Frjáls verslun - 01.02.2006, Qupperneq 21
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 21
FORSÍÐUEFNI • BANKASTJÓRAR Í LONDON
E f útsýnið af skrifstofu Glitnis (áður Íslands-banka) í London blæs ekki starfsmönnum bankans stóra drauma í brjóst er erfitt að
ímynda sér hvar það gæti annars gerst. Af svölum
skrifstofunnar uppi á sjöundu og efstu hæð í miðri
City, rétt aftan við virkiskennda byggingu Bank of
England, sér yfir gamlar og nýjar byggingar hverfis-
ins, þar sem risa byggingakranar á hverjum auðum
bletti bera vitni um gróskuna í efnahagslífi borgar-
innar. Steinunn Kristín Þórðardóttir tók við sem
framkvæmdastjóri Glitnis í London í nóvember sl.,
fyrst kvenna til að stjórna íslenskum banka erlendis.
Eftir að hafa lært í Bandaríkjunum, starfað þar
og í Þýskalandi, meðal annars hjá Enron, er Stein-
unn vel í stakk búin til að starfa í London, á einum
athafnamesta fjármálamarkaði heims. Glitnir hefur
verið með skrifstofur í London síðan 2001.
- Verkefni Steinunnar er að styrkja og stækka
starfsemina í London, en hvernig ætlar hún að
fara að því?
„Starfsemi Glitnis í London hefur vaxið síðastliðin
tvö ár. Undirstaða rekstursins er mjög góð og til
að styrkja stoðirnar enn frekar erum við að flytja
hluta af starfsemi alþjóðasviðsins hingað. Það gerir
bankanum kleift að bjóða viðskiptavinum skjótari
og betri þjónustu. Einnig erum við að byggja upp
og auka þjónustuna og leggjum áherslu á að ráða
fólk með mikla reynslu af breska markaðnum.
Starfsmenn á breska starfssviðinu eru nú 24 en
teymið mun stækka verulega á næstu mánuðum.
Alþjóðleiki einkennir teymið en hér starfar fólk frá
Bretlandi, Frakklandi og Svíþjóð, svo að eitthvað
sé nefnt.
Glitnir einbeitir sér að þremur sviðum á alþjóð-
lega vísu; matvælaiðnaðinum, skipasmíðum og vist-
vænni orku. Í Bretlandi er áhersla lögð á matvæla-
iðnaðinn, þar sem fyrirtækjaráðgjöf, fjármögnun við
samruna og yfirtökur eru okkar helstu starfssvið.
Fyrirtækjaráðgjöfin þjónar viðskiptavinum á mark-
aðnum hér sem og í Bandaríkjunum. Í skuldsettri
fjármögnun einbeitum við okkur að Bretlandi og
Norðurlöndum. Fjármögnun Glitnis er svo unnin
bæði héðan og frá Íslandi. Það hefur veitt bankanum
samkeppnisforskot að hafa starfsfólk með reynslu
af erlendum mörkuðum þegar kemur að fjármögnun
bankans.
Framundan er mikil uppbygging. Við erum meðal
annars að byggja upp einkabankaþjónustu í London,
Lúxemborg og á Íslandi. Kjarni þessarar starfsemi er
á Íslandi og í Lúxemborg. Við leggjum áherslu á að
efla þjónustu við viðskiptavini á þeim mörkuðum
sem bankinn starfar - í því samhengi er Bretland
mjög mikilvægt. Hér þjónar bankinn að auki fyrir-
tækjum í ýmsum geirum en um fjórðungur lánveit-
inga er til fyrirtækja í matvælaiðnaðinum. Hingað
til hefur sókn á markaðinn verið sinnt á Íslandi, en
nú munu viðskiptastjórar verða í Bretlandi. Þeir eru
helstu tengiliðir bankans við fyrirtæki. Það mun
skapa ný viðskipti og tvíefla sóknina.“
- Nú hefur þú reynslu af því að vinna víða.
Hvernig er samanburðurinn á vinnudeginum
hér, heima og svo annars staðar?
„Vinnudagurinn hér er lengri en almennt gerist
heima. Í fjárfestingabönkum er vinnudagurinn
reyndar nánast allur sólarhringurinn. Hér er ekki
óalgengt að fólk vinni 12 til 14 tíma að meðaltali,
það fer mikið eftir starfssviði og verkefnastöðu.
Hins vegar kemur fólk ekki til vinnu um helgar
nema í undantekningartilfellum, en vinnur kannski
að heiman. Það kemur reyndar ekki síst til af því að
TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
ÚTLENDINGAR META
SKAPANDI HUGSUN ÍSLENDINGA
Steinunn Kristín Þórðardóttir er framkvæmdastjóri Glitnis í London og
stefnir að því að byggja upp alþjóðlegt umhverfi í bankanum.
Steinunn Kristín Þórðar-
dóttir, framkvæmdastjóri
Glitnis í London, er hér
í glæstum húsakynnum
bankans í City í London.