boðið upp á „La ruta de Mio Cid“ og „La ruta de Don Quijote“ - farið er með ferðamenn á þá staði þar sem viðkomandi hetjur voru og þeir geta valið hvort þeir vilja eltast við fantasíuna eða raunveruleikann.“ Aðspurð um spænskar nútímabókmenntir segir Margrét að þar sé mikil gróska um þessar mundir en vinsælustu bækurnar fjalli enn um spænsku borgarastyrjöldina. „Spænska borgarastyrjöldin er á margan hátt óuppgerð í þjóðarsál Spánverja. Ekkert uppgjör fór fram eftir að Franco lést fyrir 30 árum og þeir sem biðu lægri hlut vilja að saga þeirra heyrist. Það er sársaukalausast að gera það í gegnum bók- menntir. Spánn siglir inn í spennandi 21. öld. Viðskiptalífið blómstrar og smjör drýpur af hverju strái. Innganga Spánverja í ESB hefur haft jákvæð áhrif á stjórnarfar og efnahagslíf. Þessi velgengni helst í hendur við blómstrandi menningu sem gefur svo mikið af sér að þegar ég er spurð að því hvaða borg í Evrópu hafi tekið við menningarforystunni, er svarið Barcelona.“ „Spænska borgarastyrjöldin er á margan hátt óuppgerð í þjóðarsál Spánverja.“ segir Margrét Jónsdóttir. Jesús Potenciano fæddist í smábæ nálægt Toledo sem er lítil og merk borg á hásléttunni - la meseta - í Castilla-héraði. Þriggja ára gamall flutti hann með fjöl- skyldu sinni til höfuðborgar- innar, Madrid. Árin liðu. Jesús var einhverju sinni í Málaga þegar hann hitti íslenska konu, Maríu Önnu. Þau urðu ástfangin, giftu sig og hér hefur Jesús búið í 32 ár. Hann hefur kennt spænsku við Fjölbrautaskól- ann í Breiðholti í fjölda ára auk þess sem hann kennir við spænskudeild Háskóla Íslands. Jesús gefur uppskrift að tapas. Um er að ræða smárétti sem algengt er að fáist á kaffihúsum og börum á Spáni. Segja má að tapas sé lífsmáti á Spáni. Lífsstíll. Upphaflega var boðið upp á tapas á „tascas“ sem voru litlar og látlausar vínstofur sem fjölskyldur ráku. „Spánverjar bjóða gestum sjaldan heim en nota hvert tækifæri til að hitta vini og kunningja á kaffihúsum, á börum eða veitingahúsum. Þess vegna er svo mikið um slíka staði þar sem boðið er upp á smárétti. Fjölbreytni smá- réttanna er í samræmi við listrænt viðhorf þess sem eldar.“ Fylltir sveppir, fyrir fjóra 16 stórir sveppir 2 laukar Ein lítil rauð paprika Einn stilkur steinselja Þrjú hvítlauksrif 350 g spægipylsa Svartur pipar Ólífuolía Salt Hreinsið sveppina vel. Skerið stilkana og geymið hattana á sveppunum. Hakkið stilkana í litla bita. Hakkið laukinn og paprik- una í litla bita. Setjið ólífuolíu á pönnu og gyllið laukinn, paprik- una og laukstilkana þar til allt vatn er gufað upp. Takið utan af spægipyls- unni og skerið hana í litla bita. Hakkið hvítlauksrifin og skerið í litla bita. Blandið saman á pönnu með olífuolíu spægipylsu- bitunum, hvítlauknum, lauknum, paprikunni og sveppastilkbitunum og steikið við lágan hita í átta mínútur. Bætið við hakkaðri steinselju og smávegis af salti áður en spægipylsan og hráefnið er tekið af pönnunni. Fyllið sveppahattana með innihaldinu á pönnunni og raðið þeim í eldfast mót. Setjið inn í heitan ofn þar til sveppirnir hafa fengið á sig gylltan lit. Berið fram mjög heitt. Hægt er að nota afgang- inn af ólífuolíunni á pönn- unni sem sósu. Gott rauðvín frá La Mancha passar vel við þennan rétt, til dæmis Monte Don Lucio - Gran Reserva frá árinu 1998. Jesús Potenciano gefur uppskrift að tapas-rétti. SUÐRÆNN SÆLKERAMATUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.